Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1953, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1953, Page 1
Löggilding á fyrstu skrá safnsins: ,.Bók þessi aS stærð 82 — áttatíu og tvö — arkarblöð, gegnumþrædd og innsigluð með innsigli Stiftamtsins, lög- gildist hér með sem Dagbók Forngripasafnsins í Reykjavíkur kaupetað. — Stiftamtmannshúsi þann 24. júlí 1864. Th. Jónasson“. — Stiptamtmannshús kallast nú Stjórnarráð. Þórður Jónasson háyfirdómari var þá settur stiftamt- maður. Uppruni NÍUTÍU ÁR eru nú síðan Þjóð- minjasafnið var stofnað. Áður höfðu forngripir verið sendir úr iandi, ýmist til Oldnordisk Muse- um í Kaupmannahöfn, eða seldir og gefnir erlendum ferðamönnum, er hingað lögðu leið sína- íslend- ingar voru sjálíir gjörsneyddir á- huga fyrir því að varðveita þessa gripi og höfðu ekkert dálæti á þeim. Þá risu upp tveir mætir menn, Sigurður Guðmundsson málari og Helgi Sigurðsson á Jörfa (síðar prestur á Melum) og ýttu svo ræki- lega við þjóðinni að hún rumsk- aði og áttaði sig á því, að þetta mætti ekki lengur ganga. Verður hér nú í stórum dráttum rakinn aðdragandi að stofnun safnsins og birtar lögeggjanir þeirra Sigurðar og Helga. Sumt í þeim á erindi til íslendinga enn í dag, því hörmu- legt er hvað þeir eru tómlátir og kærulitlir yfirleitt um fornminjar sínar. Á hverju einasta ári fer hér meira og minna til spillis af grip- um, sem bezt væri komnir í Þjóð- minjasafninu. Þetta er handvömm, og er hugsunarleysí og kæruleysi um að kenna. Vitað er, að fátt er nú orðið um mjög gamla gripi í eígu, einstakra manna. En fleira á heima í safninu en margra alda gamlir gripir. Hver gripur verður forngripur um leið og hætt er að nota hann í daglegu lífi. Á þessari öld hefir aragrúi gripa horfið úr notkun, og þetta eru orðnir forngripir um leið, vitn- isburður um menningu þjóðarinn- ar og breytta lifnaðarháttu á þess- ari öld, og ómetanlegur hlekkur í hinni táknrænu menningarsögu, sem Þjóðminjasafnið er. Þar • til má telja allskonar búsáhöld úr skemmu, smiðju, fjósi, búri, eld- húsi, baðstofu o. s. frv. Þessa gripi má ekki ónýta, þeir eiga að fara í Þjóðminjasafnið. Þegar menn skilja þetta, þá finna þeir eflaust að hvatningarorð þeirra Sigurðar og Helga eru einnig til þeirra töl- uð, og taka vonandi brýningunni.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.