Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1952, Side 13

Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1952, Side 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 449 Kynþættir og erfðir I. Menn ern yíirleitt ólíkir EITT AF því merkilegasta við mannkynið er, að allir menn skuli ekki vera eins. Eins langt og sög- ur ná, hafa verið til stórir menn og litlir menn, sterkir menn og aukvisar, vítrir menn og heimsk- ingjar. Á vissum stöðum á jörðinni eru til svartir menn, gulir menn, brúnir menn og hvítir menn. Hvar. sem farið er um heiminn er hægt að rekast á menn, sem hafa hvassa sjón og aðra, sem eru mjög sjón- daprir; sumir eru litblindir, aðrir finna ekki bragð að sumum efnum,. og ef litið er á fingur þeirra, eða í hvaða blóðflokki þeir eru, þá mun niðurstaðan verða sú, að engir tveir menn eru alveg eins. Svo margbreytilegir eru mennirnir, að þú getur verið alveg viss um, að næsti maður, sem þú mætir á götu, er allt öðru vísi en sá, er þú gekkst fram hjá seinast. Eins geturðu ver- ið alveg viss um, að ef þú ferð í annað land, þá er fólkið þar ekki alveg eins og heimaþjóð þín. Þetta er ákaflega örlagaríkt, því einmitt út af þessum mun hafa ris- ið allar þær styrjaldir, sem þjakað hafa heiminn frá öndverðu. En af þessum mun stafa einnig allar þær framfarir, sem orðið hafa, efnaleg- ar og andlegar. Mismunandi vaxt- arlag og gáfur gera menn hæfa til mismunandi starfa, þannig að sum- ir verða veiðimenn, en aðrir bænd- ur. Þeim getur lent í hár saman, ekki síður en prestum og víking- um, þrælum og húsbændum, því að hver hefir sín hagsmunamál. En þessi munur, sem leiðir til ill- inda, leiðir einnig til þeirrar verk- skiftingar, sem velgengni allra þjóðfélaga byggist á. Ef þið trúið því ekki að það burfi svo marg- brevtilefft mannkyn til að mynda þann heim sem vér lifum í, þá skuluð þér revna að hu<?sa yður hvernig fara mursdi ef allir menn væri eins. Er líklegt að þá væri til búgarðar og verksmiðjur, flugvél- ar og kafbátar, hljómsveitir og vís- indastofnanir? En úr því að þessi mikli munur á mönnum getur haft bæði illar og góðar afleiðingar, þá er ekki úr vegi að staldra við og athuga hvort það sé nú heimurinn sjálfur, sem þessu veldur, eða hvort það er ekki öllu heldur viðhorf vort ' til hans. Vér virðumst jafnan gleyma því, að í insta eðli sínu eru allir menn líkir. Þess vegna berjast f- i* ■» lýðræðisþjóðir fyrir jafnrétti allra manna. En þótt allir hafi jafnan rétt, eru ekki allir eins að heldur. Þegar litið er á heiminn eins og hann er í dag, sjáum vér vandamál- in alls staðar: menn §kiftast í flokka eftir pólitískum skoðunum, siðgæðis skoðunum, trúarskoðun- um — eftir venjum, smekk, efnum og af óteljandi ástæðum öðrum. Ef vér svo óskum að samlagast slíkum heimi, þá verðum vér að skilja hvað slík margbreythi þýð- ir, af hverju hún stafar, hve lengi hún muni standa, hvert af þessu muni geta ráðið örlögum vorum og hvort nokkrar líkur sé til þess að hægt sé að breyta eða sigrast á einhverju af þessu. Sérstaklega þurfum vér að rannsaka hvað af þessu er meðfætt eða tekið í arf, og hvað stafi frá uppeldi og þeirri fræðslu, sem menn fá, eða ein- hverju öðru, sem hægt er að breyta. Þetta er auðvelt að skýra með einföldu dæmi. Einn er sá munur á mönnum, er þeir hafa tæplega veitt eftirtekt. Um 70% af mönnum finna ramt bragð að daufri efnablöndu, sem nefnd er „phenvl-thiocarbamide“ (skammstafað PTC), en 30% finna ekkert bragð að henni. Þessi mis- munur er arfgengur ög það er ekki kunnugt að hann geti stafað af neinum utanaðkomandi áhrif- .... um. Setjum nú svo að PTC sé notað til sótthreinsunar í drykkjarvatn einhverrar borgar, þar sem enginn hefir heyrt þess getið,, að sumir finni bragð að því, en aðrir ekki. Þegar kvartanir koma um að vont bragð sé af drykkjarvatninu, er sér- fróður maður sendur til að athpga þetta. Þessi maður finnur ekkert bragð að efninu og þess vegna seg- ir hann í skýrslu sinni að kvartan- irnar hafi ekki við nein rök að styðjast og sé aðeins sprottnarv af hótfyndni eðá illgirni. En þetta gerir vatnið ekki bragðbetra í munni þeirra, sem finna keiminn af PTC og hafa kvartað, og út af þessu rísa svo deilur, sem skifta borgarbúum í tvo andvíga og harð- vítuga flokka. Það endar með því, að almenn atkvæðagreiðsla fer fram. Þar sigra þeir, sem höfðu kvartað, vegna þess að þeir voru í miklum meirihluta (70%) og þá er hætt að blanda efninu í drykkj- arvatnið. En minni hlutinn, þessi 30%, sem ekki finnur neitt bragð að efninu, er sáróánægður. Hann telur meiri hlutann hafa beitt gjörræði og nú vofi sá voði yfir borgarbúum að sýkjast af vatninu. Óánægjan get- ur orðið svo mögnuð að hún brjót- ist út í ljósum loga, og minni hlut- inn reyni að kúga meiri hlutann með valdi. . . ^

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.