Lesbók Morgunblaðsins - 09.05.1954, Side 10
326
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Fl.iótshlíð. Hesturinn beið bana sam-
stundis, en maðurinn, Bjarni Sigurðs-
son frá Hestlæk. var fluttur stórslas-
aður í Landspitalann og þar anclaðist
hann (13. og 21.)
Fjögurra ára telpa varð fyrir bíl í
Hafnarfirði og fótbrotnaði (27.)
Fjögurra ára telpa varð fyrir bíl í
Reykjavík og beið bana (28.)
MENN' OG”MÁLEFNI ’
Guðmundur Jóhanr.sson var kosinn
heiðursfélagi Barðstrendingafélagsins á
10 ára afmæli þess (1.)
Edward B. Lawson, srm verið hefir
sendiherra Bandaríkjanna hér á landi
í rúm fjögur ár, var nú skipaður sendi-
herra í ísrael (3.)
Svertingjastúlka frá Gullströndinni
í Afríku kom hingað í boði nokkurra
skólastúlkna í Gagnfræðaskóla Aust-
urbæar (11.)
Fulltrúar íslands í stjórn Alþióða-
sambands þingmanna voru kosnir
Gunnar Thoroddsen og Hermann Jón-
asson. í stjórn þingmannasam-
bands Norðurlanda voru kosnir:
Gunnar Thoroddsen, Jónas Rafnar,
Bernhard Stefánsson og Haraldur Guð-
mundsson (15.)
Hörður Bjarnason skipulagsstjóri
var skipaður húsameistari ríkisins
(21.)
Þrír íslendingar fóru til Skotlands
með 8 reiðhesta og reiðhestaefni, og
verða um hríð við tamningaskóla
brezka hersins í Newtonmore (22.)
Séra Eirikur Stefánsson á Torfa-
stöðum í Biskupstungum baðst lausn-
Svcrtingjastúlkan sem kom til íslands.
ar frá embætti. Hann hefir þjónað
Torfastöðum í rúm 48 ár (28.)
Magnús Már Lárusson prófessor tók
sæti í Skálholtsnefnd í staðinn fyrir
séra Hálfdan Helgason (30.)
ÍÞRÓTTIR
Gísli Halldórsson var endurkjörinn
formaður íþróttabandalags Reykjavík-
ur (1.)
Færeysku bridgemennirnir fóru
heimleiðis. Höfðu þeir keppt í Reykja-
vík, Selfossi, Akranesi, Hafnarfirði og
Keflavík (9.)
Skíðalandsmót íslands fór fram í
tvennu lagi að þessu sinni. Var fyrst
keppt í norrænum greinum í Siglu-
firði, en síðan í Alpagreinum hér syðra.
Það þótti ekki heppilegt að tvískifta
mótinu.
Viðavangshlaup ÍR fór fram á sum-
ardaginn fyrsta. Þar sigraði sveit frá
UMF Eyfirðinga með 12 st. Ungmenna-
og íþróttasamband Austurlands fekk
13 stig, ÍR 24 stig og UMF Keflavíkur
35 st. (24.)
Drengjahlaup Ármanns fór fram á
sumardaginn fyrsta og sigruðu þar
sveitir Ármanns (27.)
íslandsmót i badminton fór fram 17.
og 19. og kepptu þar 4 félög. Tennis-
og badmintonfélag Reykjavíkur hlaut
5 heiðurspeninga, en Stykkishólms-
menn þrjá (29.)
LISTIR
íslenzk listsýning var haldin í Kaup-
mannahöfn í byrjun mánaðarins og
síðan flutt til Árósa. Fékk hún hina
lofsamlegustu dóma.
Jóhannes Jóhannesson hafði mál-
verkasýningu í Listvinasalnum (4.)
Guðrún Á. Símonar óperusöngkona
kom til landsins og hafði söngskemmt-
anir bæði í Reykjavík og á Akureyri
og fékk ágæta dóma.
Benedikt Gunnarsson hafði mál-
verkasýningu i Listamannaskálanum
(15.)
Jóhannes Geir Jónsson hafði mál-
verkasýningu í Listvinasalnum (24.)
Gerd Grieg leikkona kom hingað til
þess að stjórna sýningum á „Villiönd-
inni“ eftir Ibsen. Frumsýning var í
Þjóðleikhúsinu 29.
FLUGMÁL
Loftleiðir hafa tekið á leigu milli-
landaflugvél og nefnist hún „Edda“ og
verður í förum yfir Atlantshaf (4.)
Flugbjörgunarsveit var stofnuð af
15 mönnum í Vík í Mýrdal (6.)
Flugfélag íslands ætlar að fjölga
mjög föstum flugferðum um landið í
sumar (30.)
GJAFIR
Hreppsnefnd Helgafellshrepps á Snæ
fellsnesi, sem er einn með minnstu
hreppum, hefir gefið 1000 kr. í endur-
reisnarsjóð Skálholtsstaðar (7.)
íslenzk endurtrygging gaf Dvalar-
heimili sjómanna 10.000 kr. til minn-
ingar um Sigurjón Á. Ólafsson al-
þingismann (29.)
Þorbjörn Jónsson í Reykjavík og
kona hans Svanhildur Jóhannsdóttir,
sem bæði eru Breiðfirðingar, hafa gef-
ið 50.000 kr. stofnsjóð björgunarskútu
fyrir Breiðafjörð (30.)
LANDBÚNAÐARVÖRUR
Þegar í öndverðum mánuðinum mátti
svo heita að allt kindakjöt væri upp-
selt hér í landi og lítið til af öðru
kjöti. Vegna þessa kjötskorts, sem staf-
i