Lesbók Morgunblaðsins - 11.01.1953, Qupperneq 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
3
Kort af Hornvík á Hornströndum. Húa er á milli Hælavíkurbjargs og Horns.
Þarna voru áður þrjár jarðir: Korn austan við víkina, Höfn fyrir botni henn-
ar vestast og Kekavík út með víkinni að vestan, fyrir norðan Hafnarfjall.
allir trjónum upp í sandinn. Kom
þá heldur en ekki vígamóður í
Sumarliða og fannst honum nú um
að gera að vera sem hraðvirkastur
við að stinga hvalina og bana þeim.
Vissi hann þá lítt hvað tíma leið,
nema hvað hann varð þess var að
óðum fell út og grynnti þar sem
hvalirnir lágu. Lét hann nú hendur
standa fram úr ermum og lagði
hvalina með ljánum hvern af öðr-
um rétt aftan við bægslin, en þeir
blésu blóði og lömdu sjóinn með
sporðunum, svo ekki var hættu-
laust að vera þarna inni í þvög-
unni. Jókst þættan og mjög eftir
því sem út fell og þegar hvalirnir
lágu á þurru, lömdu þeir sporðun-
um svo að möl og sandur þyrlaðist
hátt í loft og lamdi grjóthríðin
Sumarliða og var nú sýnu verra að
íá blóðugan sandinn framan í sig
lieldur en sjógusurnar áður.
Hvalirnir lágu svo þétt, að rétt
var hægt að ganga milli þeirra og
var því enn hættulegra að fást við
þá þess vegna, er margir veifuðu
og slógu sporðunum í senn. Svo
háir voru hvalirnir þar sem þeir
lágu þarna á þurru, að Sumarliði
var sem í sjálfheidu á milli þeirra.
Varð það því oft fangaráð hans, til
þess að komast undan sporðaköst-
unum, að sveifla sér upp á næsta
hval og renna sér niður af honum
hinum megin. Var þá oft mjótt
milli lífs og dauða, því að ekki hefði
sagt af Sumarliða ef einhver hval-
urinn hefði komið á hann höggi
með sporðinum. Telur Sumarliði
að það hafi verið lán að hann var
þarna einn manna, því að ef íleiri
hefði verið þarna saman í vígamóð,
mundu þeir hafa þvælzt hver fyrir
öðrum og ekki gætt nauðsynlegrar
athygli, né orðið nógu viðbragðs-
fljótir að íorða sér undan sporða-
köstunum.
Sumarliði gekk á röðina og hafði
snör handtök. Hann helt um þjóið
á ljánum og lagði honum á kaf í
hvalina hvern af öðrum, en kippti
honum jafnskjótt að sér. Hafði hon-
um ósjálfrátt heppnazt að finna
bezta höggstaðinn á þeim, lagði þá
alla í hjartastað svo að dauðastríð
þeirra og fjörbrot stóðu ekki nema
stutta stund. Ljárinn var stinnur,
oddmjór og hvass og hið bezta vcpn
í þessum svaðilförum. Er svo ekki
að orðlengja það að þarna réð
Sumarliði aleinn niðurlögum allra
hvalanna. Að því loknu fann hann
fyrst að hann var orðinn dauð-
þreyttur og móður. En hann hafði
Bærinn Höfn við Hornvík. Jöröin er nú í cyði. en Slysavarnafclag kvenna
hefur keypt ibúðarhúsið fyrir skipbrotsmannaskýli. í baksýn á myudinni sést
Kálfatindur, sem er suuuan við llorubjarg.