Lesbók Morgunblaðsins - 25.02.1951, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 25.02.1951, Blaðsíða 10
118' LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ingarhátíð dr. Hannesar biskups Finnssonar, er hafði látist þá um sumarið. Var það Landsuppfræð- ingarfjelagið, sem gekst fyrir henni í sambandi við aðalfund sinn, og mun Magnús Stephensen hafa ver- ið forgöngumaður þess. Er svo tal- ið að það hafi verið hin fyrsta slík minningarhátíð, sem efnt var til hj'er á landi. Var þar mannmargt, um 200 boðagestir, og flutti Magnús Stephensen minningarræðu úr ræðustól skólans, en á undan og eftir voru sungin kvæði, er hann hafði orkt. Að því loknu var minn- ingarathöfninni snúið upp í erfi- drykkju, að gömlum íslenskum sið, og „var kaffi, kaldur matur, púns og rauðvín þar ómælt á borð bor- ið.“ — Mnn-þetta hafa veo'ið hin virðulegasta samkoma er ;ffámi:að þessu hafði haldin verið’ í- Roykja- vík. Eini skóli landsins. Þegar Sigurður Stefánsson bisk- up á Iiólum andaðist, afrjeð stjórn- in að leggja niður biskupsstóf og skólann á Hólum til þess að ijetta útgjöldum af konungssjóði. Eftir. það skyldi aðeins vera einn biskup í landinu og Hólaskóli sameinast Hólavallarskóla. Var stjórninni þá bent á, að þetta væri ekki hægt vegna þess hve hrörlegur sá skóli væri orðinn, nema því aðeins að miklar endurbætur færi fram á honum. Stjórnin kvað mega taka það til athugunar þegar jarðir Hólastóls hefði verið seldar og þannig fengið fje til að efla Hóia- vaRarskóla. Þeir Magnús Stephen- sen og Wibe amtmaður bentu þá stjórninni á það, að Hólavallar- skóli ætti inni hjá konungssjóði 2600 rdl., sem sparast hefði við það, að aldrei hefði verið veitt kennara- embættið í náttúrusögu og hag- fræði. Stjórnin taldi að það fje væri runnið inn x konungssjóð og hann væri orðinn eigandi þess, og mundi það því ekki fást. Sannaðist hjer það er Arinbjörn hersir sagði við Egil forðum: „Er konungsgarð- ur rúmur inngangs, en þröngur brottfarar." Hólastóll var lagður niður með konungsbrjefi 2. okt. 1801 og nú var Hólavallarskóli orðinn eini skóli landsins. Var sú ráðstöfun tal- andi vottur skeytingatleysis stjórn arinnar um mentamál hjer á lancli. „Má kalla að hjer komi nokkuð glögglega fram sú fjármálastefna, sem yfirleitt var fram haldið gagn- vart íslandi og íslenskum stofn- unum af hálfu ríkisstjórnarinnar. Ekkert var talið athugavert við það að níðast á Hólavallarskóla til lítilfjörlegs hagnaðar fyrir ríkis- sjóð. En hins vegar var til lengstra laga yikist undan að gefa þess nokkurn kost, að þaðan væri nokk- ur eyrir lagður til landsþarfa um- fram bráðustu nauðsyn“ (Þork. Jóh.: Saga íslendinga). Skólahúsið á Hólavelli var frá upphafi hrákasmíð og ekki að neinu. leyti samboðið tilgangi sín- um. Því hafði enginn sómi verið sýndur, og viðhald algjörlega van- rækt. Það er því nógu fróðlegt að athuga hvernig það var orðið, þeg- ar dönsku stjórninni fanst sæmandi að þar væri eini skólinn á landinu. Vill svo vel til að einn af skóla- piltum, sem þar var þá, Pjetur Jónsson, síðar prestur á Kálfatjörn, hefur lýst skólanum eins og hann var um þessar mundir (veturinn 1802—1803). Lýsing hans er á þessa leið: „Þegar veður tók. að kólxxa, þá varð kalt 1 skólanuxxi; þegar snjóa tók úti, þá fór líka að snjóa inni í skólanum, íxiður á pilta. Tveir ofn- ar voru í skólahúsinu, en það var ekki til neins að leggja í þá, því að þá hefðu þeir getað hitað upp víða veröld, ef þeir hefði getað vermt upp grindahjall þapn, senx piltar voru settir í. Þeir*voru því ekki notaðir. En smátt og smátt fóru piltar að sýkjast; einn lagðist veikur af öðrum, og þegar kennar- arnir ætluðu inn í skólastofuna, lagðist dragsúgurinn svo þungt á hurðina að innan, að þeir ætluðu varla að geta komist inn í betta sjúkrahús. Einn harðindakaflinn um veturinn stóð í viltu; alla þá viltu treystist enginn kennaranna að kenna sakir kulda, og komu þeir ekki í skólastofuna uns veður varð mildara. En það er af piltum að segja, að „þar kúrir hver, sem hann kominn er, kútveltist og for- mælir sjer“ uppi í skóla-lokrekkj- unum, en þeir, sem hraustastir voru og best þoldu kvalirnar, sóttu þeim mat og nauðsynjar niður í bæinn eða upp um kot, þar sem þeir höfðu kost. Um voi’ið voru margir piltar orðnir horaðir og til- takanlega brjóstmæðnir og það svo, að þegar stormur var úti, gátu sumir ekki gengið til kirkjunnar úr skólanum nema með hvíldum.“ Til er skólaröð í ljóðum frá sein- asta vetri Hólavallarskóla (1803— 1804), og er hún orkt af Páli Jóns- syni skálda. í inngangi hennar eru þessar vísur: Reykvíkinga rjeðu skóla runnar menta ungir byggja, er ástsæld þjentu og alla prýði stunda nentu. Ljenaði nornin lærdónxs öllum líf og tíma, hjet, ef ræktu siðu sóma sæmdum, prís og Hafnarljóma. Allur þorri eftirtalinna yngis- manna keppist hver í kapp við annan kærastur að verða svanna. Hjer fá skólapiltar þaim vitnis- burð, að þeir hafi ekki slegið slöku við námið, og ennfremur er svo að sjá að ekki hafi kveðið mikið að

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.