Lesbók Morgunblaðsins - 11.01.1953, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 11.01.1953, Blaðsíða 1
1. tbl. XXVIII. árg. ffíjDrðtmMaíis ójis Sunnudagur 11. janúar 1952 - METVEIÐI - VIÐ Grundarstíg í Reykjavík er bakhús, sem einu sinni hét Sílóam og var þá trúboðshús. Nú er það nafn flestum gleymt og húsið um- kringt öðrum byggingum svo að enginn tekur eftir því og fáir vita að það er til, aðrir en þeir sem þar búa og kunningjar þeirra. Þarna býr Sumarliði Betúelsson smiður. Hann er fæddur og upp alinn að Höfn við Hornvík á Horn- ströndum. Þar bjó faðir hans um 35 ára skeið og kom þar upp 12 börnum og eru 11 þeirra enn á lífi. Þá var öðru vísi um að litast á Hornströndum en nú, er byggðin er öll komin í eyði. Þá var fjöldi fólks á hverjum bæ, harðgert fólk, sem stundaði sjósókn af kappi, sótti egg og fugl í björgin og rak allmik- inn landbúnað samhliða. Lífsbar- áttan var hörð og ekki heiglum hent, en það var eins og náttúran sjálf herti fólkið frá blautu barns- beini til þess að það gæti boðið öllum örðugleikum byrginn. En upp úr fyrri heimsstyrjöld- inni fer að koma los á unga fólkið. Það helt að betra væri að vera annars staðar, en þarna í fásinninu. Það fór að tínast burtu, og þegar sá straumur var byrjaður varð hann ekki stöðvaður. Æskan hvarf Sumarliði Betúelsson (Teikning eftir Ríkarð Jónsson) gjörsamlega úr heimahögum jafn- óðum og hún hafði náð nokkrum þroska. Eftir sat eldra fólkið. Og eftir því sem árin liðu reyndist því um megn að standa í þrek- raunum Bjargræðisvegum var og þannig háttað að þeir voru fólks- frekir. Var því sýnt að hverju fór.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.