Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1952, Síða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1952, Síða 4
£iaT LESBÓK MORGUNBLAÐSINS r hjara veraldar í allan vetur. Hrak- r fallabálkur okkar hófst á því, að eftir að við lentum hér við Rost- unganes létum við flugvélina reka undan vindinum, meðan bátarnir voru blásnir upp, en legufæri átt- um við engin. Þegar komið var svo nærri ströndinni, að hætta gat ver- ið á að vélin tæki niðri, hleyptum við hjólunum niður til þess að hemla með þeim, en þegar við ætl- uðum að færa okkur kom í ljós, að r hjólin voru orðin föst í sandleðju f og ákváðum við þá að bíða átekta, I unz háflæði væri, en lágsjávað I var þegar við komum. — Við unn- r um svo við uppskipunina, selflutt- um allt draslið í bátunum langt suður með landi og hlóðum því upp, þar sem hæst bar á nesinu. Þetta var alls konar varningur, mat vörur, fatnaður, öl, áfengi, dag- blöð og ýmis konar pakkar með ógreinanlegu innihaldi. Við vonum að ekkert skemmist nema kartöfl- urnar. Þær frjósa auðvitað og eyði- leggjast í nótt. — Eftir að þessu lauk var ekkert að gera annað en að bíða þess að klukkunni þóknað- ist að verða 11, en um það leyti er háflæði í kvöld, og þá — eða aldrei — munum við losna héðan. >— Okkur kólnar, strax og við hætt- um að vinna, því að kuldinn er mjög bitur, en nokkur andvari er og hitinn ekki meiri en svo, að rétt er við fröstmark. Ekki bætir það úr skák, að við erum næstum matarlausir, eigum ekki nema nokkrar dósir af einhverri niður- suðuvöru, og einhver sagði rétti- lega áðan, að sá væri svangur, sem æti þann andskota, en þessu erum við þó að skipta bróðurlega, svo enginn skuli annan aféta. Við skimum upp í hlíðarnar, staðráðn- ir í að drepa hvert það sauðnaut, sem þar kunni að finnast, en þar er ekkert líf að sjá, ekkert nema þessi nöktu fjölL Hér eru engir sjófuglar, engir selir, engin lífvera, nema stelktetur eitt, sem auðsjá- anlega hefir villzt hingað sunnan af íslandi. Hann ráfar steinþegjandi um fjöruna stundarkorn. Auðvitað. Um hvað ætti þessi aumingja skepna að skrafa hér alein og yfir- gefin? Svo hvarf hann okkur, flögraði suður á bóginn. — Við sátum allir steinþegjandi stundar- korn síðan. Allt í einu hrukkum við saman: „Hverjir eru að skjóta hér af fallbyssum?" Þetta var áreiðanlega fallbyssuskot, sem buldi við utarlega í firðinum, svo að bergmálaði í fjöllunum. Við ræðum þetta um stund, en sann- færumst svo um, að hér geti eng- inn verið að skjóta. Þetta hafi trú- lega verið ísjakar að stangast og þannig bylji í, þegar þessir risar reka saman hornin. Svo þögnum við aftur, og eftir það heyrist ekk- ert, sem raski ró okkar, þar sem við sitjum í flæðarmálinu, senni- lega nyrztu íslendingar í heimi þessa stundina.... DÖPUR JÓL Klukkan er nú langt gengin 11. Við skreiddumst inn í flugvélina þegar kólna tók með kvöldinu og höfum síðan látið þar fyrirberast. Ég sofnaði stundarkorn áðan, en vaknaði svo skjálfandi. Bolli er eitthvað að braska við loftskeyta- tækin og segist vera búinn að koma skilaboðum heim um að við höfum strandað. Það er þokkaleg saga. Við verðum ugglaust að reyna að leggja af stað til Danmerkurhafn- ar í nótt, ef ekki tekst að komast héðan í kvöld. Flugvélin frýs nið- ur og næsta sumar koma fimm síð- skeggjaðir strandmenn heim til íslands, ef við drepumst þá ekki í vetur. Náttúrlega verð ég ekki lífs í vor. Ég kemst aldrei lifandi héðan. Það er svo sem alveg auð- vitað. Annars er ekkert um þetta talað og allir þykjast vongóðir um að vel fari, þótt eflaust horfi flest- ir ekki björtum augum fram á við, nema Kristinn. Hann virðist alveg í essinu sínu. „Blessaðir verið þið ekki að hafa áhyggjur af þessu, bræður“, segir hann og flissar. „Þetta er framtíðin. Það verður ekki óhugnanlegt að halda jólin hérna. Ekki verður kvennafarið á okkur í vetur drengir." Svo ekur hann sér og hlær eins og tröll, milli þess, sem hann les einhvern guð- lausan amerískan reyfara. ' k* DAUÐA KYRRÐ Sólin skín ekki framar og nepj- an smýgur í gegn um merg og bein, þegar við lítum út til þess að gá hve hátt sé flætt upp eftir vél- inni. Fjöllin eru að verða bláleit í fjarskanum, og við sannfærumst um að sjóinn fari bráðum að leggja. Við skoðum kortin, til þess að fá hugmynd um hvaða leið eigi að fara héðan, ef við þurfum að yfir- gefa flugvélina. Þar er fá örnefni að sjá. Þó er augljóst að Danmerk- urhöfn muni vera á svonefndu Germaníulandi við Doverfjörð og að austan okkar sé nes, sem ber andlegheitum skírara síns fagurt vitni, því að nafn þess er „Fjöru- tíukílómetranesið“, og urðum við sammála um að nefna víkina, þar sem við erum nú „Dynjanda- sextándaágúststrandvík" til sam- ræmis við nafngipt þessa. Hér er allt kyrrt og hljótt. Jakarnir, sem byltust um og rákust saman áðan, dotta nú úti á firðinum, þar sem þeir mara bláleitir í hinu daufa skini kvöldsins. Var það ekki einhvers staðar hérna, sem Græn- lendingurinn Brönlund lét lífið fyrir 44 árum, síðastur þeirra þriggja, sem hér voru á ferð? Var það ekki hérna, sem hann ritaði í dagbók sína: „Ég kem hingað í hverfandi tunglskini og kemst ekki

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.