Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1952, Page 5

Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1952, Page 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 441 Konungur þáði veturvisf hjá íslenzkum bónda Á FYRRA hluta 12. aldar bjó á Staðarhóli í Saurbæ Þorg;'’s Odda- son, höfðingi mikill og mörgum kunnur fyrir deilur þeirra Hafliða Mássonar á Breiðabólstað í Vestur- hópi. Hafði svo til borið á Alþingi 1120, þá er gengið var til dóma og menn þröngdust mjög saman, að Þorgils bar vopn á Hafliða og hjó af honum einn fingurinn, en særði annan. Af þessum atburði gerðust mikil málaferli, sem enduðu með sjálfdæmi, er Hafliði skyldi taka um sárabætur. Gerði hann átta tigu hundraða fyrir áverka, vöru- virt fé, og skyldi Hafliði virða sjálf- ur. „Hann bauð at taka lönd i Norðlendingafjórðungi, gull ok silfr, norrænan varning, járnsmíði, ríflega gripi, þeir er tæki eigi minna en kúgildi, gelda hesta, því at einu graðhesta at merr fylgdi, ok því at einu merhross at hestr fylgdi, ok ekki hross ellra en tólf vetra, ok eigi yngra en þrevett “ Síðan er það orðtak haft, er einn viðstaddur mælti, að „dýrr mundi Hafliði allur, ef svo skyldi hverr limur.“ Þessi sekt var þó greidd þegar í stað, og sættir heldust vel. Svo bar til á Staðarhóli vetur einn, líklega 1125—1130, að Aust- menn nokkrir voru á vist með Þor- gisli bónda. Var sá einn þeirra, er vakti athygli heimamanna sakir mikils yfirbragðs, en eigi vegna hins, að hann væri áburðarmaður og léti mikið yfir sér. Nefndist hann Sigurður Magnússon, en lét ógetið annars um sína hagi. Eigi er þessa atviks getið í sögu þeirra Þorgils og Hafliða, en í söguþáttum, sem Morkinskinna heitir, er stutt frá- sögn, sem lítt hefur verið haldið á loft. Fyrir því er hún rifjuð upp hér. Sigurður þessi, sem reyndar var Sigurður slembir eða slembidjákn, Noregskonungur, var að eigin sögn sonur Magnúss konungs berfætts og Þóru, dóttur Saxa úr Vík. Sig- urður var farmaður mikill, gerði hann ferð sína suður til Rómar og Jórsalalands, og heimsótti þar helga staði. Hann var og löngum í förum um Skotland og Orkneyjar, og stundum landflótta úr Noregi. Er eigi ólíklegt, að í þeim sjóferð- um haíi hann hreppt haívillur og gist ísland með eins vetrar dvöl. Fer nú hér á eftir kafli sá, er grein- ir frá dvöl hans hér á landi. „Einn vetr var hann á Islandi með Þorgisii Oddasyni í Saurbæ. Vissu fáir, hverr hann var. Þat var um haustit, er sauðir váru í rétt reknir ok ætlaðir til skurðar. Ok er þeir hendu sauðina, hljóp einn sauðrinn at hánum, Sigurði, sem hann leitaði þannug hjálpar. Sig- urður rétti hánum hönd sína ok kippir út úr réttinni ok lætr hlaupa í íjallit upp og mælti: „Eigi leita fleiri traustsins til vár en svá, at trausti skal verða.“ —t Þat varð enn um vetrinn, at kona varð sek um stuld. Varð Þorgils henni reiðr ok vildi refsa henni. Húíi hljóp þar til, er Sigurðr var, ok hann setti hana hjá sér í pallinn. Þorgils bað hann fram selja konuna ok sagði, hvat hún hefði til gert. Sigurðr bað henni friðar, „þó hefur hún mitt traust sótt, ok gefit henni upp sökina.“ Þorgils segir, at hún skal víti fyrir taka. Ok er Sigurðr sá, at bóndi vill eigi skipast við bæn hans, hleypur hann upp ok brá sverði ok bað Þorgils til sækja. En er Þorgils sá, at hann vill vígi verja, leizt hán- um maðrinn með miklu yfirbragði ok grunar, hverr vera muni. Lét hann við berast at gera á hlut kon- unnar ok gaf henni frið. Á Staðar- hóh váru fleiri menn útlendir, ok hafði Sigurðr minnst yfirlæti jafn- an. Einn dag, er hann kom í stofu, þá tefldi annarr austmaðr við heimamann Þorgils. Sá var skarts- maðr mikill ok barst allmjök á. Kallaði austmaðr á Sigurð, at hann réði um taflit með hánum, fyrir því, at hann kynni þat sem aðrar íþróttir. Ok er Sigurðr leit á, þótti hánum mjök farit taflit. En sá maðr, er tefldi við austmanninn, hafði særðan fót, ok hafði þrútnað mjök fótrinn. Sigurðr settisk í pall- inn ok tekr eitt strá ok dregr eftir gólfinu, en kettlingar hljópu um gólfit. Hann dregr æ fyrir þeim stráit, þar til kemur yfir fót ís- lendingnum ok nú hlaupa kettling- arnir yfir fótinn, en maðrinn spratt upp ok kvað við, en taflit svarfað- isk. Göra þeir nú þrætumál, hvat hverr hefði. — Þessa er því getit, at Sigurðr þótti nær sér taka bragðit. i Eigi vissu menn, at hann var lærðr fyrr en á þváttdaginn fyrir páska. Þá söng hann yfir vatni með presti. Æ þótti því meira um hann vert, sem hann hafði lengr verit. Ok um sumarit, áðr þeir Þorgils skildu, mælti Sigurðr, at hann skyldi kunnlega senda menn til Sigurðar slembis. Þorgils mælti: „Hvat er þér at hánum langt?“ Hann svaraði: „Ek em Sigurðí

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.