Lesbók Morgunblaðsins - 28.04.1957, Page 5

Lesbók Morgunblaðsins - 28.04.1957, Page 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS M1 VÍSINDIIM EFLA ALLA DÁÐ DR. HELGI PJETURSS sagði að fyrstu vísindamenn hér á jörð hefði verið smiðir. Þeim hug- kvæmdist fyrst að búa sér til verk- færi til þess að létta lífsbaráttuna og gera hana auðveldari. Þeir fundu upp á því að gera sér egg- verkfæri úr steinflísum, og með þeim telgdu þeir áhöld úr tré, fyrst kylfur, svo boga og örvar, og síðan húsmuni. Framsókn mannanna á sviði vísinda var hafin, og þrot- laust hefir hún haldið áfram síð- an, og orðið stórstígari með hverri öld, og nú síðast með hverjum ára- tug. Hver ný hugmynd hefir fætt af sér margar aðrar, hver ný upp- götvun leitt til annarra og meiri uppgötvana. Og aldrei hafa þessar framfarir orðið jafn stórstígar og seinustu 50 árin. Það eru aðeins fáir menn, sem þar eru brautryðj- endur en alþjóð nýtur góðs af starfi þeirra. Þess vegna sagði Jónas Hallgrímsson: Tífaldar þakkir því ber færa þeim, sem að guðdómseldinn skæra vakið og glætt og vemdað fá vízkunnar helga fjalli á. Vísindin hafa gjörbreytt lífskjör- um mannanna og nú er svo komið að farið er að tala um það í alvöru, að öll erfiðisvinna sé brátt úr sög- unni, allt verði unnið af vélum. Menn búast við meiri framförum í vísindum á næstu 50 árum, held- ur en á öllum öldum áður. En þótt allar uppgötvanir sé til þess falln- ar að bæta og fegra líf mannkyns- ins, þá hefir mannkyninu þó tekizt að gera þær að svipu á sig. Og nú er svo komið, að mannkynið getur útrýmt sjálfu sér, ef það leggur út í kj arnorkustyrj öld. Vera má, að óttinn við eyðilegg- ingarmátt kjarnorkunnar verði til þess að ekki hefjist ný heimsstyrj- öld. Þeir, sem kunnugastir eru þeim málum, segja að kjarnorkan hafi nú þegar afstýrt heimsstyrjöld nokkrum sinnum síðan 1945. En hvað er þá framundan hjá vís- indunum, ef þau fá að starfa í friði? Fyrir skömmu háði ameríska félagið National Education Asso- ciation 94. ársfund sinn, og L. A. DuBridge, forseti Californía Instit- ute of Technology, flutti þar fyrir- lestur um þetta efni, og skal hér birtur útdráttur úr honum: — Eg ætla ekki að tala um það, sem menn kunna að uppgötva, sagði DuBridge. Eg ætla að tala um það, sem menn munu hugsa, hugmyndir þær, sem þeir taka til rannsóknar. Eg ætla að tala um vísindin vísindanna vegna, hvern- ig þau kenna mönnum að hugsa og afla sér þekkingar, um vísindin sem lykil að þekkingu á hinum efnislega heimi. Eg ætla að tala um ævintýri vísindanna. ♦ ÞEKKING Á TÖLUM Þegar frá upphafi vega mun maðurinn hafa haft einhverja óljósa hugmynd um tölur — hvað böm þeirra voru mörg, hvað þeir áttu margar konur, hve mörg dýr þeir lögðu að velli og hve marga óvini þeir ættu. En þetta var þó allt á reiki, því að hinir frumstæðu menn áttu aðeins þrjár tölur: einn, tveir, margt. Smám saman breytt- ist þó „margt“ í tölurnar 3, 4, 5. En langur tími leið áður en menn fundu upp „núllið“ og lærðu að nota það. En hve margir eru þeir nú á dögum, sem gera sér grein fyrir því, að vísindin væri enn í dag einkis megnug, ef þau hefði ekki stærðfræðina við að styðjast? Setj- um svo, að vér hefðum ekki enn fundið upp töluna 10. Setjum svo, að vér værum enn að burðast með rómverskar tölur. Hvemig ættum vér t. d. að margfalda saman XVI og MCMXI? Setjum svo, að vér kynnum ekki að fara með hærri tölu en miljón, eða biljón. Hvernig færi þá um fjárlög stórveldanna? Og hvernig færi um þau fyrirtæki, sem hafa meira en biljón í veltunni? Á hinn bóginn — hve margir em þeir, sem gera sér grein fyrir hvað biljón, eða jafnvel miljón þýðir? Ef maður telur eins hratt og hann getur — nefnir t. d. 3 tölur á hverri sekúndu — þá mundi hann vera 3 ár að telja eina miljón, þótt hann teldi látlaust 24 stundir á sólarhring, og rúmlega 8 ár að telja upp að einni biljón. Við skulum taka dæmi til skýr- ingar. Hve stórt væri það hús, sem er miljón sinnum stærra en húsið, sem þú átt heima í? Mundi það verða eins stórt og stærstu ský- skafar? Mundi það verða eins stórt og pýramídinn mikli? Nei, það mundi verða 10 og alt að 50 sinn- um stærra heldur en jörðin sjálf. Eg get þessa til að sýna, að allur almenningur hefir ekki hugmynd um hvað miljón þýðir, og enn síð- ur hefir hann skilning á þvi hvemig vísindin fara að reikna með miklu hærri tölum. Er það þá nokkur furða þótt almenningur geti ekki gert sér grein fyrir hvað att «r við mwo því, að ein vetnia-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.