Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1946, Qupperneq 7

Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1946, Qupperneq 7
I LESBÓK MOKGUNBLAÐSINS 227 UNGUR LISTMÁLARI KEMUR TIL SOGUNNAR Útihús FYRIR nokkrum dögum hitti jeg hinn unga listamann er heldur sýn- ingu í Listamannaskálanum þessa daga, Pjetur Sigurðsson. Faðir hans hans var með honum. Pjetur er aðeins 17 ára gamall. Hann er fæddur og uppalinn hjer í Reykjavík. Foreldrar hans eru Sig- urður Þórðarson bankamaður í Búnaðarbankanum Bjarnasonar frá Reykhólum og kona hans Ólafía dóttir, Pjeturs Hjaltesteds /að Sunnuhvoli. Hinn ungi málari er hæglátur í framgöngu og tali, og lætur lítið yfir sjer. Hann sagði m. a.: — Mjer er það alveg ljóst, að í mikið er ráðist að halda slíka sýn- ingu, þar sem jeg er byrjandi, hefi ekki enn haft tækifæri til þess að 'komast út fyrir landsteinana. En í sumar ætla jeg á Akademíið í Höfn. Þangað eru nokkrir fjelagar mínir þegar komnir á undan mjer. Síðan barst talið að því, hvar hann hafi lært. — Fyrsti teiknikennari minn í barnaskólanum var frú Valgerður Briem. En síðar Jóhann Briem listmálari. jafnframt var jeg vetrar tíma í teikninámskeiði hjá Mar- teini Guðmundssyni myndhöggv- ara, og annan vetrartíma hjá Egg- ert Guðmundssyni. Haustið 1942 innritaðist’ jeg í myndlistaleild Handíðaskólans. — Stundaði þar nám í þrjá vetur og lauk því í fyrravor. Kurt Zier kendi mjer teikningu af mikilli alúð. En fyrsta veturinn kendi Þorvaldur Skúlason okkur meðferð olíulita. Síðan hætti hann kenslu við skólann, því miður. Jeg á vitanlega kennurum mín- um mikið að þakka. Þeir verða ekki sakaðir um, þó sitthvað megi að sjálfsögðu að myndum mínurh finna. Flestar þeirra hefi jeg gert uppá engin spýtur. Mikill stuðningur og uppörvun hefir það verið fyrir mig að kynnast mvndum þeirra ísl. mál- ara, sem sýnt hafa í skálanum und- anfarin ár. — Hvert er ferðinni heitið að lok inni námvist í Höfn? — Það hefir lengi verið draum- ur minn að komast til Frakklands, sagði hinn 17 ára málari. Vonandi fær sá draumur hans að rætast. V. St. Illts „Hvíta skálin“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.