Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 13.11.1955, Qupperneq 5

Lesbók Morgunblaðsins - 13.11.1955, Qupperneq 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS skapur, enda varð honum heldur aldrei neitt við hendur fast. Mun hann hafa verið hneigðari fyrir fræðimennsku og skáldskap. Var hann talinn gott skáld og latínu* skáld í fremra lagi. Hann hefur og verið talinn góður kennimaður, enda vel gáfaður að eðlisfari. í handritasafni Landsbókasafnsins má finna ýmislegt eftir hann, bæði i bundnu máli og óbundnu. Þar eru föstuprédikanir, bænir og ýmis skáldskapur. Þar á meðal er all- langt skopkvæði um Meðallend- inga. Segir þar frá því að þeir hafi séð ógurlegt bjarndýr niðri á sönd- um og talið að það mundi hafa komið með hafísi. Hlupu þeir þá saman og vopnuðust til þess að leggja bjarndýrið að velli. En er að var komið, reyndist þetta vera kollótt horrolla, sem hafði orðið eftir niðri í sandi. — Talið er að séra Jón hafi örkt Cyrusrímur, sem eru í Árnasafni. Hann samdi og rím, er gott þótti á sinni tíð. Lét hann því fylgja eftirfarandi vísur, sem geta verið sýnishorn af skáld- skap prests: Loksins endar lítið kver, letri fæstir unna, færi í lagið fyrir mér firðar gjör sem kunna. Ekki heimta af manni má meir en orkað getur. Lagfæri þeir lýtin sjá og langtum kunna betur. LasU rekkar rirmð mitt og raðan timasetra, skatnar fyrir skarpvit sitt skrifi þá annað betra. Ýta sá, er ekki kami umbót nokkra veita, öllu hér aðfinnur hann, eiiis réð Momus breyta. Vlsu' beldur lof en last leggja mannsins verki, ekkert gera öfundarkast, tt það þerrra raerki. 833 JUexander von Humboidt ÞÝZKA sendiráðið hér í Reykjavík hefur tilkynnt íslenzkum stjórnar- völdum, að stjórn sjóðs Alexanders von Humboldt muni veita styrki úr sjóðnum til háskólanáms í Þýzkalandi árið 1956—57. í tilefni af því er rétt að minnast þess manns, sem sjóðurinn er kenndur við. F'RIEDRICH Heinrich Alexander * von Humboldt var fæddur í Berlín 14. september 1769. Faðir hans var majór í prússneska hern- um. Snemma bar á fjölhæfum og fágætum hæíileikum hjá drengn- um. Hann var t. d. ekki nema 16 ára þegar hann fekk mynd tekna á listasýningu í Berlín. Hafði hann snemma fengið sér tilsögn í drátt- list og myndskurði, og kom það sér vel síðar fyrir hann sem nátt- úrufræðing og landkönnuð, að geta gert myndir af því, sem hann sá, því að þá voru engar myndavélar til. Sama árið og þetta var, eða 1786, hafði honum og Wilhelm bróður hans, verið komið fyrir hjá einka- kennara í eðlisfræði. Þar heyrðu þeir fyrst getið um tilraunir þeirra Franklins og Volta með rafmagn. Þar fengu þeir fræðslu um, að með sérstökum útbúnaði væri hægt að bægja eldingum frá húsum. Alex- ander krafðist þess þá, að éldinga- vari væri settur á bústað þeirra í Tegel, sem er skammt frá Berlín. En presturinn þar á staðnum reis öndverður gegn þessu og sagði að það væri ósæmileg uppreisn gegn guðs vilja. Faðir Alexanders var þá andaður, en móðir hans tók í sama Undir þeirra ærudóm eg vil rímið leggja. Hirði ei um hól né rom hemiskuþvættmgs seggja. Lausnara þeim, sem leið á kross, lýður þökk skal vanda, blessi hann jafnan alla oss. Eg læt þannig standa. A. 0. streng og presturinn. Þó fekk Al- exander vilja sínum framgengt um síðir. Eldingavari var settur á höll- ina. Það var annar eldingavarinn sem kom í Þýzkalandi — hinn hafði verið settur á háskólabygginguna í Göttingen. Alexander stundaði nám við há- skólana í Frankfurt, Berlín og Göttingen. Síðan fór hann í versl- unarskólann í Hamborg, eftir ein- dreginni ósk móður sinnar, því að hún vildi að hann yrði kaupsýslu- maður. ★ Snemma byrjaði hann að ferð- ast. Hann hafði ekki enn hætt há- skólanámi, er hann, ásamt vini sin- um, tókst ferð á hendur um Belg- iu. Holland, England og Frakk- land. Þeir komu til Frakklands rett eftir stjórnarbyltinguna og voru viðstaddir hátíðahöldin á Champ de Mars 1790. Áður hafðí Alexander komizt i kynni við frjals lynda menn í Berlín, og þessi frels- ishreyfing gagntók hann. Hann var ekki pólitiskur, en alla ævi upp frá

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.