Lesbók Morgunblaðsins - 13.10.1957, Síða 10
526
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Nýa hitalindin
'iá Fúlutjörn
Reykjavík.
26. Símon Sturlaugsson, Stokkseyri.
26. Margrét Björnsdóttir, Reykjavík.
27. Guðrún Sigurðardóttir, Reykjavík.
LISTIR
Jón Engilberts listmálari hafði sýn-
ingu í Reykjavík (3.)
Menntamálaráð gekkst fyrir sýningu
á málverkum og vefnaði Júlíönu Sveins
-dóttur listmálara (14.)
Myndlistarsýningu höfðu í Reykja-
vík Nína Tryggvadóttir, Þorvaldur
Skúlason og Valtýr Pétursson (24.)
Alþjóðleg ljósmyndasýning, sem
nefnist „Fjölskylda þjóðanna" var í
Reykjavík (24.) og varð þar meiri að-
sókn en dæmi eru til um slíka sýningu.
Þjóðleikhúsið sýndi óperuna „Tosca“
og fekk Stefán íslandi til þess að koma
og syngja aðalhlutverkið.
ÍÞRÓTTIR
Skákmót var haldið í Hafnarfirði o.
m. a. tefldu þeir þar Friðrik Ólafsson.
Benkö og Pilnik. Benkö varð hlut-
skarpastur (3.)
I forkeppni að heimsmeistaramóti í
knattspyrnu, sem fram á að fara á
næsta ári, keppti íslenzkt landslið hér
í Reykjavík við Frakka og Belga, tap-
aði fyrir Frökkum 5:1 (3.) og Belgum
5:2 (5.)
o.ormót í skák fór fram í Reykjavík.
Kepptu 10 menn, þar af þrír erlendir
meistarar, Stáhlberg, Benkö og Pilnik.
Keppninni lauk 29. og bar Friðrik Ól-
afsson sigur af hólmi með 8% vinning.
Næstir voru og jafnir Benkö og Pilnik
og Stáhlberg í fjórða sæti. Guðmundur
Pálmason varð fimmti. Allir fengu þeir
verðlaun.
FRAMKVÆMDIR
Kom til landsins stór jarðnafar, er
Reykjavíkurbær og Raforkumálastjórn
-in hafa keypt í félagi til að bora eftir
jarðhita (3.)
Hafin smíði Sundlaugar Vesturbæar
í Reykjavík (6.)
Um 12.000 líflömb voru flutt af vest-
urkjalkanum til sauðlausa svæðisins 1
Dalasýslu og í Bæarhrepp í Stranda-
sýslu (7.)
Tilraunastöðin á Keldum hóf fram
leiðslu bóluefnis gegn Asíu-inflúens-
unni (7.)
Hafin smíði Háteigskirkju í Reykja-
vík (8.)
Fluttar voru að norðan um 300 end-
ur á tjörnina í Reykjavík (11.)
Hafin var smíði nýrrar kirkju að
Eydölum í Breiðdal (12.)
Lokið var endurbótum á fangahælinu
á Litlahrauni og þangað fluttir 16 fang-
ar frá Reykjavík og Hafnarfirði (13.)
Grafnar voru upp merkilegar rústir
bæarins Grafar í Öræfum, sem talið er
að lagzt hafi í eyði í öræfajökulsgosi
1362 (14.)
Sýning var opnuð í Árbæ á byggðar-
safni Reykjavíkur og verður opin fram
eftir haustinu. Ákveðið hefir verið að
halda við gamla bænum á Arbæ og út-
búa hann viðeigandi búsgögnum (23.)
Þrír nýir barnaleikvellir voru opnað-
ir í Reykjavík og á bærinn nú 16 slíka
leikvelli (25.) en leiksvæði skipta tug-
um.
Framkvæmdir hófust við hitaveitu í
Höfðahverfi í Reykjavík úr hinni nýu
borholu hjá Fúlutjörn (26., 28.)
Umferðarmálanefnd Reykjavíkur hóf
aðgerðir gegn slysahættunni (28.) Vai
byrjað á því, að allir bílstjórar gátu
fengið bílljós sín löguð ókeypis, og kom
þá í Ijós að langflestir bílar voru með
rangstillt ljós.
Nýa brúin á Jökulsá í Öxarfirði var
tekin í notkun (28.)
Reykjavíkurbær hefir ákveðið að