Lesbók Morgunblaðsins - 24.10.1948, Síða 11
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
455
Á [ • /
Sf b erjamo
Jeg gleSst viS gróSurilm Ó, himinhvelfing skœr
í grœnni berjalaut. þú hrilsar grislum skráS.
Ó, moldargatan mjúk. Og hvrrgi er skýjaskaf.
Ú. móðurjarSarskaut■ Úr moldu grasiS grær; rn skygniS töfrum gljáS.
viS gróinn barminn þinn Og hriSin hýrnar öll
jrg skynja sköpun alh viS himinljómans bros.
og skyldlrik þrss jrg finn. Jrg Irggst i litinn hvamm. í lyng og blómaflos.
Jrg jinn aS allt rr ritt meS berin blá og svört
og rinu marki háS; í brekkum allt í kring.
í bygg'tng einhvrrs rins Hvr fjöllin farrast nær
rr ölhtm vrrum stráS. og fáSminn breiSa' í hring. Maríus Ólafsson•
daginn, sem hann hefur látið hríf-
ast af fegurð hennar að morgni í
stað þess að dorma fram að dag-
málum eins og tíðast er.
- Náttúran heillar gangnamenn.
Nú hlýnar óðum — heiðríkur og
bjartur hausthimininn hvelfist yfir
okkur svo að hvergi sjer ský á
lofti. Smölunin gengur ágætlega.
Óðum fjölgar fjenu, sem við höf-
um á undan okkur. Og nokkru aust
ar en Ilellisá fellur að hrauninu,
rekum við það fram yfir hana og
suður mýrarnar milli Lauffells og
Geirlandshrauns. Fjórir okkar fara
upp fjallið Geirlandshraun og
bægja fjenu austur af því og suður
á við. Þarna uppi er glæsileg útsýn
til allra átta, því engin fjöll eru
nálæg, sem skyggja á. Maður sjer
alla leið vestur til Hjörleifshöfða
og Hafurseyjar, fram af Mýrdals-
jökli og austur til Öræfa, og sanda
flæmin þar á milli, sundurskorin
af jökulvötnunum og brydduð af
hvítum feldi brimsins við strönd-
ina. Þessi mikla sandauðn er ógn-
þrungin og geigvænleg, því hversu
margir hafa þar ekki lífi týnt, bæði
erlendir farmenn við brimströnd-
ina og innlendir ferðamenn í glím-
unni við jökulvötnin. En við dvelj
um ekki lengi við svo dapurlegar
hugsanir, þegar við erum að njóta
þess að horfa yfir landið af Geir-
landshrauni, þar sem það liggur
fyrir fótum okkar, baðað í mildu
skini þessa síðsumardags. En við
erum ekki bara á skemmtiferð og
til að njóta þess, sem fyrir augu
ber. Og hvað mvndi fjallkongurinn
okkar, Skúli á Hunkubökkum, segja
ef hann kæmist að raun um það.
að við værum að eyða tímanum í
að skoða náttúruna í stað þess að
gegna okkar skyldustörfum. Við
höldum í hægðum okkar fram af
Geirlandshrauni. Hjer er fátt um
fje, aðalsafnið er austan við fjallið
og það fer hægt, því að það mundi
fljótt lýast og mæðast, sumarfeitt
í miðdegishitanum ef hratt væri far
ið. Sunnanvert í Geirlandshrauni,
þegar halla fer fram af, heita Stjórn
arbotnar, þar sem áin Stjórn mynd
ast af mörgum lækjum. Þar eru
mörg djúp gil með björtum foss-
um og á milli þeirra skiptast skrið-
ur og moldarrof og hlýlegir lyng-
grónir hvammar, þar sem litbrigði
jarðarinnar eru sjerstaklega fögur
á þessum árstíma. Þegar jeg er að
eltast við kindurnar, þarna eftir gil
skorningunum, óska jeg þess að
mega koma hjer aftur og geta gefið
mjer betri tíma til að skoða allt, og
hver veit nema sú ósk eigi eftir
að rætast.
Nú fer óðum að styttast í áfanga
staðinn Eiritúnaháls, þar sem við
komum á ferð okkar inneftir í gær.
Fjeð rennur greiðlega niður Hurð
arbökin og brekkurnar meðfram
Stjórn, og innan stundar er það
allt komið í byrgið nálægt sælu-
húsinu, þar sem það á að bíða til
morguns, að við höldum smölun-
inni áfram fram heiðar og niður til
rjetta.
Einkennilegar tölur
Talnavísindi er fræðigrein, sem fæstir bera mikið skynfcragð á, en ekki verður
því neitað að oft eru tölur svo einkennilegar, að menn rekur í rogastans. Hjer
er eitt ciæmi, útreiknað árið 1944 þegar styrjöldin var að komast á lokastig.
Churchill Hitler ftoosevelt Mussoline Stalin Tojo.
Fædöur 1874 1889 1882 1883 1879 1884
Aldur 70 55 62 61 65 60
Tók vöJd 1940 1933 1933 1922 1924 1941
Valdat imi 4 11 11 22 20 3
Samtals 3888 3888 3888 3888 3888 3888
Sje vfkomunni deilt með 2 kemur út ártalið 1944.