Lesbók Morgunblaðsins - 17.06.1956, Síða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
337
SANNLEIKIiRIIMN U IVf
FLJ|]GA\DI kri\glijr\ar
ÚT ER komið í Bandaríkjunum „Report on Unidentified Flying
Objects" og er eftir Edward J. Ruppelt, sem var formaður rann-
sóknarnefndar beirrar, er skipuð var til þess að athuga hvað hæft væri
í öllum þeim frásögnum, er gengu um inar „Fljúgandi kringlur". Er
því hér um opinbera heimild að ræða og ina öruggustu, sem hægt er
að fá viðvíkjandi þessum furðuflugvélum, sem svo mikið hefir verið
talað uin. Hér fer á eftir stuttur útdráttur úr þessari skýrslu, og sést
á honum að enn er þetta óleyst gáta.
IjAÐ VAR 24. júní 1947 að blöðin
í Bandaríkjunum fluttu fyrstu
frásögnina um „Fljúgandi kringl-
ur“. Þau sögðu frá því, að Kenneth
Arnold kaupsýslumaður frá Idaho
hefði séð níu glóandi og kringlu-
laga hluti á sveimi nálægt fjallinu
Rainer í Washingtonríki, er hann
var þar á flugi í einkaflugvél sinni.
Hann lýsti þessum hlutum svo, að
þeir hefði farið líkt og kringlur,
sem látnar eru fleyta kerhngum á
vatni, en blöðin breyttu þessu í
„fljúgandi kringlur". Og á þeim
átta árum, sem liðin eru síðan, hef-
ir þetta nafn orðið svo munntamt,
að það er jafnvel tekið upp í al-
fræðiorðabók Websters, og er not-
að um allan heim.
Fyrst í stað var þetta n?.fn haft
um öll þau kringlulaga fyrirbæri,
er menn sáu í lofti og fóru með
geysihraða. Síðar komu fregnir af
svífandi hlutum, sem voru öðru
vísi í laginu, en þeir voru þá einn-
ig kallaðir „Fljúgandi kringlur“.
Þannig nær þetta nafn nú til allra
þeirra fyrirbæra er sjást í lofti, ljós-
ráka, hnattmyndaðra hluta, og
hvernig sem þeir eru í laginu og
hvernig sem þeir eru á litinn. Og
þessir hlutir haga sér allavega, geta
staðiS kyrrir í loftinu, farið hægt og
hratt, hátt og lágt, þverbeygt í
vinkilhorn, eða horfið allt í einu
með öllu.
Það er bersýnilega villandi að
kalla öll þessi fyrirbæri , Fljúgandi
kringlur". Þess vegna hafa hern-
aðaryíirvöldin gefið þeim annað
yfirgripsmeira, en ekki jafn ævin-
týralegt nafn, sem sé: Unidentified
flying objects (ókunnir fljúgandi
hlutir). Til hægðarauka er það
venjulega skammstafað „UFO“
(frb. júfó).
Nokkrum vikum eftir að fyrsta
fregnin kom um þessa UFO, var
skipuð nefnd til þess að rannsaka
allar þær fregnir, sem bærust af
slíkum fyrirburðum. Þessi nefnd
starfaði fram á árið 1950 og höfðu
þá flestir nefndarmenn komizt að
þeirri niðurstöðu að þetta væri allt
missýningar manna, sem hefði orð-
ið veiklaðir á taugum í stríðinu.
Voru þá rannsóknir lagðar niður
og menn þóttust sannfærðir um, að
ef hætt væri að tala um „Fljúg-
andi kringlur11, þá mundu þær
hvería af sjálfsdáðum.
En þessi ályktun reyndist röng.
Fregnir af UFO streymdu inn og
urðu æ greinilegri og betur vott-
festar. Flugstjórar á farþegaflug-
vélum, flugmenn hersins, herfox'-
ingjar, vísindamenn og fjöldi ann-
ara manna sendi tilkynningar um
UFO. Og í ratsjám hersins fóru að
sjást ýmis óskiljanleg fyrirbrigði.
Þá var það að Cabell hershöfðingi
í flugliðinu fór fram á, að nefndin
skyldi halda áfram störfum fyrir
flugherinn. Ég var þá starfsmaður
hjá Air Technical Intelligence
Center (ATIC), sem hefir það
starfsvið að hafa gætur á öllum
erlendum flugvélum og skotflaug-
um, og því var eðlilegt að hún hefði
einnig eftirlit með UFO. Var ég
beðinn að taka að mér rannsókn
á þessum fyrirbærum, og hafði ég
það starf með höndum þar til seint
á árinu 1953. Á þessum tíma ferð-
aðist ég og starfsmenn mínir um
800.000 km til þess að rannsaka
fjölda fyrirbæra, og aul; þess feng-
um við skýrslur um að nokkur
þúsund UFO hefði sést.
Hvað var það sem fólk sá?
Það var nú býsna margt. Fjöldi
manna hafði séð flugbelgi, flugvél-
ar, stjörnur og þess háttar og hald-
ið að þetta væri UFO. Það eru ým-
is ljósbrigði í lofti, sem geta valdið
slíkum missýningum. Flugbelgur,
sem er hátt á lofti við sólsetur, get-
ur allt í einu orðið glóa.ndi eins og
eldhnöttur. Flugvél, sem ekki verð-
ur séð með berum augum, kemur
alt í einu fram í sólargeisla og birt-
ist þá sem glóandi silfurkúla.
8. okt. 1954 fluttu mörg blöð í
Los Angeles frásagnir um að sést
hefði margar „Fljúgandi kringlur",
glóandi á að líta og hefði flogið
oddaflug. Þessa sýn hafði borið íyr-