Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.1953, Page 8
494
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Margrét Jóhannesdóttir:
Sumarfrí
ÝMSIR brjóta heilann um hvernig
þeir eigi að verja sínu dýrmæta
sumarfríi og þannig var með þá,
sem þessar línur ritar. Fyrst datt
mér í hug að fara vestur á Horn-
strandir með tveimur kunningj-
um, næst langaði mig í „síldina á
Siglufirði“ — því eins og postul-
inn Páll sagði á maður að reyna
og prófa alla hluti — en að lokum
sló því niður í hugann, að ég skyldi
kynna mér utanlandsferðir hjá
fé til að endurbæta prentsmiðjuna
svo, bæði að áhöldum og letri, að
það sem í henni yrði prentað, gæu
nokkurn veginn samsvarað kröfum
þeim, sem sanngjarnlega má gera
til slíkrar prentsmiðju á vorum
dögum, og það er ætlandi að ís-
lendingar taki eftir því, að útlit
og frágangur á bókum, sem hér
eru prentaðar, fer heldur batnandi
en hitt, að svo miklu leyti sem
prentsmiðjan á hlut að máli. En
sé svo að prentsmiðjan hafi við-
leitni á að vanda störf sín og taki
framförum, þá er vonandi að lands-
menn leggist allir á eitt til þess að
þjóðstiftun þessi megi vinna land-
inu sem mest til gagns og sóma“.
Síðan er skýrt frá því hvað
prentun kosti þar: Fyrir örk í 12
blaða broti 7—9 rdl., fyrir örk í 3
blaða broti 7—8 rdl., og fyrir örk
í stóru 8 blaða broti 11—14 rdl. —
Ekki er þess getið við hve mörg
prentuð eintök þetta verð er mið-
að, en sennilega 500, því að á eftir
segir að sé prentað 2, 3 eða 4
hundruð þá sé prentunarkostnaður
minni, en aftur meiri sé mjög mik-
ið prentað. Frh.
í London
Ferðaskrifstofu ríkisins. Og sjá:
Þar stóð til boða 18 daga ferð til
Londonar og Parísar, að vísu fyrir
drjúgan skilding, en hvað kostar
ekki peninga nú á dögum — og þar
með var afráðið að ég færi nú
einu sinni í reglulegt lúxusflakk
út um heim.
Ileilsað með sckkpípu
Hekla sigldi frá Reykjavíkur-
höfn í glaða sólskini að kvöldi hins
1. ágúst s.L með okkur 22 sem ætluð
um til London og Parísar og marga
aðra og kastaði ekki akkerum fyr
en í Glasgow að morgni hins 4.
ágúst. Sekkjapípuspilari í Skota-
búningi tók á móti okkur, spilaði
sama lagið a. m. k. í hálfa klukku-
stund; það var gaman að sjá hann
og heyra. Og gamanið hélt áfram
— okkar ágæti fararstjóri, Ingólf-
ur Guðbrandsson, sá fyrir því.
Veður var líka hið ákjósanlegasta
yfirleitt á öllu ferðalaginu, nema
hvað rigndi ofurlítið meðan við
sigldum inn Clydefjörðinn og síð-
asta daginn sem við vorum í Glas-
gow.
Við fáum nú ágæt tveggja
manna herbergi á Royalhóteli í
Glasgow og gott að borða, en eyð-
um síðan deginum við að skoða
í búðarglugga og versla eftir efn-
um og ástæðum. Um kvöldið sjá-
um við kabarettsýningu.
I brúðhjóna-smiðjunni
Kl. 9 að morgni hins 5. ágúst
leggjum við af stað í langferðabíl
áleiðis til London, en þangað er
um 400 mílna leið. Það er langt-
um skemmtilegra að ferðast meó
bíl heldur en með járnbraut, því
og París
þá getum við skoðað og dáðst að
landslaginu, en víða er fallegt á
Bretlandseyjum og vel ræktað.
Eftir nokkurra klst. akstur, fáum
við ágætan miðdegisverð í Gretna
Green, Gretna Hall. Sá staður er
á landamærum Skotlands og Eng-
lands og hafði það sér til ágætis
áður fyr, að hjónaefni gátu látið
gefa sig þar saman án mikillar
fyrirhafnar. Fór sú gifting fram
í smiðju. Smiðjan stendur enn og
steðjinn og hamarinn er á sínum
stað. Brúðarslæðgn og hattur brúð-
gumans er enn við líði og meira
að segja vagninn, sem brúðhjónin
óku í. Tvennt af okkar samferða-
fólki notaði því tækifærið og lét
pússa sig saman í smiðjunni, en
sambúðin varð skammvinn því
brúðguminn stakk af þegar við
komum til Lundúna.
Segir nú ekki af ferðum okkar
fyrr en við komum til (gömlu)
York, en þar var það sem Egill
Skallagrímsson orti kvæðið „Höf-
uðlausn" forðum. Gistum við þar
í veitingahúsinu Dean Court, og af
því við þurfum ekki að leggja af
stað fyr en kl. 11 morguninn eft-
ir, notum við tímann til að skoða
dómkirkjuna, sem er merk og
mikil bygging frá árunum 1200—
1472, og göngum síðan að gamni
okkar eftir borgarmúrunum sem
Rómverjar byggðu fyrir Krists
burð.
Öldungur villist
Svo leggjum við af stað aftur í
langferðabílnum og það er glatt á
hjalla, ferðaiólkið er á ýmsum
aldri eða frá 16 til 80 ára. Sá átt-
ræði er bóndi norðan úr Eyja-