Lesbók Morgunblaðsins - 12.03.1950, Page 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
*!
149
Þórður Tómasson;
LANDNÁM ÁSGEIRS ÓLEIFSSONAR
MARGT ER á huldu um upphaf og
þróun bygðar undir Eyaijöllurn
svo sem vænta má. Landnámssaga
hennar er að vísu skráð í Land-
námu, en heimildir varðandi bað
eíni, eru íáar og strjálar úr því
að henni sleppir, langt fram eftir
öldum. Tönn tím.ans hefur búið
heldur illa að hinum fornu land-
námsbýlum Eyjafjalla og tveimur
hefur hún gersamlega koflvarpað.
„Ásgeir Kneif hjet maðr, sonr
Óleifs hvíta, Skæringssonar, Þór-
ólfssonar. Ásgeir fór til íslands ok
nam land milli Lambafellsár ok
Seljalandsár ok bjó þar, er nú
heitir að Auðnum“. — Á þann veg
og nokkru gerr þó, segir frá ein-
um landnámsmanni Eyjaíjalla í
Landnámu. Ber sú frásögn með
sjer, að skamma stund hefur býli
hans verið við lýði. Ásgeir seldi
Þorgeiri hinum hörska drjúgan
hlut af landnámi sínu, beggja vegna
Holtsóss og rjeði Lambafellsá þar
mörkum á annan bóginn en Irá á
hinn. Bygði Þorgeir fyrstur manna
á Holti að því, er kunnugt er. Lík-
legt má þykja að írá hafi haft sama
farveg til sjávar á landnámsöld og
nú, um Rimhúsaál, og vckur það
því nokkra furðu, þegar litið er 'til
þessarar frásagnar, að talsverður
hluti Holtstorfunnar liggur utan
Rimhúsaáls og virðist svo haía ver-
ið frá öndverðu. Á því svæði voru
Holtsengjar, Djúpósar og Stóra-
Kelda, aðalstólpinn undir heyskap
Iioltspresta á liðnum öldum og allt
fram um 1800. Á vesturbakka Rim-
húsaáls virðist og hafa vérið -sel-
staða frá Holti og er örnefnið Forna
Sol þar enn við lýði. Ofan Holts-
lands liggja lendur Ásólfsskála og
Ysta-Skála beggja vegna Rimhúsa-
áls og írár og ráða miðanir á kenni-
leiti þar mörkum milli þeirra og
annara jarða, svo sem milli Holts-
lands og Mýrabæa. Vestur frá
Djúpósnum liggja lönd Vestur-
Holts og Lambhúshóls og síðan
Nýjabæjar allt út undir Fornu-
Sandaland og átti Holtskirkja þær
jarðir allar. Skipti Sandlækur, sem
nú kallast Slýlækur, mörkum milli
Holtslands og Fornu-Sanda, cn ut-
an hans átti Holtsstaður stóðhrossa-
höfn vetur og sumar í svokölluðum
Hófrana. Er mjer ekki grunlaust
um, að þessar eignir og ítök standi
í einhverju sambandi við eyðingu
landnámsbýlisins, sem kennt var
við Auðnir og þá helst þannig, að
Holtsverjar hafi keypt lendur bcss.
er það leið undir lok.
Eríitt er að spá í eyðurnar með
það, hvar Auðnar hafi staðið, en
nokkurnveginn víst, að það hefur
verið nálægt sjó. Sumir hafa talað
um Auðnarmela í Gljánni út við
Markarfljót, en gegnir og greind-
ir menn hafa tjáð mjer, samkvæml:
írásögn Auðuns Einarssonar frí
Seljalandi, sem lengi var bóndi á
Helgu-Söndum, greindarkarls, a >
Auðnar hafi staðið á Gljánni til
landsuðurs frá Nýjabæ. Finnasc
munu þar fornar bæjarrústir, sand -
orpnar, en taldar staía frá elstu
bygð Nýabæar, sem að sögn hefu •
verið fluttur þrisvar undan áganyi
sands. Sje staðhæfing Auðuns rjett
væri freistandi að álykta, að Nýi-
bær sje að upphafi býli Ásgeirs og
fcli nafnið óbcint í sjer tjáningu