Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1946, Page 11

Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1946, Page 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS £ -5' " J 231 ÓKUNN LÖND XXII. Veslings ekkjubarn ÞAÐ var einhver kirkjuhátíð í Nahuinququio þorpinu er vjer kom um þangað. Loftið glumdi af hjá- róma pípublæstri og trumbuslætti, með þessum langdregnu og rauna- legu tónum, sem einkenna músík Indíána. Víða voru hópar manna að dansa. Voru karlmennirnir í allskonar skræpóttum búningum og með grímu fyrir andliti. Þarna tví- steig fólkið, en færðist ekkert úr stað. Yfir fjallaskarðið hinum megin lá gamall vegur eins og steintröpp- ur og hefir þáð líklega verið leyfar af þjóðvegi Incanna. Svo lá leiðin aftur niður djúpan dal, örmjór stíg ur á milli ótal smágarða með grjót- görðum umhverfis. Þeir voru ný- plægðir og vantaði regn. Undir sólsetur blasti við oss fljót, sem sýndist fagurgrænt þar sem það rann milli grasi gróinna bakka eins langt og augað eygði. Þetta var Mantero eitt af hliðarfljótum Ama- zons. Með fram því voru mörg smá- þorp á víð og dreif. í stofunni í „Hacienda Casma“, voru samkomnir þrír ferðalangar, sem forlögin höfðu leitt saman í þessum frjósama dal, og sátu um- hverfis póst, — já, nýan amerískan póst. Hsbóndinn þarna var ákaf- lega hæglátur og kurteis maður og þótti mjer það undarlegt þangað til jeg frjetti að hann var Argentínu- maður. Óðalseigendur á þessum slóðum hafa lítið fyrir lífinu. — Klukkan var víst orðin átta næsta morgun er vjer söfnuðumst saman til að drekka morgunkaffi. Með því var borið fram brauð og ostur. Nokkru seinna sendi ráðsmaðurinn Indíána á stað til þess að ná í múl- . asna og hesta handa okkur. Jeg sat úti í garðinum og var að lesa og hlusta á hinn yndislega söng fuglaitna, á meðan jeg beið eft ir reiðskjótanum. Þá bar þar að Indíána. Hann læddist inn í garð- inn og afhenti húsfreyju brjef. — Hún var rjett byrjuð að lesa það er hún fór að hlæja. Maður hennar gekk þá til hennar og tók við brjef- inu. En honum fór eins. Hann fór að hlæja. Svo rak hann burtu alla Indíána, sem höfðu safnast þar að og las brjefið upphátt fyrir oss gesti sína. Brjefið var frá sóknar- prestinum og hann átti heima þar uppi í fjöllunum. Það hljóðaði á þessa leið: — Kæri vinur! í gær var jeg að húsvitja hjá hinum villuráfandi sauðum mínum, guð blessi þá, og kom til fátækrar ekkju, sem var ný búin að ala barn. Nú bið jeg yður í nafni mannkærleikans og heilagr ar kirkju að gera mjer þann greiða að vera guðfaðir þessa veslings ekkjubarns, svo að það eigi ekki fyrir því að liggja að deyja óskírt og í synd. Skírnin á að fara fram á fimtudaginn. Jeg vona að þjer gerið mjer þann greiða og nefnið þetta ekki á nafn við nokkurn mann vegna þess að það kemur engum öðrum við en okkur. Þjer megið ekki einu sinni nefna það á nafn við yðar ágætu konu, sem guð blessi ---- Jeg skildi alls ekki hvað hús- bóndanum þætti hlægilegt við þetta brjef, og stamaði einhverju út úr mjer í þá átt. — Jæja, það er — það er vegna þess að presturinn þekkir þessa ekkju mjög vel, sagði hann og strauk tárin úr augum sjer. Og þetta er í fjórða sinn síðan jeg kom hingað að hann hefir beðið mig að vera guðföður að fátæku og mun- aðarlausu barni, sem hann hefir rekist á í sókninni. Hann er mesti kjarkmaður, presturinn okkar. En hann kærir sig ekkert um að kon- urnar í sókninni viti um þetta. Jeg er Argentínumaður-------en samt sem áður, hver getur dulið leynd- armál fyrir kvenfólki? Og hann horfði brosandi á eftir konu sinni, sem hljóp skellihlæj- andi burt. XXIII. Llamadýrin HEILAN dag vorum vjer á ferð yfir brún heiðarlönd. Loftið var heiðskírt og tært. Framundan voru snjótypt fjöll og undir þeim stend- ur þorpið Huancavelica. Hjer á heiðunum eru heimkynni llamadýra. Þar eru þau á beit á- samt alpakka-geitum og sauðfje. Llama er quichua indíánska og þýðir aðeins húsdýr. Áður ®n Evr- ópumenn komu til Perú, var það eina áburðardýrið þar í landi. — Llama og Indíánarnir í Andesfjöll- um eru leyfar fornrar menningar og eiga vel saman. Það eru eins og tvær greinar af sama stofni, sem hafa slegist sar»an og hafa ekki fylgt framþróuninni. Báðir verða að hafast við í fjöllum uppi og eru staðbundnir; báðir bera mótlæti sitt möglunarlaust; báðir eru latir. Llama er ófáanlegur að vera einn á

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.