Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1949, Síða 3
LESBÓK MOliGUNtíLAÐSINS
111
nauðsynleg störf í þjóðfjelaginu
heldur en eldri kynslóðin, sem ekki
iiaut annarar skólagöngu en göng-
unnar til prestsins fyrir fermingu.
Annars er undarlegt ósamræmi í
því, að ríkið heldur uppi kirkju
og klerkdómi, af því að kirkjunni
og starfsmönnum hennar er ætlað
að hafa bætandi áhrif á landslýð-
inn, en þó eru skólarnir yfirlcitt
dregnir undan áhrifavaldi þeirra.
Annað hvort ber að afnema þjóð-
kirkjuna sem óþarfa stofnun eða
nota starfskrafta hennar betur en
nú er gert í þágu skólaæskunnar.
Það varð frægt fyrir nokkrum
árum, að piltur, sem gekk upp til
stúdentsprófs, kannaðist ekki við
að hafa heyrt nefndan Hallgrím
Pjetursson. Þetta er þó aðeins eitt
dæmi þess, að fjöldi unglinga nú
á tímum þekkir betur nöfn er-
lendra filmleikenda en nöfnin á af-
bragðsmönnum sinnar eigin bjóð-
ar og veit betri skil á hjónabands-
flækjum í Hollywood en sögu lands
síns. Á því eiga skólarnir að vísu
ekki beina sök, heldur menningar-
skortur sumra útgefenda blaða,
bóka og tímarita.
Það er fjarri mjer að amast við
því, að hjer rísi upp glæsileg skóia-
hús, eftir því sem efni þjóðarimi-
ar leyfa. En það er kominn tími
tíl að mótmæla því, að vegna for-
dildar í þessum efnum sjeu önnur
menningarmál vanrækt, eins og nú
er gert, að því er snertir heilbrigð-
isstofnanir.
Skólabákn og sjúkra-
húsleysi.
Skortur sjúkrahúsa í þessu l$ndi
er orðinn að bletti á menningu
bjóðarinnar, enn þá ijótari og ó-
geðslegri vegna þess, að á sama
tíma er hugsunariítið ausið fje i
skolabyggmgar, jafnvel fram 'yfír
það, sem nokkur nauösyn kreíur.
Skal jeg nu leitast við aö fmna
þeirr. ort'um st^S.
Síðustu 10- 12 arin hafa verið
reistir í Reykjavík tveir risavaxn-
ir barnaskólar, nýr sjómannaskóli,
sem er 50 sinnum stærri en sá
gamli, stór gagnfræðaskóh og auk
þess eru í byggingu nýr kennara-
skóli og nýr iðnskóli, sem á að
verða 50% fyrirferðarmeiri en sjó-
mannaskólinn.
Á sama tíma hefur ekkert nýtt
almennt sjúkrahús verið reist í
' bænum og mjer vitanlega hefur
ekki verið með opinberum fjár-
framlögum bætt einni einustu
sjúkrastofu við þær, sem fyrir
voru, þrátt fyrir stórkostlega fólks-
fjölgun.
Á lóð Landsspítalans hefur að
vísu verið reist nýtt hús, sem sagt
er að eigi að verða fæðingardeild,
en framkvæmd þess verks minnir
að nokkru leyti á byggingu dóm-
kirkjunnar í Köln, en hún var,
sem kunnugt er, sjö aldir í smíð-
um.
Hreppar ráðstáía fjc
ríkissjóðs.
Víða úti um landið er svipað
hlutfall milli fjárveitinga til skóla
annarsvegar, en sjúkrahúsa lúns-
vegar. Allmargir hreppar liafa
komið sjer upp heimavistarskólum,
scm kosta frá hálfri til Ueilli
miljón eða meira. Þetta getur sam-
svarað 50—100 þúsund króna stofn-
kostnaði á hvert kennsluskylt
barn. Ríkið greiðir % þessa stofn-
kostnaðar og reksturskostnaðinn
að mestu leyti. Það er nú orðið
flestum ljóst, að ekki er hægt að
halda áfram á þeirri braut, að
hver hreppur geti upp á eigin spýt-
ur ráðstafað þannig fje ríkissjóðs
og það langt fram í tímann.
lleimavistarskólar verða scnni-
lega lausnin á fræðsluinálum sveit-
anna, en hvað á hreppur með 5—10
skclpkyldúJn þornym 4Ö gera meo
sjerstakan heimavistarskcla? . Ef
pýjij heíö: ekki
verið hroðað af an alls tillits til
kostnaðar, bæði fyrir ríkið og sveit
arfjelögin, þá hefði það auðvitað
verið rannsakað, hvað hægt væri
að komast af með fæsta heima-
vistarskóla fyrir allt landið og því
síðan verið skift niður í skóla-
hverfi eftir því.
I stað þessa er framkvæmd máls-
ins kastað í hendur sundurlyndra
hreppsfjelaga, þar sem heimsku-
legur hrepparígur situr oft í fyr-
irrúmi fyrir skynsamlegu sam-
komulagi.
Sem dæmi má nefna eina sveit
norðanlands, sem fyrir alliöngu
var skipt í tvö hreppsfjelög,
þegar þar var miklu fleira fólk
en nú. Annar þessara hreppa hef-
ur komið sjer upp heimavistar-
skóla, en hinn hreppurinn, sem
liggur upp til dala og mjög hefur
farið í auðn á síðari árum, svo að
þar eru nú aðeins þrjú skólaskyld
börn, hefur verið ófáanlegur til að
nota heimavistarskóla nágranna-
hreppsins, en heimtar stöðugt sjer-
stakan kennara handa þessum
þremur króum, sem þar eru.
í Austur-Húnavatnssýslu hefur
aftur á móti farið fram sameigin-
leg rannsókn á skólaþörf sýslunn-
ar, en í henni eru átta hreppar ut-
an kauptúnanna. Allir þessir
hreppar hafa eliki nema 20—30
börn á hverju skólaskyldu aldurs-
ári, eða sem hæfilegt má teljast
í einn bekk, og nægir því einn góð-
ur skóli fyrir alla sýsluna. Hún er
að vísu á annað hundrað kílómetra
á lengd, en hvað hefur það að
segja, hvort börnin eru flutt 20—30
km. lengra eða skemra, ef þeim er
á annað borð komið fyrir utan
heimilis?
Sveiflurnar á fjölda skólabarna
einstakra lireppa eftir árabilum
eru oft svo mikíar, að þennavistar-
skojar, bo litlir sjeu, hljóta ööru
hvoru að verca ekki nema halí-
sethir, eí' einn eðf tveir hrepp^r
e.ga að vera sjer um skola. Þanmg