Lesbók Morgunblaðsins - 01.05.1955, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 01.05.1955, Blaðsíða 8
244 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Ingolfur Davíðsson: Konungur grasafrœðinganna ÍZ OMIN er út á ensku skemmtileg bók um Linné, eítir enska konu Norah Gourlie. Linné heíur hlotið einna mesta frægð allra grasafræðinga. Hann fæddist á prestsetri í Smálöndum í Svíþjóð árið 1707 og var af bænda- og prestaættum. Nafnið Linné (Linnaeus) mun vera dregið af linditré einu miklu og æfagömlu, sem óx við ættaróðal hans. Hann las læknisfræði í Lundi og Upp- sölum, og varð 21 árs að aldri að- stoðarmaður próf. Rudbecks, frægs grasafræðings og dvaldist síðar þriggja vetra skeið í Hollandi og hlaut þar doktorsnafnbót í læknis- fræði. í Hollandi kom út hið fræga rit hans „Kerfi náttúrunnar“ (Sys- tema nature) 1735. Þetta litla kver varð eins konar átrúnaðarrit grasa- fræðinga víða um heim. Síðar full- komnaði Linné kerfið í „Classes plantarum" o. fl. ritum. Kerfi Linné var byggt á æxlunarfærum jurt- anna, einkum fræflunum. Það þótti hagkvæmt og var mjög mikið notað í rúma þrjá aldarfjórðunga. Linné lýsti jafnframt einstökum hlutum jurtanna nákvæmlega, gaf þeim nöfn og setti reglur um hvernig bæri að lýsa jurtum. Hægt er að renna grun í hvílíkt feiknaverk þetta hefur verið, þegar þess er gætt, að 139 nöfn og lýsingar eru frá Linnés hendi á blaðinu eir»u. Nafngiftaaðferð hans er einnig stórmerk og jafnan fylgt síðan. Hann nefnir hverja tegund tveim nöfnum. Hið fyrra er ættkvíslar- heiti, en hið síðara lýsingarorð, sem einkennir tegundina. Linné andað- ist 1779. Minnig hans hefur verið heiðruð á ýmsan hátt. Mörg Linnéfélög hafa verið stofnuð. Falleg, fíngerð jurt Linnæa, ber nafn hans. Hún vex í norrænum barrskógum, en þekur líka kletta og urðir grænni slæðu, stráðri hvítum blómum. Linné lék sér að blómum í æsku og fór síðar í grasaferðir hvenær sem hann gat komið því við. Þegar í skóla var hann kallaður litli grasafræðingur- inn. í bók Norah Gourlie eru sögð mörg skemmtileg atvik frá æsku hans og námsárum og síðar lýst starfsferli og æviatriðum á að- gengilegan hátt og auðskilinn. — Nokkrar af teikningum Linné eru birtar í bókinni, t. d. úr Lapplands- ferð hans. Linné teiknaði ekki að- eins jurtir, heldur líka ýmis atriði úr lííi Lappanna (þjóðbúninga, hreindýr íyrir plógi o. fl.) og margt segir hann af siðvenjum þeirra. Linné brá oít fyrir sig glettni: í gamanbréfi lýsir hann atferli „spjátrunganna“ í Stokkhólmi þannig: „Þeir vakna kl. 8—9, klæða sig og greiða. Kl. 10 fara þeir á kaffihús og skeggræða yfir kaff- inu. Labba út í borgina um 11 leyt- ið og fara á riddarahúsmarkaðinn um hádegið til að heyra fréttirnar. Éta kl. 1 og drekka vel með matn- um tii hýrgunar. Ganga á kaífihús kl. 3. Fara í heimsóknir um íjögur- Linné í Lappabúningi j á rannsóknaför í Finnlandi. $| leytið og þaðan í einhvern kjallar- ann til að drekka rínarvín kl. 5 síðdegis. Stunda kvennagaman hjá Lars eftir miðaftan og spila pen- ingaspil fram á nótt. Guð veit hve- nær þeir komast heim í bólið. Fá að lokum freyufár og sótthita.“ — Linné fór til þeirra, hressti þá á rínarvíni, taldi í þá kjark og lækn- aði fjölmarga. — Bókin rekur lífs- feril Linnés frá ári til árs. Hann varð kennari og rektor, stórfrægur í lifanda lífi. Grasaferðir hans með nemendur sína voru nafnfrægar. Var yfir þeim mikið fjör og létt- leikablær. Gengu þeir stundum heim til háskólans í fylkingu líkt og hermenn, sungu eða létu jafn- vel lúðrasveit leika í fararbroddi, er þeir sneru heim með grasatín- urnar, fullir eldmóði og áhuga fyrir

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.