Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1952, Side 4

Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1952, Side 4
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS [ 440 Ég á heima í Dick Austin er ekki nema 110 senti- metra á hæð, en hann spiarar s?g- samt meðal vor risanna. ★ ÞÚ þarft ekki að vera hræddur við hunda, en fyrjr mig eru þeir jatn hræðilepir og ijón, því að ée er ekki r nema 110 sentimetra á hæð. Oe bú r sýnist risi þegar þú stendur við hliðina r á mér. Ég er sem sé dvergur á hann r hátt, að höfuð og búkur er nokkurn r veginn í meðallagi, en hand’eegir og r fætur örstuttir. Vísindin kalla mig r „achondroplastik" dverg, og þau vita r ekkert hvernig á því stendur að ég er svona. Foreldrar mínir eru eins og fólk er flest. Ég á fjóra bræður og eina systur, og þau eru öll meira en í meðallagi há. Ég er nú 19 ára að aldri og sé um mig sjálfur. Ég vinn hjá útvarpsstöð- inni í Kitchener í Ontario. Mér þykir vænt um starf mitt og ég hef kynnt mér allt sem því við kemur. Ég er ánægður með lífið, þótt ýmis óbægindi fylgi því að vera svona lítill. Ég æski engra sérréttinda og ég reyni að taka með karlmennsku öllu því sem að höndum ber. Dagurinn byrjar venjulega fyrir mér r með harðri viðureign við skattholið. Einhvers staðar uppi á því liggur slifs- r isnælan mín, og ég þarf að ná í hana. r Ef stóll er þarna r.álægt, þá gengur allt vel. En að öðrum kosti verð ég að beita hyggjuviti mínu. Þá dreg ég skúffurnar í skattholinu misjafnlega langt út og nota þær sem stiga. Spegillinn í baðherberginu hangir á vegg miðja leið milli gólfs og lofts. Til þess að geta notað hann, verð ég að skríða upp í vaskinn. Ég sezt á brúnina og get nú haft alla mína henti- semi. r Mér er illa við stólana í veitinga- r húsum. Sumir eru svo háir að ég kemst r ekki upp á þá. Sama máli er að gegna r um hin háu þrep á bílum. Og ég er í f vandræðum að komast áfram í snjó. r Vanalega fæ ég hálsríg af því að r tala við menn. Þá þarf ég að keyra f hnakkann aftur á bak til þess að sjá r framan í þá. f Þegar læknirinn tók eftir því að ég yar frábrugðinn systkinum mínum, Jötunheimum Dick situr í mundlauginni og er að raka sig. sagði hann við móður mína: „Hvernig svo sem þér hagið uppeldi drengsins þá megið þér ekki vorkenna honum og fara öðru vísi með hann en hin börnin. Það verður honum fvrir beztu.“ Móðir mín fór eftir þeirri ráðleggingu. En í skólanum var mér sýnd sérstök hugulsemi. Sætið mitt var hækkað svo að kennarinn gæti séð að ég væri í kennslustofunni. Þá var ég fimm ára. En þegar ég var 12 ára var mér orðið það ljóst að allir jafnaldrar mínir mundu verða helmingi stærri en ég. Stundum segja vinir mínir við mig: „Þú átt gott, því að þú þarft aldrei að kaupa þér dýrari föt en drengjaföt.1' Þar skjöplast þeim. Ég veg að vísu ekki nema 90 pund, en ég þarf föt á við meðalmann, vegna þess að búkur- inn er eins og á meðalmanni. Það eru aðeins handleggirnir og fæturnir, sem eru of stuttir. Ég verð alltaf að kaupa föt á meðalmann, en svo verð ég að stytta buxnaskálmarnar niður í 35 sentimetra og ermarnar í 28 sentimetra. Ég kaupi skyrtur nr. 14 og klippi ermarnar af þeim. Ég hef stundum gert svo lítið úr mér að ferðast fyrir hálft gjald með stræt- isvögnum. Stundum hef ég komizt inn '' á kvikmyndasýningar fyrir hálft gjald, en ekki oft. Dyraverðirnir eru athug- ulli en þeir sem selja aðgöngumiðana. En þegar ég er með stúlku, þá borga ég alltaf eins og fullorðinn maður. Já, ég á vinkonur — alveg eins margar og jafnaldrar mínir. Eg fer á dansleika og mér þykir gaman að dansa. Ein- hvern tíma kemur að því að ég gifti mig oe eignast börn, og þau verða öll rétt sköpuð, því hefur læknirinn lofað mér. Einu sinni var það í samkvæmi að ókunn kona náði mér afsíðis og spurði: ,,Mig langar til að vita hvernig þér finnst þú sjálfur vera í draumum þín- um. Finnst þér þú vera stór og sterkur, eða finnst þér þú vera minni en þú ert?“ Og áður en ég gæti svarað spurði hún enn: „Finnst þér máske að þú sért alveg eins og í vöku?“ „Afsakið,“ sagði ég, „en ég man hreint ekki hvenær mig dreymdi sein- ast.“ ,,Það var leiðijilegt," sagði hún. „En blessaður taktu' eftir því hvað þig drevmir næst og láttu mig vita, sér- staklega ef þú skyldir fá martröð." Margir spyrjá mig hvort mig langi ekki til að vera sem aðrir menn, eða eins og húsbóndi minn orðar það: „Langar þig ekki til þess að vera lang- ur?“ Hreinskilnislega verð ég að neita því. Ég er ánægður með lífið, og hver kærir sig um meðalmennskuna? Eru ekki allir að keppast við að vera öðru vísi en aðrir menn á einhvern hátt? Ég á Fiatbíl og get ekið honum. Ég kann að synda, fara á skautum, leika golf o. s. frv. Það er miklu betra að vera of lítill heldur en of stór. Mér er minnisstæður maðurinn, sem var að gera við línurnar í útvarpsstöðinni hjá okkur. Hann var sex fet og 8 þumlungar og hann rak sig alls staðar upp undir. Honum lá við að tárast þegar ég sagði honum frá hvað rúmt væri um mig í rúminu og að ég gæti tekið sundtökin í venjulegu bað- keri. Hann komst ekki niður í neitt baðker og hann hafði aldrei sofið í rúmi þar sem hann gat rétt úr sér. Við stríddum hvor öðrum. „Þú hefur það fram yfir mig að eiga auðvelt með að gægjast í gegn um skráargöt," sagði hann. „Það er satt,“ sagði ég, „en þú getur gægst yfir öll skilrúm." ★ ★ ★ ★ ★

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.