Lesbók Morgunblaðsins - 01.05.1949, Qupperneq 1
mec
í átjett
Hjer birtast greinar eftir ýmsa formenn í fjelagsskap hinna vinnandi
stjetta, í tilefni dagsins, þar sem þeir gera grein fyrir afstöðu sinni
til 1. maí hátíðarinnar, til einingarinnar þennan dag og til verkalýðs-
málanna yfirleitt.
HÁTÍSISDAGU8 VEKKALTDSINS
1. MAÍ
SIGURJÓN JÓNSSON
form. Fjelags járniðnaðarmanna:
Eininff, en ekki logstreita
1. MAÍ er haldinn hátíðlegur af
hinum vinnandi stjettum hvers
þjóðfjelags um heim allan. Þess-
vegna er dagurinn talinn hinn al-
þjóðlegi hátíðisdagur verkalýðs-
ins. Þennan dag á hið vinnandi
fólk að koma saman til þess að
minnast unninna sigra og til þess
*
Sigurjón Jónsson.
að tengjast enn sterkari böndum
festu, vilja og vináttu, svo að
stefna þess í hagsmunamálum sín-
um megi ávalt bæði vera örugg og
markviss.
Þennan dag er nauðsynlegt, að
innbyrðisdeilumál sjeu lögð til
hliðar, svo að fólk með skiptar
skoðanir á hinum pólitísku flokk-
um og stefnum ýmissa landa eða
heimsálfa geti skipað sjer í eina
órjúfandi heild og sýnt á þann
hátt styrk sinn og einingu.
Þetta á að vera dagur alþýðunn-
ar, en ekki hinna pólitísku flokka.
1. maí komum við einnig saman
til þess að sýna, að hver sá, sem
vinnur gegn okkar hagsmunamál-
um, hefur okkur á móti sjer. Dag-
urinn á að vera dagur einingar, en
ekki togstreitu. Kjörorð dagsins á
að vera stjett með stjett, því að
sameinaðir stöndum vjer, en sundr
aðir föllum vjer.
Með stjettarkveðju.
INGIMUNDUR GESTSSON
form. bifreiðastjórafjelagsins
Hreyfill:
Lifi frjáls hugsun, í
frjálsu þjóðfjelagi
1. MAÍ er hátíðisdagur laun-
þega og verkalýðssamtaka um
heim allan. Þann dag sýna sam-
tökin mátt sinn og kraft, sem sam-
tökin ein geta sýnt. Þennan dag
bera þau fram kröfur sínar um
Inginumdur Gestsson.