Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1946, Page 14
234
LEiSBÓK MORGUNBLAÐSINS
EITRAÐUR
SILUNGUR
- BRIDGE -
S: G 3
H: Á K G 4
J: Á D 10 2
L: K 5 2
S: 2
H: 10 9 8 7 6
T: K 7
L: D 9 8 7 6
S: Á D 10 9 5 4
H: 5 3
T: 5 4 3
L: Á 4
N
A
S: K 8 7 6
H: D 2
T: G 9 8 6
L: G 10 3
NÚ í vetur útbjó jeg þraut. til að
sýna tromp-coup. Síðan ætlaði jeg
að birta spilað spil, sem í væri
Grand-coup. Þessi tvö coup eru bæði
mjög skemtileg og glæsileg, þegar
þeim verður við komið. Þetta fram-
kvæmdi jeg síðan, en svo illa tókst
til, að þrautin ruglaðist og úr henni
íjellu auk þess spil. Slíkt getur kom-
ið fyrir og or ekki um að fást. Varð
því að samkomulagi, að þrautin yrði
birt aftur, er þetta í eina sinn, að
til slíks hefir komið, en það var úr
Lesbók frá 17. mars. Síðan var praut-
in birt í því formi, er hún var útbúin
í upprunalega, en síðar greinin og
lausnin.
Það næsta sem skeður, er það, að
tveir bridgemeistaiar á Siglufirði
senda lausn á fyrri þrautinni. Er
iausn þeirra alveg rjett. eins og vænta
mátti úr þeirri átt, en jeg hefi haft
þá ánægju, að fá að spila nokkrum
sinnum við báða. Kemur því í Ijós,
að úr stokkun fyrri þrautarinnar,
kemur önnur þraut, hinni erfiðari.
Þó hin þrautin væri góð, til sinna
nota, þá var fljótfærni, að athuga
þessa stokkun ekki nánar.
Þar sem þessi þraut. er vel þess
virði, að vera athuguð af góðum
spilamönnum, þá ætla jeg að leyfa
mjer, að koma fram með hana núna.
Suður spilar 7 spaða Vestur spilar
út hjarta tíu.
Dönsk kaldhæðni
í DANSKA blaðinu „Börsen“,
sem kom út á þriðja í páskum,
sendur þetta:
— í dag er aftur virkur dagur.
Vjer höjum átt fjóra — og sumir
fimm — yndislega hvíldardaga og
vorblíðu til að endurnœra líkam-
ann og fjörga andann, vjer höfum
notið náttúrufegurðar og hitt góða
vini. En í dag byrjum vjer allir.
Nú erum vjer endurnœrðir á lík-
ama og sál, hraustir og vel fyrir
kallaðir, og góðu skapi til þess að
hefjast handa að nýju.
— í daq hefst ailsherjarverk-
fallið!
Stóra-Bretland er 94,202 fermíl-
ur að stærð, en íbúar Stóra-Bret-
lands eru 47 millj. og 755 þús.
TIL skamms tíma hefir sú trú
lifað hjer á landi að til væri ban-
vænir fiskar í vötnum, öfuguggi
og loðsilungur. Á öfugugganum
snúa allir uggar öfugt og tr hann
því auðþektur, en verra er að vara
sig á loðsilungnum. Á honum er
dálítil loðna og snúa öll hárin fram
og finst það ef menn strjúka aftur
eftir honum. Talið var fyrrum aðt
ýmsir hefði fengið bana af því*að
eta slíka fiska. Einu sinni veiddist
silungur í Gíslholtsvatni (sumir
segja á Hagaleiru) og dóu 7 menn
nóttina eftir að þeir höfðu etið
hann. Sumarið 1643 dóu hjón og
eitt barn þeirra á Steinsvaði í Út-
mannasveit á Hjeraði, af því að
eta öfugugga. Árið 1692 dó ekkja
og 4 börn hennar fullorðin á Gröf í
Eiðaþinghá. Lágu þau öll dauð í
rúmum sínum er að var komið og
sum sprungin. Hjá þeim var sil-
ungur soðinn á diski. Töldu menn
að þau hefðu dáið af því að eta loð-
silung.
Dýrtíð í Darís
MENN kvarta undan dýrtíð í
París. Einn líter af steinolíu kostar
450 franka, kíló af smjöri kostar
5D0 franka, kíló af osti 400 franka,
sykur 250 franka, svínakjöt 350
franka, kjúklingar 340 franka og
hvert egg 16 franka. — Það er alt
dýrt í Frakklandi núna nema frank
inn — kostar 4 aura.
★
Hún (skelkuð): — Ungbarnið
hefir drukkið blekið.
Hann: — Jæja, jeg verð þá lík-
lega að lána þjer sjálfblekunginn
minn.