Lesbók Morgunblaðsins - 01.05.1955, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 01.05.1955, Blaðsíða 4
' 240 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS f inni er notað við efnagreiningu lofttegundum. BYGGINGAREFNA- RANNSÓKNIRNAR Er blaðamennirnir voru í heim- sókn í Atvinnudeildinni komu þeir í byggingarefnarannsóknarstofu deildarinnar, en hún er búin ýms- um dýrum og vönduðum tækjum, er notuð eru við prófanir á alls- konar byggingarefnum. Á mynd nr. 4 stendur Haraldur Ásgeirsson við tæki eitt, sem notað er við styrkleikaprófanir ýmissa bygging- arefna, t. d. járns, sem notað er í járnbenta steinsteypu. Prófanir á bygginarefnum eru að sjálfsögðu hinar margbreytilegustu eftir því sem byggingarvörurnar verða fjölbreytilegri. RANNSÓKNIR Á STEYPUEFNI Ein sú rannsókn, sem algengt er í þessari grein að framkvæma, er mæling sýrustigs steypuefna. Ofi kemur það fyrir að sýnishorn eru send Iðnaðardeildinni, sem reynast á svo menguð, að steypan verður frá upphafi hálf ónýt og stafar af mold- arsýrum. Lengi hafa Reykvíkingar verið í vandræðum með malbikun í bæn- um. Nú hefur Iðnaðardeildin tekið það mál upp til rannsóknar og feng- ið hentugt tæki til prófana á mal- biksblöndum. Er þess að vænta að möguleikar slíkra prófana verði hagnýttir til hins ýtrasta af þeim aðilum, sem þar eiga hlut að máli. Eitt af mörgum viðfangsefnum er byggingarefnadeildin hefur tek- ið til meðferðar, er rannsókn á skemmdum á steyptum þakbrúnum hér í bænum og hafa menn komizt þat að markverðum niðurstöðum. BERGFRÆÐIN NAUÐSYNLEG M. A. VIÐ MEIRIHÁTTAR MANNVIRKI Jarðfræðirannsóknir Iðnaðar- deildarinnar er starfsvið Tómasar Tryggvasonar. Hann er bergfræð- ingur að mennt og hefur verið starfsmaður Atvinnudeildarinnar frá því á árinu 1946. Hann mun vera fyrsti lærði bergfræðingurinn hér á landi. Lauk hann námi við Háskólann í Uppsölum. Var lær- dómssvið hans bergfræðin að nokkru leyti óplægður akur áður en hann kom, en til þess að hafa frjálsari hendur í íslenzkri berg- fræði var fyrsta skilyrði að menn viti hvaða bergtegundir eru hér til-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.