Lesbók Morgunblaðsins - 01.05.1955, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 01.05.1955, Blaðsíða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 249 Viðskifti hollenzkra og Tálknfirðinga AF því að ég hef ekkert séð ritað um verslunarviðskifti Hollendinga á Vestfjörðum, þá skrifa ég hér nokkrar smásögur, sem ég veit að eru sannar, því þær voru sagðar mér af merkum mönnum. Ekki veit ég hve snemma Hollend- ingar fóru að koma á Tálknafjörð, en mér var sagt að fyrst mörg ár hcfði komið þar inn hvalfangarar. Gáfu þeir bændum hvalskrokkana afspikaða. Sá ég líka að flest fjárhús þar voru upp- reft með hvalrifjum. Það voru einhölu- hús með grjótveggjum, reft með hval- rifjum. Var sinn endi á hvorum vegg, en hæð hússins í miðju uppi bugðan rifjanna. Engin spýta var í þeim, nema jata við vegg og dyraumbúnaður. Hús þessi munu lengi verða þar við líði. Þorskfiski munu Hollendingar hafa stundað þar mestan hlut 18. aldar og allt fram að 1860. Þá hættu þeir að koma. Þeir fiskuðu litið, því mestan hlut sumars lágu þeir inni á fjörðum og versluðu við landsmenn. Allir skip- verjar höfðu vörur, jafnt skipstjóri og matreiðslumaður, og með ýmsu veröi seldu þeir í hverju skipi. Það var aðal regla þeirra, að hver seldi svo dýrt sem hann gat. Hver skipsmaður mátti hafa meðferðis það sem hann gat haft í rúmi sínu og undir því, en yfirmenn höfðu meira pláss. Vel gátu íslendingar skilið þá. því að hvorir tveggja höfðu tilbúið mál, og sögðust íslendingar tala hol- lenzku, en Hollendingar kváðust tala íslenzku. Verslunarvara þeirra var: reyktóbak, færi, önglar, sökkur úr blýi, alls konar fatnaður, klútar, léreft, strigi, leirtau (allt rauður leir), skálar, diskar, könn- ur, bollar, leirpottar og krukkur; brennt kaffi, rauður kandís, piparkök- ur, síróp, rúsínur, hnífar, skæri og nálar. En íslenzkar vörur, sem þeir sóttust eftir að fá, voru peysur, sokkar og vettlingar. En allt prjónlesið varð að vera útprjónað með rauðum og blá- um rósum og tiglum. Versluðu Tálkn- firðingar mikið við þá og seldu hol- lenzkan varning í nærliggjandi sveitir. Græddu margir á því stórfé. Þeir sögðu að mikla tímaeyðslu þyrfti til að versla við Hollendinga, því að þeir væri tregir að láta með góðu verði, enda munu gömlu Tálkn- firðingarnir hafa verið kænastir manna í viðskiftum flestum. Jón Arason hét hollenzkur skipstjóri, sem kom á Tálknafjörð um 30 ár. Hann talaði hreina íslenzku, en kvaðst vera Hollendingur að ætt og uppruna. Hann kom með mikinn varning árlega og seldi mikið af bláum herðaklútum með hvítum bekkjum. Þeir voru mjög væn- ir, voru almennt kallaðir „Jóns Ara- sonar klútar“. Tálknfirðingar seldu þá fyrir einn ríkisdal. Jón Arason flutti utan endurgjalds- laust hvern sem fara vildi. Einu sinni strauk með honum kona frá manni sín- um og börnum. Hún hét Guðrún og átti heima á þeim bæ er Rimi heitir í Tálknafirði. Þegar til Hollands kom, þekktu hana islenzkir menn, cr þar voru. Komst það fyrir yfirvöldin og var Jóni skipað að annast hana um veturinn og skila henni til manns sins næsta sumar. Það gerði hann. En þeg- ar hann kom með hana, var hún þung- uð af hans völdum, en hann friðþægði þetta allt við mann hennar, og undi hún vel hag sínum eftir það. Guðmundur hét maður, sem bjó á Lambeyri við Tálknafjörð. Kona hans hét Ingibjörg. Hún var systir Jóns, sem kallaður var Jón bóndi. Þessi Jón bóndi átti tvo sonu og hét hvortveggi Jón. Annar þeirra bjó á Suðureyri eftir föður sinn. Hans synir voru þeir Þor- leifur kaupmaður ríki á Bíldudal og Jón skipstjóri á Steinanesi. Hann var faðir Sígurðar sýslumanns „víkings" sem andaðist í Stykkishólmi.* Guð- * Móðir Sigurðar sýslumanns var Margrét dóttir séra Sigurðar Jónssonar á Rafnseyri. Ólst Sigurður sm. að miklu leyti upp hjá Jóni Sigurðssyni forseta, móðurbróður sínum í Kaupmannahöfn. mundur á Lambeyri átti þrjú born með konu sinni, son sem Ólafur hét og dætur tvær, Halldóru og Rannveicu. Ingibjörg kona Guðmundar lét illa mann sinn og strauk hann frá henni og börnunum til Hollands og kom aldr- ei sfðan. Nokkrum árum seinna fór Ólafur sonur hans til Hollands og lærði sjó- mannafræði. Kom hann mörg sumur hingað sem skipstjóri á hollenzku skipi og hafnaði sig framundan bæ móður sinnar. Rannveig svstir hans giftist manni þeim, sem Björn hét. En Halldóra svstir hans varð þunguð af völdum Jóns bróður Jóns bóndasonar. Þóttu þau of skyld. Barn það, er þau áttu saman, var Ásbiarnar-Kristín, sem komst í sauðaþiófnaðarmál á Þverá. Jón strauk til Hollands, en Halldóra giftist síðar Jóni á Felli í Tálknafirði. Þau voru svo fátæk, að þau sváfu fyrst á heypokum og breiddu yfir sig síð- hempu Halldóru. En þegar Jón dó, var auður hans metinn í löndum og lausum aurum 300 þúsund krónur. Græddist honum fé af fiskiveiðum, hollenzkri verslun og nokkru því, sem bezt er að blæa gleymskunnar hjúpi á hverfandi tíma. Bræður tveir ólust upp í Krossadal. Hétu þeir Björn og Þorvaldur. Björn fór til Hollands og varð skipstjóri, en Þorvaldur varð bóndi í Krossadal. Á hverju sumri lagði Björn skipi sínu á Krossadalsbót og kom iafnskjótt á land og skipið hafði varpað akkerum. Eitt sinn kom skipið snemma dags og laeð- ist. en enginn kom í land. Fór Þorvald- ur þá um borð. en þeear hann kom á þilfar, lágu skipverjar bar allir dauða- drukknir. Biörn kom þá úr lvftingu og kallar: „Frísk þjóð, Þorvaldur“. Orð lék á því, að Björn flvtti flestar nauð- svniar bróður sínum, enda var Þor- valdur auðmaður. Ekki hef ég heyrt margt fleira merki- leet um mannaflutninga. nema nokkr- ar óáreiðanlegar söeur af strokumönn- um, sem Tálknfirðinear heldu á laun þar til þeir komust í skip til Hollands. En eftirfarandi sögu sagði mér Helgi bóndi Sæmundsson á Skjaldvararfossi á Barðaströnd. Líka man Gísli Hjalta- Hann var rammur að afli og var um eitt skeið í lögregluliði Kaupmanna- hafnar og mun þá hafa fengið Víkings- nafnið.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.