Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1952, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1952, Blaðsíða 15
r LESBOK MORGUNBLADSINS r .27 hvort dómar um hann hafa ekki verið felldir heldur snemma, og hvort ekki hafa fram komið síðan upplýsingar, sem hrinda algerlcga dagdómunum um hann. Ótal margt heíir komið í ljós við rannsóknir á sviði rúna og tákna síðan steinn- inn fannst, og margt af því er svo merkilegt, að nú sýnist íull ástæða til þess að telja að rúnirnar á þess- um merkilega steini hafi vcrið rist- ar 1362, eins og þær sjálfar segja. Itilgerðinni fylgja í viðbæti ýmis söguleg skjöl, þar á meðal aírit og ljósmynd af skipunarbréfi Magn- úss konungs til Páls Knútssonar. Þar er og mynd af Kensintonstein- inum, rúnastafróf, gyllinital o. fl. Dr. Thalbitzer fer mörgum við- urkenningar orðum um Hjalmar Iloland, sem manna bezt hefir gengið fram í því að sanna að rún- irnar á steininum sé ófalsaðar. Hann segir að það hafi verið eðli- legt að menn væri fyrst vantrú- aðir á það, þar sem steinninn fannst lengst inni í landi, og eng- inn vissi uin þær mundir er hann fannst, neitt um íerðalag Páls Knútssonar. „En Holand koin með fullnægjandi skýringar á því að allt gæti verið rétt um fundarstað- inn og ártalið 1362. En lengi býr að fyrstu gerð. Sleggjudómar vís- indananna og blaöa um steininn höfðu fest svo djúpar rætur, að eríitt var að hrekja þá. En vegna þess hve margt nýtt hefir komið í ljós, síðan þessi stórmerkilegi steinn fannst, verð ég að hverfa frá minni fyrri skoðun og taka málið til athugunar á nýjum grundvelli. Og það eru eigi að- eins bækur Holands, heldur einn- ig rannsóknir mínar, sem nú knýja mig til þess að horfa á málið frá nýju sjónarmiði. Og þegar á allt er litið fæ ég ekki betur séð en að áletrunin á Kensington steinin- uw hljóti að vera óíölsuð1*. £ Cý(JJ,CUl 4 vio circimo (Lausleg þýðing á víðkunnum amerískum ljóðlínum). í dáðum skylcii iifað, eigi árum; í tilfinningum, töldum stundiim eigi; í liugsun, ckki ardardraetti cinum. Vér tímann skyldum telja í lijartaslögum i trúnað sannleik við og inálstað góðan. Ká liíir æðstu lífl, cr auðgar mest sinn anda, göfgast hjartað slær, — og vinnur vcrkin bezt. KÍCHAKD BECK Mola r UNG móðir var svo varkár vegna heilsu barnsins síns, að liún lofaði ckki neinum að líta á það fyr en það var orðið þriggja mánaða gamalt, og þá þó því aðeins, að gestirnir væri með grysju fyrit vitunum. Sumum af gömlu konunum þótti þetta nokkuð yfirdrifið, en unga móðirin brást þá reið við og sagði að það væri til skammar livað mæður hefði áður vcrið kærulausar um ‘heilsu barna sinna. Eflir nokkra stund sagði hún: — Jeg held að hann sje að taka tönn, en jeg veít ekki hvernig jeg á að ganga úr skugga um það. — O, þreifaðu bara upp í liann með íingrinum, sagði gömul móðir. Unga móðirin varð skelíingin upp máluð þegar hún heyrði þetta, svo að gamla konan bætti við: — Auðvitað verðurðu að sjóða fing- urinn fyrst. —•— í HINU nýa Gyðingalandi er lient gam- an að þvi hvað þýsku Gyðingarnir sje eintrjáningslegir og er um það meðal annars þessi saga. Maður kom að húsi þar sem sýnilegt var að margar íjölskyldur áttu heima. Hann hringdi dyrabjöllu og til dyra kom þýskur Gyðingur. Gestur spurði hvort hann gæti fengið að tala við Ervvin Muller. — Þjer hringduð bjöllunni ekki nema einu sinni, sagði sá þýski. — Já, jeg hringdi einu siiuú. — Jæja, getið þjcr ckki sjcð að lijerna á spjaldinu stendur að þeir sem eiga crindi við Ervvin Mullcr cigi að lningja tvisvar? Haldið þjer að jcg hafi ckki annað að gera cn vera á þönum íyrir hvcrn mann, sem hringir aðeins einu sinni. Og svo skelti hann hurðinni í lás við nefið á gestinum. Nú liringdi gcstur tvisvar, cn hver kcmur til dyra? Enginn annar cn sami Gyðingurinn. — Jeg bið yður auðmjúklcga fyrir- gefningar, sagði gcsturinn, en jeg ætl- aði að hitta Envin Mullei'. — Alt í lagi — jeg er Ervvin Muller. — •— Tvcir nafnfrægir læknar, Billroth frá Vín og Erb frá Ileidelberg, liittust cinu sinni á læknaþingi og deiídu þar um eitthvert vísindalegt atriði. En þar sem það mál varð ekki útkljáð, kom þeim saman um að þeir skyldu skrif- ast á. Billroth skrifaði afar langt brjef og fekk skömmu seinna póstkort frá Erb, cn það var svo illa skrifað að liann gat ekki lesið staf í því. Hann skrifaði því aftur og á mjög kurteis- an liátt bað hann Erb að skriía sjer svo læsilega að hann kæmist fram úr því. Aítur fekk hann póstkort, cn þud fór á sömu léið og áður, að hann gat ekki lesið staf af því, sem þar var skrifað. — Nokkru seinna hittust þeir á öðru læknaþingi. „Það gleður mig að við getum nú talast við aftur“, sagði Erb. „Jeg gat ékki lesið einn einasta staf í brjefinu, sem þjer senduð mjer, og tvívegis hefi jeg nú sent yður póst- kort og beðið yður um að skrifa greinilegar“.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.