Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1946, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1946, Blaðsíða 12
232 ferð, hann fer ekki fet nema aðrir llama sje samferða. Indíánar vinna aldrei nema margir saman, einn Indíáni er alveg úrræðalaus og gagnslaus. Indíánar eyða helmingn um af ævi sinni í gleðskap eða leti; llama er rekki hægt að nota nema svo sem annan hvorn dag, hinn daginn verður það að standa á beit. Engir nema Indíánar geta rekið llama, þeir gegna ekki öðrum, og þó öskra og hrópa Indíánarnir ekki á þá eins og aðrar skepnur. En llama hefir það fram yfir Indíánana að það er miklu þrifa- legra, það er ekki drykkfelt og það það ber sig vel og tígulega, ólíkt því sem er um Indíána. Llama er höfðinginn meðal dýranna þarna. Aldrei hefi jeg heyrt æmta nje skræmta í honum — hann kann sennilega hvorki að jarma nje brækja — en það er eins og hin blíðlegu augu hans horfi þvert í gegn um mann. Annars horfir hann hnakkakertur á heiminn með kæru leysi og þóttasvip. Hann minnir á mann, sem lent heffr í raunir, en er of stoltur til þess að láta mót- iætið buga sig. Og í svip llamans er einhver dreymandi þrá, eins og hann sje að hugsa um þá löngu liðnu tíma er hann og Inkarnir voru alls ráðandi í Andesfjöllum. Ef llama hefði verið til í Norður- Ameríki^ mundi honum hafa verið eytt þar gjörsamlega. Hann er of seinlátur og kraftalítill til þess að þola þann hraða, sem er á öllu hjá oss. Hann getur ekki borið meira en tæp hundrað pund og fer í mesta lagi tíu mílur á dag. Það verður altaf að beita honum á dag- dnn, því að á nóttunni grípur hann ekki í jörð. En hjer uppi í fjöllun- um, þar sem alt fer á seinagangi, getur hann komið að notum, og hann þrífst á hinum fábreytta trjenaða gróðri, sem hjer er. Og þótt nú sje öld flugvjela, hraðíesta LESBÖK MORGUNBLAÐSINS og bíla, þá eru llamarnir einu flutn ingatækin hjer eins og í fornöld. Llama er háreistur og hnakkakert- ur, eins og hann væri strútur á fjórum fótum, og hann stekkur líkt og Kengúra. £ ‘ í í i — Mormúnabiirgin Framh. af bls. 230 voru farnir að slitna. Ég fór inn í skóvinnustofu, þar sem auglýst var, að menn gætu hinkrað við meðan gert væri við skóna þeirra. Vinnustofan var lítil en snotur. Afgreiðsluborð var yfir þvera stofuna. Fyrir innan borðið voru þrjár vélar, voru í þeim sniðnir sólarnir, saumaðir og fægðir. En fyrir framan borðið voru stólar, og fylgdi hverjum stól lítill skem- ill, sem var eins og kassi, sem önnur hliðin hefir verið tekin úr. Var skemill þessi bæði notaður sem hlíf fyrir fæturna, meðan beðið var eftir viðgerðinni og til þæginda, þegar farið var í skóna. Eftir tæpan hálftíma fékk ég aft- ur skóna mína, alsólaða og sem nýja. Þarna afgreiddi ljómandi snotur stúlka. Þegar ég hafði greitt henni viðgerðina, ætlaði ég að rétta henni svolitla auka- greiðslu, eins og alsiða er víðast í Bandaríkjunum. Hún rétti mér aftur peningana brosandi og sagði: „Við tökum fulla greiðslu fyrir störf okkar, en enga auka- þóknun“. Ég hefi líklega orðið eitthvað sneypulegur, enda kom mér þetta óvart. Hún bætti því við eins og í af sökunarróm: „Þakka yður fyrir. Þetta er sama og þegið. Lítið inn aftur, ef þér þurfið^ á einhverju að halda“. Mormónar vilja láta Salt Lake City vefti fyrirmynd alls þess bezta í Bandaríkjunum, og ég held að þeim hafi tekizt það um margt. — Til valdhafa Framh. af bls. 226 helmingur alls mannkynsins. En vjer konur erum settar í heiminn til þess að ala börnin, endurnæra þau, vernda þau og uppala. Vjer erum hið stærsta Internationale veraldar. Vjer tölum mál, sem all- ir skilja, frá Chungking til Moskvu, frá Berlín til New York. Reynið herrar mínir, að sundra oss....! Gáið að! Eg var að koma frá Mary Doe, ekki til þess að biðja, heldur til þess að áminna og vara við. Jeg kom í auðmýkt, en án nokkurs geigs. Því að mjer er hrundið áfram af herskörum mæðr anna, er þjer leituðuð til á skugga- tímum, og enn gangið þjer í dimmu án þeirra, dimmu, sem er þrungin martröð og skelfingum. Gjarna vildum vjer ljetta af yð- ur angistinni. En fyrst verðið þjer að fjarlægja fallbyssur yðar. Þjer getið ekki talað við mæður yðar með handspengjum og kjarnorku- sprengjum. Þjer verðið að koma óvopnaðir inn til mæðra yðar. Þá munum vjer sýna yður fram á, að heilsulyf veraldar eru ekki þar, sem þjer hyggið það vera, hvorki í jarðskjálftum nje jarðeldum, held ur í hinni lágu, rólegu rödd móð- urinnar; ekki í vopnum eyðingar og tortímingar, heldur í viljanum til þess að skapa og viðhalda; jafn- vel ekki í andans gáfum, heldur í ást á hugsjóninni — í hinni ódrep- andi trú á lífið — hinu óslökkvandi valdi ástarinnar og kærleikans“. Er það satt að þekkingin hafi enga þýðingu fyrir þig nema því aðeins að aðrir fái að vila hvað þú veist mikið?

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.