Lesbók Morgunblaðsins - 04.08.1957, Blaðsíða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
397
„HJaria mannsins
Jú, einnig var séð fyrir því. Einn skurð-
læknir stóð reiðubúinn til að opna
brjóst Wilsons og hnoða hjartað. En
það sló rólega — hægara og hægara
fyrir áhrif kuldans.
HANN ANDAR A NÝ
Annar skurðlæknir opnar að slag-
æðum á hálsi — blóðrásina verð-
ur að mega stöðva, ef nauðsyn krefur.
Síðan hefur dr. Mark uppskurðinn,
höfuðkúpan er opnuð. Þá rennur upp
sú stund, sem sérhver skurðlæknir ótt-
ast. Andardráttur sjúklingsins stöðv-
ast.
En fyrir því hafði verið hugsað. Súr-
efni er dælt í lungu sjúklingsins, með-
an dr. Mark heldur rólega áfram að-
gerðum sínum. Hann kemst að veika
blettinum á slagæðinni. Það fer að
blæða mikið, en einn af aðstoðarmönn-
um hans bregður skjótt við og klípur
saman hálsslagæðarnar, sem liggja til
Dr. Mark: Höíuðkúpaa er opnuð
má hætta oð slá i
heilans. Blóðrásin til heilans hefur
stöðvazt, nú verður kuldinn að bjarga
lífi Wilsons.
Vernon Mark hafði 12 mínútur til
umráða fyrir aðgerðina á æðinni, en
hann lauk henni á '9% mínútu. Þann
tíma hafði ekkert blóð streymt til heila
sjúklingsins. Hann hafði í rauninni
verið dauður í 9 mínútur. Þá eru
klemmurnar teknar af slagæðunum,
blóðið streymir til heilans á ný, líkams-
hiti sjúklingsins hækkar smátt og
smátt. Hann andar við 32 stig. Georg
Wilson er borgið — uppskurðurinn
hefur staðið í 9 klukkustundir.
Enn í dag lifir Wilson við beztu
heilsu, og þessi mikla aðgerð hefur
ekki haft í för með sér neins konar
eftirköst.
AÐEINS TVEIR KOSTIR
Fyrir nokkrum vikum birtist á fof-
síðum enskra blaða falleg mynd af
hlæjandi ungbarni. Barnið átti kæii-
svæfingunni líf sitt að þakka. Dag
nokkurn í maí í fyrra höfuðkúpubrotn-
aði móðir barnsins og var flutt í sjúkra-
húsið í Newcastle. Hún var þunguð,
og læknarnir sögðu við mann hennar,
John Moore, 23 ára að aldri: Þér verð-
★ ★★★★★★★★★
„Vernon Mark hafðl 12 mínútur
til umráða fyrir aðgerðirnar á
æðinni, en hann lauk henni á
914 mínútu “
★ ★★★★★★★★★
ið sjálfur að velja — þetta mun kosta
annað hvort konu yðar eða barn lífið.
Moore átti aðeins um tvo kosti að
velja: — „Fyrst svo er, hlýt ég að
taka líf konu minnar fram yfir ailt
annað“, svaraði Moore.
En á dögunum barst tilkynning frá
Newcastle-sjúkrahúsinu, þar sem frú
Moore lá, þess efnis, að móðirin væri
úr hættu og barnið hefði fæðst 'eins
og búizt var við í desember og væri
við beztu heilsu.
Þessu var komið til leiðar með því
að beita þeirri stórmerku aðferð, sem
læknisfræðin hefur nú tekið í þjón-
ustu sína til að bjarga mannslífum.
Frú Ellen Moore lá meðvitundarlaus,
og óðum nálgaðist hættustundin. Svo
kynni að íara, að hvorki hún ná
ÞRJÁR minútur"
ófædda barnið hennar lifðu þetta aí.
Læknarnir, sem stunduðu hana, gripu
þá til sömu aðferðar og þeir Dance
og Ward höfðu notað, er þeir björg-
uðu Georg Wilson. Þeir „frystu" hana.
Líkamshiti hennar nálgaðist hættu-
markið, og læknarnir urðu að hafast
eitthvað að. í viku lá hún meðvitund-
arlaus í kæliskáp fyrir menn, þá var
hættan liðin hjá.
GÓÐUR ÁRANGUR
Ungum dönskum lækni má einkum
þakka þá tæknilegu þróun, sem
hafir gert það kleift, að nægt er að
nota kælisvæfinguna við hættulega
heilauppskurði. Maðurinn er dr. Kai
Nielsen við háskólasjúkrahúsið í Lundi.
Hann hefur reynt þessa aðferð og
fullkomnað hana. Hann heíir gert
skýrslu um 18 uppskurði, sem
gerðir voru á háskólasjúkrahúsinu
í Lundi af frábærum heilasérfræð-
ingi Niels Lundberg að nafni. —
Allir sjúklingarnir höfðu verið
svæfðir með kælingu samkvæmt að-
ferð Nielsens. Tveir af þessum 18
sjúklingum, sem allir voru mjög alvar-
lega veikir, létust, og það er staðreynd,
að hefði kælingu ekki verið beitt, hefðu
fleiri látizt.
Kælingin veldur því, að blóðrásin
verður hægari, svo að minni hætta er
á blæðingu, meðan á uppskurðinum
stendur. Jafnframt þarf kældur heili
ekki meira súrefni en svo — vegna
kælingarinnar —, að hin hæga blóðrás
getur flutt honum súrefnismagnið, sem
þörf er á.
Danski prófessorinn Busch hefur
smám saman byrjað að beita þessari
aðferð við heilaskurði, og danskir sér-
fræðingar í hjartasjúkdómum hafa
skorið upp „frysta“ sjúklinga.
ÞRJAR ORLAGARÍKAK MÍNUTUR
Við skulum nú kynnast ofurlítið
nánar hjartauppskurðunum Hjarta
mannsins má hætta að slá i þrjár
mínútur. Ef slög þess stöðvast leng-
ur, veldur stöðvunin óbætanlegu • jóni
á heilanum og öðrum mikilvægum líf-
færum. Sérfræðingar i hjartasjúkdóm-
um hafa orðið að takmarka sig við
þessar þrjár örlagaríku mínútur, með-
an þeir gera uppskurði sina og þrátt