Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1951, Qupperneq 3

Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1951, Qupperneq 3
LESBÓK MOIÍGUNBLADS£NS 143 ljereft gaf gríðarlegan kraft, svo að hinn ljetti svipur hvarf — og þá byrjar hann á hinni nauðsynlegu litasamstillingu, með ýmislega lit- um dráttum. Það htfði líka \trið gi.n .an að sjá teikningar Guðmundar Thor- steinsson og vatnslitamyndir við hhðina á altaristöflunni hans. Því að af þessum myndum fáum vjer rjettan skilning á fjölhæfni þessa sorgumglaða farfugls. Hjer eru „Klassiskt“ hreinar mannamynd- ir, hjer eru „expressivar“ vatns- litamyndir, og hjer eru furðulegar helgimyndir eins og „Sjöundi dag- ur í Paradís“, gerð úr mislitum pappír. Hjer sjáum vjer að hinn þung- henti málari, Jóhannes Kjarval, hefur sjerstaka hæfileika til þess að ná hinum rjetta innrætissvip í teikningum sínum. Þessar teikn- ingar sýna aðeins mannshöfuð. teiknuð með tusch og vatni, dökkar og þungar, en hafa hin sömu ein- kenni og málverk hans að draga fi-am það, sem listamaðurinn einn sjer og veit.' Þar eru á einum vegg trjeskurð- armyndir Barböru Árnason, full- komnar að frágangí. Barbara Árna- son er ensk að ætt og hefur lært í Englandi, og list hennar er fyrsta flokks sýnishorn af því hvernig enskir trjeskurðarsnillingar hafa náð langt í því að þroska þessa list á raunsæan hátt. —0O0— En það eru nú samt sem áður höggmyndirnar, sem eru kjarni ís- lensku sýningarinnar. Og á þessum hríðardögum er sjerstaklega gam- an að sjá þær undir beru lofti. Myndhöggvarar vorir hafa aðallega fylgt þeirri fornu venju, að högg- myndalist eigi að sýna nakta manns -líkama. Qg þegar svona viðrar eins og í dag standa þessi nöktu líkneski með snjöklessui' á hinutu furöu- legystu stöðum. Þ40 t?Ur sínu ó- tvíræða máli um að líkneskjur nak- inna manna úti við, eigi ekki heima nema í hinum sólríku Miðjarðar- hafslöndum. En nú koma listamennirnir fró norðrinu með höggmyndir úr blá- grýti og grágrýti, þá formslist sem þolir öll veður og birtist í merki- legum, furðulegum — já dulrænum myndum. Fyrir framan „Kunstnernes Hus“ stendur „Fiskimaður“ Sigurjóns Olafssonar, sanabland af náttúru- fyrirbæri, sjómerki og mannsmynd. Þótt hún sje höggvin út í einn stein, er engu líkara en þar sje raðað steini ofan á stein, og húu sýnist há þótt hún sje ekki nema rúmur metri. í tröppugangi hittum vjer aðra mynd eftir sama mann og nú er það helgimynd úr lindi- trje, ,,FjöIskyldan“. Þar eru for- eldrarnir eins og súlnabrot en milli þeirra er barnið eins og til prýðis, en er þó sá tengdiliður er heldur súlunum saman. Svo kemur Sigur- jón manni enn á óvart með mynd- inni af móður sinni. Hún er gerð eftir ströngustu raunsæisreglum og frá mínu sjónarmiði hið langbesta listaverk sinnar tegundar á sýning- unni. Og seinast kemur svo manns- mynd höggvin í stein, höfuð Ás- gríms Jónssonar. — Frammi fyrir þessu íestulega og þögla andlit; sem horfir á mann langt innan úr steininum, er jeg viss um að sjá hfandi eftirmynd þess manns, sem myndin er af. Svipaðan stíl finnum vjer hjá Tove Ólafsson í höggmyndum hennar. Hún gætir þess líka að efnið fái að njóta sín, og höfuð höggvið í stein, er steinn. „Tvö höf- uð“ heitir besta mynd hennar. Hún hefur á sjer undarlega þýðan ljóð- rænan blæ, í einfaldleik sínum, og það gefur sterkan svip bæði um form og túlkun, þetta, að höfuðin snúa saman og sameinast í einum steini. Annað viðhorf til höggmynda- listarinnar og máske enn frjálsara finnum vjer hjá Ásmundi Sveins- syni. Þau Sigurjón og Tove freista þess að láta myndirnar renna sam- an í eitt, en Ásmundur leitast við að gefa oss sem víðtækasta hug- mynd um hreyfingu, með millibil- um og gloppum, og með því að láta formin tengjast og tvístrast. í stein- myndum, eins og „Tilbeiðsla" virð- ist hann nolckuð bundinn og óeðit- legur. En fáiö honurn _gott trje, eða

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.