Lesbók Morgunblaðsins - 08.02.1948, Qupperneq 9
LESJBOK MORGUNBLAÐSINS
69
E. B. Malmquist:
SKÓLAGARÐAR
Vinna í skólagarði.
þurfa að vera í dimmu herbergi eða
á ferð á dimmum vegi til þess að sjá
ljósin ljóma skært. Manstu ekki eftir
því sem barn, að þú fórst út í myrkr-
ið til þess að sjá stjörnumar betur?
Eða þá rjett áður en kveikt var á jóla-
trjenu — hve dimman á ganginum
fyrir utan var indæl — og hvernig
grenitrjeð inni í stofunni ljómaði móti
manni! Og nú skaltu fá augun þín
aftur — hefur hann ætlað að segja
við þig, ef til vill ekki með þeim
hætti, sem þú hefur hugsað og vonað,
Kuisma, heldur miklu fullkomnari
augu, ,en þú hefur mist — augu, sem
geta sjeð HANN, sem er eilífa ljósið.
Og þá skiptir engu, þó að ljós líkam-
ans sje slokknað — ef ljós sálarinnar
er tendrað, Kuisma. Það var þetta,
sem hann vildi segja þjer — gestur-
inn....
Fölt andlit Kuisma snýr að mjer.
Það titrar af eftirvæntingu, af ó-
þreyju, er hann spyr lágt:
— Heldur þú, heldur þú að það hafi
veriö — læknirinn mikli sjálfur, sem
kom?
Jeg þrýsti þjett hönd hans. Blindu
augún hans virðast sjá langt, og yfir
andliti hans hvílir bros. Duglegu, góðu
drengirnir mínir!
Eins og áður göngum við í röð nið-
ur að baðstofunni, þegar kvöldið kem-
ur. Það er kveikt á stórum stjörn-
um yfir höfðum okkar.'Snjórinn skíp
eins og krystall, en hinir blindu sjá
hann ei. Öðru hvoru lyfta þeir höfð-
um sínum til himins. Það er eins og
þeir finni stjörnuljómann á augna-
lokum sínum.. Eins og þeir næmu feg-
urðina og stórfengleikann kring um
sig. Eins og jjpir væru sjáandi þrátt
fyrir alt.
Sigurjón Guöjónsson
íslenskaði.
Rœktunarráöunautur Reykjavíkur,
E. B. Malmquist, hefur mik-
inn áhuga fyrir skólagörðum og
liinum liollu uppeldisáhrifum
þeirra. — Hann hefur kynnt sjer
þetta mál í nágrannalöndunum og
gefiö borgarstjóra skýrslu um
þessar athuganir sinar. Hann hefur
beöiö Lesbók fyrir greinarkorn
þetta, til þess aö láta lesendum
hennar í tje nókkra hugmynd um
tilhögun skólagaröa og hvernig
starfinu og kennslunni er fyrir-
komiö, þar sem slíkir garöar eru
reknir, í skjóli skólanna. — Komiö
mun hafa til oröa aö gera tilraun
meö, aö koma uvp slíkum göröum
hjer fyrir skólaœskuna. Hefur áö-
ur vcriö hafist handa í þessu efni.
En lítið oriö úr framkvœmdum hin
síðustu ár.
VIÐ YL vorsólarinnar vaknar jurta-
gróður af dvala vetrarins og mildari
dagar með sól og gróðurilmi úr grasi
glæðir hvern neista af lífi og vekur
nýar þrár. Framundan er tími bjartra
vona, annríkis, árvekni og ástund-
unar. Vinna við fjölbreytt ræktunar-
störf, sáning, ræktun og hirðing garð-
landsins er holt og þjóðnýtt starf, er
grípur um sig í hugum flestra í vax-
andi mæli, ekki síst unglinganna. —
Hverju einstöku heimili í borgum og
bæjum er oft skorinn það þröngur
stakkur, að börnunum er ekki sjeð
fyrir nægilegu svigrúmi til að athafna
þrá þeirra og sköpunarlöngun fái eðli-
Jurtaplöntun í skólugurði.