Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1946, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1946, Page 6
22 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ins ú horninu á Main og ITigh Street. Einn aðstoðarmaður hans Ijek hlutverk Jiess myrta, annar morðingjann. Mönnum var svo komið fyrir á nákvæmlega þeim stöðum, sem vitnin höfðu staðið —< í sex feta fjarlægð, tuttugu feta og hundrað feta. I rjettinum komst Cumming þannig að orði í sam- liandi við þetta: „Það er rafmagnsljós í um 50 feta fjarlægð frá morðstaðnum. Þannié hefðu vitnin orðið að leggja sjer svip ákærðs á minnið á þrem til fjórum sekúndum og það við dimt ljós. Það furðar mig stór- lega, að hugsa til þess, að nokkur maður geti, tveim vikum eftir at- burðinn, þekt með vissu mann, sem hann hafði aldreí sjeð áður og þá við fymefnd skilyrði“. Saga veitingastúlkunnar. EN IIVERNIG var þá framburði veitingastúlkunnar varið ? Hún þekti Israel vel og hafði vinkað til hans stuttri stundu áður en morðið var framið. Cummings rannsakaði fyrst framburð Tsraels í sambandi við kvikmyndahúsið. I ljós kom að sýning hafði farið fram á nákvæm- lega þeim tíma, sem Israel sagðist hafa verið þar. Sama kvöld tók hinn opinberi ákærandi s.jer stöðu við hlið þ.jónustustúlkunnar, að baki afgreiðsluborðsins í veitinga- húsinu. Hver maðurinn á fætur öðr- um gekk upp og niður götuna og hvorki stúlkan nje Cummings sjálf- ur gátu sjeð hverjir það voru. ITin reyklituðu gler á glugganum og endurskinið frá l.jósunum gerði það að verkum, að alt var ákaflega ó- skýrt. Einn af aðstoðarmönnum Cummings var látinn ganga fram hjá og vinka, en ógerningur var að sjá, hver þar var á ferð. Veitinga- stúlkan þekti ekki vini sína, sem gengu framh.já. Hún játaði að lok- um, að lögfræðingur hefði þegar sótt um verðlaun þau, sem þeim var heitið, er hjálpuðu til að hafa hendur í hári morðingjans. Þá var aðeins eftir vitnisburður- inn um marghleypuna, en hann var alvarlegastur. llylkið af kúlunni hafði fundist í baðherberginu í húsi því, sem Israel og vinir hans höfðu búið í. En við nánari rann- sókn fanst þar fjöldinn allur af hylkjum til viðbótar við það fyrsta! Ilúseigandi skýrði svo frá, að upp- gjafahermennirnir þrír hefðu oft æft sig að skjóta úr marghleypum sínum r'ir glugga liaðherbergisins. Slarkið, sem þeir skutu í, var í hiisagarðinum, en jieir fjelagar fleygðu tómum hylkjunum í bað- kerið. Morðvopnið. ÞAR SEM Cummings var nú far- ið að þykja allur framburðurinn í málinu heldur lítils virði, kallaði hann á sinn fund fjölmarga s.jer- fræðinga frá Remington og Winc- hester verksmiðjunum. Sex þeirra bentu á skekkjur í sambandi við rannsókn morðvojinsins. Ryssukúl- ur, sem skotið er, fá á sig jafn ó- skeikul merki og fingrnför, en rang ur skilningur hafði verið lagður í rákirnar í kúlu þeirri, sem fanst í höfði þess myrta. Með því að nota byssukúlur, byssur og stækkaðar l.jósmyndir, tókst Cumming að færa sönnur á þetta fyrir rjettinum. Og loks benti hann á eitt atriði, sem öllum öðrum hafði yfirs.jest: Vitnin höfðu verið sammála um, að þau hefðu sjeð gljáandi marghleypu í höndum illræðismannsins. En marg hleypa Israels, sem var svört og ó- fægð, sendi ekki frá sjer einn ein- asta glampa. Eftir að hafa skýrt frá þessu, fór Cummings fram á það við rjett- inn, að Tsrael yrði sýknaður af öll- um ákærum. ,.-Teg held að enginn muni efast um sakleysi hans“, sagði hann. Rjetturinn fjelst á þetta. Málalok. ENN 1 DAG hefir ráðgátan um Dahme-morðið ekki verið ráðin. All-mörgum árum eftir morðið, heyrði Homer Cummings frá Har- old Israel. Ilann var ekki lengur flækingur, hann hafði atvinnu, var giftur og orðinn faðir og hafði eignast hús og bíl. Þannig var kom ið fyrir manninum, sem eitt sinn var ákærður fyrir morð. Því var einu fyrir að þakka, að rjett var haldið á málinu, að hann var ekki dauður, grafinn og gleymdur. I rjettarskýrslum má finna mörg mál lík þessu, en þair hafa oftast nær verri endir en að ofan greinir. Besta tryggingin fyrir því, að al- saklausir borgarar sjeu ekki fang- elsaðir og hengdir, er sú, að hinn opinberi ákærandi ríkisins sje sam- viskusamur dugnaðarmaður. Því er það, að meðferð Cummings á máli Harold Israels mun ætíð verða met orðagjörnum ákærendum til aðvör- unar. — Nú hef jeg reynt öll möguleg ráð og hreyfincfar, sem mjer hefir getað dottið í hug, en ekkert gagn ar, jeg er alltaf jafnfeit. Getið þjer ekki, læknir, ráðlagt ........? — Tja, það er ein hreyfing, sem ætti að duga. Hristið bara höfuð- ið í hvert sinn. sem yður er boðið eitthvað œtilegt. I

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.