Lesbók Morgunblaðsins - 15.02.1948, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 15.02.1948, Blaðsíða 1
RÖDD ÍSLANDS A ÞINGI SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA • • J £ J Framsöguræða Thor Thors Fregnir þær, er i'slenskum blööum bárust af þátttöku hinna islenskit á allsherjarþingi S. þ., fulltrúa á þingi Sameinuðu þjóöanna i New York í haust voru nókkuö slitróttar á meöan þingiö stóö yfir. Lesbókin hefur þvi fengiö til birting- ar rœöur þær, er formaöur hinnar íslensku sendinefndar, Thor Thors sendiherra, flutti á þessu þing% og birtast þær hjer. 26. nóvembcr 1947, í Palestínumálinu Eins og kunnugt er, var Thor Thors, sendiherrd kjörinn fram sögumaöur þeirrar nefndar alls herjarþingsins, er fjallaöi um Palestínumáliö. Hjer með birt- ist framsögurœöa hans, en álit nefndarinnar var mjög löng og itarleg skýrsla. HERRA FORSETI. Jeg leyfi mjer hjer með að leggja fram nefndarálit Palestínunefndarinnar. Hæstvirtir full trúar hafa fengið hið ítarlega nefnd- arálit, og samkvæmt þingvenjum gjöri jeg ráð fyrir, að þeir hafi lesið álitið. Jeg vil aðeins skýra frá því, að starf nefndarinnar hefur verið mjög erfitt og vandasamt, og tekið langan tíma. Nefndin hóf starf sitt 23. sept. og lauk því fyrst í gær, hinn 25. nóv. Nefndin skipti með sjer verkum og skipaði tvær undimefndir. Tillögur nefndarinnar er að finna í skýrsl- unni, og eins og öllum er ljóst, legg- ur meiri hluti nefndarinnar til, að Palestínu sje skipt í tvö sjerstök og sjálfstæð ríki, ríki Araba og ríki Gyð- inga. Það er ekki skylda mín, sam- kvæmt fundarsköpum hjer, að skýra í einstökum atriðum þessar ráðagjörð- ir, nje rökstuðning meiri hluta nefnd- arinnar, nje tillögur minni hlutans. Um leið og jeg legg fram þessa skýrslu, vil jeg vekja athygli á þeirri alvarlegu staðreynd, eins og frá er skýrt á bls. 4, í skýrslunni, að sjer- hver tilraun til sátta á milli aðilanna í þessu máli hefur reynst árangurs- laus. Hinni sjerstöku sáttanefnd, sem Palestínunefndin kaus, var það ljóst, að báðir aðilar treystu því, að þeirra málstaður mundi sigra við atkvæða- greiðsluna á allsherjarþinginu, og þessvegna hefur fram til þessarar stundar ekki verið unt að ná neinum sáttum eða samkomulagi milli aðila. Jeg vil að lokum leyfa mjer að láta í ljós þá ósk, að tíminn og rás við- burðanna megi í ekki alltof fjarlægri framtíð, koma á sáttum, skilningi og samvinnu milli allra íbúanna í Pales- tínu, svo að friður og farsæld megi ríkja í landinu helga. Hver sem verður ákvörðun þessa þings í dag, þá skulum við vona það, að Sameinuðu þjóðun- um megi takast að finna viðunandi, varanlega og heppilega lausn þessa mikla vandamáls, sem nú í dag er eitt af þeim allra erfiðustu, sem hinar Sameinuðu þjóðir eiga við að stfíða. Ræ3a Thor Thors á allsherjarþinginu 29. nóv. út af Palestínu. Á síöasta fundi allsherjar- þingsins skýröi Tlior Thors frá tilraunum þeim, sem gjöröar höfðu veriö til sátta á málinu, og fer hjer á efiir rœöa hans: HERRA FORSETI. í umræðunum í gær voru það þrír fulltrúar — fulltrúi frá Pakistan, fulltrúi frá Iran og full- trúi frá Frakklandi — og í dag full- trúi frá Lebanon, sem mintust á sátta nefnd, sem skipuð var af Palestínu- nefndinni. Þessi sáttanefnd væri skip- uð 3 fulltrúum, formanni Palestínu- nefndarinnar, Dr. Evatt, fulltrúa frá Siam og mjer. Forusta og aðal ábyrgð

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.