Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1952, Side 8

Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1952, Side 8
164 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Hekla séð af Rauðöldum 4. júlí 1947. Hvífa gufu leggur upp af nýu hraun- unum. llöskuldsbjalli (til hægri) er a hvitur eftir snjóél úr gosmckkinum. — (Ljósm. Guðm. Kjartansson). aítur. Þægilegra var að þreifa fyr- ir kolsýruyfirborðinu með logandi blysi. Það slokknaði óðar, er því var dýft í. Kolsýrunnar var leitað, með blysi, um hraunin allt í kring- um Heklu, en fannst ekki nema á 4 stöðum, öllum í Næfurholtslandi. En á þeim slóðum rann hún neð- anjarðar um hraunin undan hall- anum — mjög áþekkt jarðvatni — og streymdi út undir bert loft — líkt eins og uppspretta — undan hraunbrúnum og annars staðar, þar sem staðhættir kröfðust. Útstreymi kolsýruloftsins í Næf- urholtshögunum hélzt allt sumar- ið fram í byrjun októbermánaðar, en siðan hefur þess ekki orðið vart og engin hræ bætzt við í valinn í dauðalágunum. En uppsprettuvatn undan hraununum þar í grennd hefur ekki enn orðið samt og áð- ur. Allt ^umarið 1948 var það mengað af kolsýrunni og fylgi- efnum hennar, sem gerðu það bragðvont, svo að stundum var ó- drekkandi úr lindum, sem áður voru ágætasta neyzluvatn. Eins og vænta mátti, varð kolsýru- vatnið mjög kalkborið (,,hart“) og óhæft til þvotta. En er það var hitað, settist kalkið úr því sem ketilsteinn. Þessi mengun vatnsins minnkaði nokkuð á efstu bæjunum veturinn ’48—49 og einnig síðan. Síðastliðið sumar fannst varla keimur af vatninu, en efnagrein- ingar sýna, að enn eimir verulega eftir af menguninni. 1950 tók að bera á sams konar mengun neyzlu- vatns lengra frammi á Rangárvöll- um, á Keldum í janúar og í Gunn- arsholti í júní. Gísli Þorkelsson, Atvinnudeild Háskólans, annast efnafræðilegar rannsóknir þessa fyrirbæris og hefur efnagreint bæði kolsýruloftið og mikinn fjölda vatnssýnishorna. Fullyrða má, að kolsýruút- streymið sé afleiðing af Heklugos- inu, þó að ekki séu tök á að skýra það hér. En fyrirbrigðið er ein- stætt í sögu íslenzkra eldgosa. Guðmundiur Kjartansson. Nýja Hekluhraunið. Svæði, sem huldust hrauni fyrstu viku gossins, eru merkt dekkst, síðari hraunfloð með stuttum strikum. Farvegur hlaupsins norður af HekJu er merktur oddum eftir straumstefnunni og vikurgeirinu frá fyrsta degí gossins með deplum. H—Hraungígurinn, A=Axlargígur, T—Ipppgigur. — (Teíkning eítir Guðmund Kjartansson).

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.