Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1953, Qupperneq 1
39. tbl.
Sunnudagur 4. október 1953
XXVIII. árg.
<5 ©
cin
(j. ^tenli
ephanóóon
Norna-Gestur nýrrar aldar,
niðji Óðins, Þórs og Freys;
skáldið, hetjan Hávamála
hátt á fornum grunni reis.
Snorra og Egils tungutakið,
tignarmerki íslendings,
var hans bjarta bernsku gullið,
blikið skærast sjónarhrings.
Skapanornir Skuldardóminn
skráðu yfir vöggu hans:
Þig skal bera í þunga strauma
þjóðahafsins utanlands.
Þú skalt vinna hörðum höndum,
herfa og plægja landnámssvörð.
Festa svefn að ferðalokum
fjarri þinni móðurjörð.
Nornir veittu bölva bætur:
Birta í þína útlegð skín
heiman að frá hörpu þinni
Hún er vöggugjöfin þín.
er
1853
3. oltóL
1953
Stephan G. Stephansson
Hennar strengja helgidómur,
heiðrík trú á frjálsa menn,
víkkar sjón þíns víkingsanda,
vit og drenglund hljóma í senn.
J V '
Yfir haf í heimalandið
hljóminn báru ljóðin þín.
ísland heyrði í hörpu þinni
hetjukvæðin fornu sín.
Heyrði Þór með þungum Mjölni
þursa og jötna berja lið.
Aldrei bauðst þú einvaldsherrum
aðstoð þína, sætt né frið.
Maríus Ólafsson.
1
f
(
1
1
f