Lesbók Morgunblaðsins - 01.05.1955, Side 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
}
l
3
í
)
l
l
©
VESTURFARASÖNGUR
Hví skal ei liðka hljóða hjartans strengi
og hefja ljóð frá brjósti siðstu slund
að kveðja þig, vort kæra móður vengi
þú kalda, bera, forna ísa-grund, (
sem hefur oss á brjóstum þínum borið
og býtt oss öllu sem að máttir þú, —
en áttir hvorki vonina eða vorið.
Ó, veslings land! Þvi kvcðjum vcr þig nu.
Vor litli liópur héðan leggur glaður
þótt hnýpni brá og gjörist hjartað kramt,
því sinnar móður svo er einn hver maður
og svo er oss að glúpna orðið tamt,
en hér er neyðar harmabraut títt ctið
og hér er frjálsum drengjum næsla óvært,
og hér cr orðið helzt til lengi setið
þvi hamingjan sér smátt um oss lét kært.
Því skal nú bcina hugð að nýjum hcimi
því hvcr sin næstur gjörast mun þó sjálfs —
þars ærið er af anda og likams seimi
og öllu bezt að mál og hyggja er frjáls.
Lu höndin vinnur verk er avöxt bera
og vonin brosir dátt við hlýrri sól
þars enginn landi annan gerir þéra
og ágætið ei binzt við hempu og kjól.
STEFÁN SIGFÚSSON fyrr prestur.
l
t
í
1
I
I
I
s
I
Lesbók hefir fengið kvæði þetta hjá
Þórarni Steíánssyni bóksala í Húsavik,
og lét hann fylgja þessar upplýsing-
ar:
„Stefán þessi var prestur okkar
Keldhverfinga á árunum 1877—1879,
fékk þá Skútustaði og var þar til
1886. Þá losnaði Hof í Alftafirði og var
honum veitt það brauð, en þangað
hefði hann aldrei átt að fara, því að
þar var hempan tekin af honum 1890.
Var hann síðan embættislaus, en stund-
aði barnakennslu og smáskammta-
lækningar í Borgarfirði eystra og við-
ar fram að aldamótum. Sagði hann
mér að hugur sinn hefði staðið til
læknisnáms þegar hann varð stúdent,
en foreldrar hans voru þvi mótfallin,
líklega vegna þess, að læknanám tók
lengri tíma og hefði kostað meira en
guðfræðinámið. Hann þótti ölkær um
of og fyrir það missti hann hemp-
una.
Þetta kvæði, sem hann orkti þegar
hann fór alfarinn af landi burt, hefir
að vísu ekki mikið gildi sem skáld-
skapur, en það sýnir hug hans og til-
finningum þegar hann er á förum, og
það er víst að hann og fjölskylda hans
áttu við mikla fátækt og örðugleika að
striða meðan þau voru hér á landi. Eg
hygg að þetta sé hið eina ljóð, sem
liggur eftir Stefán, og ég veit ekki
til að það hafi verið prentað.
Ég kynntist Stefáni fyrst 1897 og
tókst þegar góður kunningsskapur með
okkur og entist meðan hann lifði, og
á ég mörg löng og góð bréf frá honum,
sem hann skrifaði eftir að hann kom
til Ameríku“.
Stefán var fæddur 9. júlí 1848, sonur
Sigfúsar að Skriðuklaustri Stefánsson-
ar (prests á Valþjófsstöðum, Árna-
sonar) og konu hans Jóhönnu Sigríðar
Jörgensdóttur héraðslæknis Kjerúlfs.
Hann var gjörfulegur maður og hraust-
menni og stundaði iþróttir. Er eftir
hann grein um íslenzku glímuna í
Timariti Bókmenntafélagsins 1900.
Kona hans var Malena Pálína Þor-
steinsdóttir Metúsalemssonar á Ey-
ólfsstöðum. Þau eignuðust 6 börn.
Stefán dó 15. des. 1906.
251
Þrjár eyar
MIKLAR deilur standa nú út af þrem-
ur eyiondum. Það er Nýa Gínea, Kýp-
ur og Formósa.
Nýa Ginea er önnur stærsta ey í
hcimi. Astralíumenn ráða yfir austur-
hluta hcnnar, cn vesturhlutinn helir
um rúmlega hundrað ára skeið verið
hollenzk nýlenda. Nú krefst indonesia
þess að fá hana.
Indónesia er eyriki, sem Hollend-
ingar reöu áður yfir. Þegar riki þetta
fékk sjálfstæði, var í samningunum
um það gert ráð fyrir, að Holiendingar
og lndónesta gerðu scrstakan samning
um Nyu Gmeu. Arið 1954 slitu Indónes-
ar stjórnmálasambandi við Holland, og
þa toldu Hollendingar að þetta ákvæói
væri fallið um sjállt sig. En lndónesar
voru ckki á þeirri skoðun. Þeir fóru
með málið fyrir þing Sameinuðu þjóð-
anna í dcsembcrmánuði s. 1. og kröíð-
ust þess, að Hoilendingum væri skip-
að að hafa sig brott frá eynni. Araba-
rikin og Rússland studdu þessa laöfu,
en rnálinu var visað frá með 34:14 at-
kvæöum, á þeim grundvelli, að Hol-
lendmgar og Indónesar yrói sjálfir að
jafna þessa deilu með sér. Sú aígreiðsla
málsins þýðir það, að meiri hluti Sam-
einuðu þjóðanna telur, að Indóncsía
eigi ekkert tilkall til Nýu Gíneu.
Um Kýpur stendur deilan milli Eng-
lendinga og Grikkja. Meiri hluti eyar-
skeggja er grískumælandi og þess
vegna telja Grikkir, að þeir eigi eyna
og vilja að þar fari fram atkvæða-
greiðsla um það, hvort menn vilji held-
ur vera grískir eða enskir þegnar. En
Englendingar halda því fram að Kýp-
ur sé brezk nýlenda og eign brezku
krúnunnar, og þess vegna komi það
ekki til mála að slík atkvæðagreiðsla
geti farið þar fram. Auk þess sé eyan
Bretum nauðsynlcg vegna aðstöðu
sinnar við austanvert Miðjarðarhaf.
Grikkir viðurkenna það líka og hafa
nú skotið málinu á frest um sinn, en
áreiðanlega verður það tekið upp aft-
ur þegar minnst varir.
Deilurnar um þessar tvær eyar mur.u
ólíklega valda friðslitum í heiminum.
En hið sama verður ekki sagt urn
Formósu-deiluna. Þar er mesta hættu-
svæðið nú, og margir óttast að þriðja
heimsstyrjöldin muni kvikna af þeim
glæðum, sem þar er nú blásið að.