Lesbók Morgunblaðsins - 15.02.1948, Qupperneq 9
LESBÖK MORGUNBL’AÐSINS
85
i
MÓTMÆLI REYKVÍKINGA
Þegar frumv. um sölu Batterísins
kom til 1. umr. í Neðri deild, mælti
Jón Jensson á þessa leið:
„Þetta mál hefur verið sótt af
miklu kappi. Það vitum við, og væri
því best að losna við það sem fyrst.
Frv. er líka óþarft, því að þingdeildin
er búin að samþykkja sölu á lóðum
á þessum hluta Arnarhólstúns, ein-
mitt í þeim sama hluta Arnarhóls-
túns, sem þetta frv. fer fram á að
einstökum manni verði seld lóð. Mjer
finnst það sanngjörn krafa, að bæj-
arstjórnin hafi forkaupsrjett, sann-
ir + + A
Jón Jensson
gjörn krafa til þingsins, að það taki
svo mikið tillit til þessa bæjarf jelags,
að það láti það hafa forkaupsrjettinn.
Nú hefur í dag verið lagt fram
ávarp til þingsins frá Reykvíkingum,
með undirskrift á 3. hundrað manna,
sem allt eru borgarar hjer í bænum
og mikils metnir menn, þar sem þeir
skora á þingið að fella þetta frum-
varp og láta hið sama gilda um þessa
lóð, eins og aðrar lóðir í norðanverðu
Arnarhólstúni. — Þetta ávarp frá
Reykjavíkurbæ vona jeg að þingið
álíti ekki lítilsvert. Jeg trúi því ekki
að þingið leggi meiri áherslu á að
verða við ósk þessarar einstöku
konu“. ' .
Lagði hann siðan íi'am rökstudda
dagskrá:
„Með því að deildin hefur samþykkt
lagafrumvarp, sem felur í sjer heim-
ild til að selja einnig þá lóð, er ræðir
um í frumvarpi því, er hjer er til um- svo margir hafi verið búnir að lofa
ræðu, álítur deildin óþarft að fara atkvæði sínu fyrir fram.“
lengra út í þetta mál, og tekur fyrir J
Útgerð Vídalíns
næsta mál á dagskrá".
Þessi rökstudda dagskrá var feld
með 15:4 atkvæðum og var bá þegar
sýnt hvílíkur áróður fyrir málinu
hafði farið fram í deildinni áður en
málið var tekið fyrir.
Það er ekki gott að henda reiður
á því þegar langt er um liðið hvernig
áróðri í þessu máli hefur verið beitt.
En samkvæmt þingtíðindunum má
sjá, að um tvenns konar áróður hefur
verið að ræða, áróður utanfrá á ein-
staka þingmenn og áróður innan
þingsips. Jón Jenssen sagði t. d. í
ræðu: „Mál þetta er sótt með ákaf-
lega miklu kappi, og jeg finn enga
ástæðu til að leyna því. Það eru sum-
ir menn í hv. efri deild, sem hafa ógn-
að þessari deild. Það var maður úr
éfri deild sem kom til mín og sagði
mjer, að það væri 6 menna í efri deild,
sem ætluðu að drepa frv. um vegar-
lagninguna yfir Arnarhól, ef nokkur
hindrun verði lögð fyrir þetta frv.
Og svo hnýtti þessi maður aftan við:
„Þetta segi jeg þjer, til þess að þú
hegðir þjer eftir því“.“
Og Valtýr Guðmundsson sagði í
þingræðu:
„Ef það er mikið kappsmál að fá
lóðina útmælda alveg niður að sjó, þá
er jeg hálfsmeikur, um að eitthvað
búi undir. Vitanlegt er það, að maður
þessarar konu hefur botnvörpuútveg,
og liggur þá ekki fjarri að ímynda
sjer, að hann ætli máske sjálfur að
óyggja þar hafskipabryggju.... Það
er alm«it álit hjer í bænum og enda
víða út um land, að þessi maður hafi,
bæði með • veisluhöldum og öðru, svo
mikil áhrif á þingmenn og æðstu
embættismenn landsins, að hann hafi
þá nálega í vasanum. Jeg tek þetta
fram af því að álitið er svona og jeg
vil gjarna að það sjáist í Þingtíðindun
um. Jeg er sem sagt hræddur um, að
ef þetta frv. verður samþykt, þá muni
það mælast þannig fyrir, að svo og
Til frekara skilnings á þessum um-
mælum, er rjett að geta þess, að það
var á þessu ári öndverðu að útgerð-
arfjelag það, er Vídalin var talinh
fyrir, hóf framkvæmdir sínar. Hafði
það sex togara enska og var fyrst í
ráði að þeir legði afla sinn í land á
Akranesi. En sendur var hingað mað-
.. Jón Vídalín
^ fc.. —
ur til þees að athuga staðhætti, og
leist honum þá best á að fá bækistöð
fyrir útgerðina á Kleppi. Gaf bærinn
kost á lóð þar undir fyrirhuguð mann-
virki, en þau voru hafskipabryggja,
viðgerðastöð, (skipakví), fiskgeymslu
hús, áburðarverksmiðja o. s. frv. En
ekkert varð úr þessum framkvæmdum
og keypti Vídalín (eða útgerðarfje-
lagið) þá verslunarhús Knudzons í
Hafnarfirði.
Helga kona Vídalíns var dóttir J. P.
T. Bryde stórkaupmanns í Kaup-
mannahöfn. Þótti það meðal annars
grunsamlegt að hún skyldi biðja um
að fá Batteríiö keypt til að byggja
þar, en ekki maður hennar.