Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1951, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1951, Page 1
Dómar um Óslóarsýninguna Hákon. Stenstadvold: Aftenposten Islensk list sýnir einarðan þrótt FYRST verður maður hissa á því að til skuli vera list á íslandi. Og sú furðulega staðreynd verður ef til vill til þess að gera menn mild- ari í dómum heldur en ef hjer hefði t. d. verið um franska hst að ræða. íslenska listin sýnir oss grófgerð- an og einarðan þrótt, sem brýst fram í hinum sterku litum og stóru dráttum málverkanna, og þá ekki síður í hinni furðulegu hugvitsemi myndhöggvaranna. Vjer skulum nú líta á málverka- sýninguna og reyna að skilja hvern -ig hinum íslensku málurum hefur tekist að finna sína eigin framsetn- ingu. Þórarinn Þorláksson heitir sá elsti af málurunum, sem hjer eru. Hann lærði í Kaupmannahöfn, og þegar hann kom heim til íslands, reyndi hann að lýsa landslagi af þeim hæfiléikum, sem hann hafði til að bera. En árangurinn varð ekki fullkomlega sannfærandi: Lít- ið bara á málverkið „Hekla sjeð frá Laugarvatni". Það er málað í sama dúr og Skovgaard gamh mál- aði danskar tjarnir, meðan hann dreymdi um Ítalíuferðir. En samt var það nú Þórarinn, sem kendi íslenskum málurum að gera vand- virkniskröfur til sín. Á 1, áratug þessarar aldar var Jón Stefánsson hjá Matisse í París og Ásgrímur Jónsson við nám i Ítalíu. Og báðir fundu þeir aðferðir sem betur hentuðu til þess að út- lista hvað ísland er í raun og veru. Þeir lærðu það, að vilji maður mála það sem er stórfelt og hrjóstugt, þá verður að nota harða liti og stórbrotna drætti. Jóni Stefánssyni kynnumst vjer á þessari sýningu bæði sem Norð- urálfumanni og íslending. Mynd Jón Stefánsson: Sumarnótt.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.