Lesbók Morgunblaðsins - 13.10.1957, Side 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
531
Fyrstu ferbaskrifstofur í Sretlandi
THOMAS COOK hinn alkunni stofn-
andi Cook-ferðaskrifstofu í Lundún-
um, varð snemma að sjá fyrir sér
sjálfur. Tíu ára að aldri réðist hann
til garðyrkjumanns og fekk eitt penny
í dagkaup, en það jafngilti þá 7Vi eyri.
Seinna gerðist hann rennismiður í
Loughborough. Gekk hann þá í bind-
indisfélag. Einu sinni fór hann á fund
bindindismanna í Leicester. Þangað eru
um 25 km. frá Loughborough og fór
hann gangandi. í þeirri ferð frétti hann,
að nú ætti að leggja nýja járnbrautar-
línu frá Leicester til Derby. Kom hon-
um þá þegar í hug að þarna væri ágætt
tækifæri til þess að draga sem flest
fólk að bindindismannaþingi, sem hald-
ið skyldi seinna í Loughborough. Hann
skrifaði járnbrautarfélaginu og fekk
það til þess að eftirláta sér sérstakan
vagn, þegar p_i _ ð kæmi
Járbrautarferðir þóttu þá enn hið
mesta sKemmtiieioaia6, r-o-* ... .
auglýsti þessa ferð, flykktist fólk að
og gátu færri komist með en vildu.
Hundrað og sjötíu konur og karlar
komust þó með, og varð fólk þetta að
aka í opnum vögnum, en fargjaldið
var heldur ekki nema einn shilling
fram og aftur. Þetta var 5. júlí 1841, og
má þessi atburður teljast upphafið að
skipulögðum ferðalögum.
Fjórum árum seinna skipulagði Cook
skemmtiferðalag til Liverpool, Wales,
eyjarinnar Mön og Dublin. Menn rifust
um farmiðana. Sumir keyptu marga og
seldu svo aftur með margföldu verði.
Árið 1846 efndi Cook til skemmtifar-
ar til Skotlands. Hann fekk 350 manna
hóp. Þá náði járnbraut ekki lengra en
til Newcastle. En Cook setti það ekki
fyrir sig. Hann fór með hópinn til
Fleetwood og þaðan á skipi kringum
landið til Ardossan hjá Clydefirði, og
svo með járnbraut til Glasgow og Edin-
borgar.
Eftir tíu ár hafði Cook skapað nýtt
og lífvænlegt fyrirtæki. Hann lagði
mikla áherslu á að allir gæti ferðast.
Til þess gerði hann samninga við járn-
brautarfélög, skipafélög og gistihús,
svo að kostnaður við ferðalögin yrði
sem minnstur. En fyrst í stað hugsaði
hann aðeins um ferðalög innan lands.
Svo kom sýningin mikla í París 1855.
Þá hafði Cook veg og vanda af þúsund-
um ferðamanna, er þangað fóru. Við
það sannfærðist hann um að rétt væri
að skipuleggja ferðir til útlanda og
skömmu seinna náði starfsemi hans til
Frakklands, Belgíu, Hollands, Þýzka-
lands, Austurríkis og Sviss. Svo komu
skemmtiferðir til Ameríku, Egypta-
lands, Palestínu og annara Miðjarðar-
hafslanda. Og 1872 skipulagði hann
fyrstu skemmtiferðina umhverfis
hnöttinn.
Thomas Cook andaðist 1892, þá 84
ára að aldri og hafði unnið merkilegt
ævistarf. Nú hefir ferðaskrifstofa hans
350 útibú í 64 löndum, og greiðir götu
um 5 milljóna ferðamanna á hverju
ári. Skrifstofan hefir samninga við 500
járnbrautarfélög, 7000 gistihús, 700
gufuskipafélög og 200 flugfélög. Starfs-
menn fyrirtækisins eru um 10.000.
Það var árið 1888 að Robert Mitchell,
sem þá var ritari London Polytechnic
Institute, kom snöggvast í kennslu-
tíma í skólanum. Það var landafræðis-
tími og fjallaði um Sviss. Mitchell
komst þá að því, að enginn af læri-
sveinunum hafði til Sviss komið. Þá
datt honum í hug að gaman væri að
því að fara þangað með hóp þeirra.
Hann lét ekki við það sitja, heldur
skipulagði gönguför frá Belgíu til Sviss.
í þeirri för voru 60 drengir, tveir kenn-
arar og einn læknir. Ári seinna fór
Mitchell þangað með hóp fullorðinna
manna. Úr þessu varð svo ferðaskrif-
stofa, sem Englendingar kalla „The
Poly“. Annaðist hún um fyrirgreiðslu
og leiðsögu 2500 manna á heimssýnmg-
una í París 1889, dvöldust þeir þar í
viku og varð kostnaðurinn ekki nema
2% Sterlingspund á mann.
Næst var það að Mitchell keypti
fjallaskála nokkra hjá Lucerne í Sviss,
fyrir 10 þús. Sterlingspund, og hafði
þar fengið gistiskála fyrir ferðamenn.
Þar var gestum tekið með stórfengleg-
um flugeldasýningum.
Á kreppuárunum milli stríðanna dró
mjög úr ferðalögum, og „Poly“ gat ekki
þrifist á því að skipuleggja ferðir inn-
an lands. Á hinn bóginn fekkst ekki fé
til ferðalaga utanlands, því að enska
peninga mátti ekki flytja úr landi. Nú
átti „Poly“ fjallaskála sina í Sviss, en
hvernig átti að koma ferðafólki þangað,
þegar enginn var gjaldeyrir? Til þess
var aðeins ein leið — flytja það með
enskum flugvélum. Með því móti helzt
gjaldeyririnn kyrr í landinu. Og svo
var leigð fjögurra hreyfla Heracles-
flugvél, sem gat flogið 160 km á klukku
stund. Og um leið og hún hóf sig til
flugs á Croydon-flugvellinum, með 24
farþega innan borð, hófust skemmti-
ferðir í loftinu. Þetta gafst svo vel, að
á þessu sama ári sendi „Poly“ 1000
skemmtiferðamenn til meginlandsins,
án þess að enskir peningar væri fluttir
úr landi.
Árið 1921 var stofnað ferðafélagið
Workers Travel Association í þeim til-
gangi að greiða fyrir ferðalögum verka-
fólks og efla gagnkvæman vinarhug
með kynningu á ferðalögum. Fyrsta
árið tóku 700 menn þátt í ferðum þess,
en í fyrra var sú tala komin upp í
93.565.
(Úr Shields Gazette).
t_-*''ð®®®GT>^_?
Málningar sjálfsali
Kominn er á markaðinn sjálfsali
fyrir málningu. Er það margbrotin vél
og geymir í sér 8 málningarliti og bland
ar hún þeim sjálf saman svo að menn
geta fengið hvaða lit sem þeir girnast.
Ekki er annar vandinn en styðja á
hnapp með þeim lit er maður girnist.
Þá fer vélin á stað, blandar litinn og
rennir honum í dós (mismunandi
stærðir eftir vild) og skilar dósinni
lokaðri i hendur kaupandans.
Betri hjólbarðar
Um áramótin næstu koma á mark-
aðinn nýir hjólbarðar á bíla, og eru
þeir bæði ódýrari og betri en áður
hefir þekkzt. Er talið að ending þeirra
muni verða að meðaltali um 15% meiri
en eldri hjólbarða. Betri aðferð við
framleiðsluna veldur því að þeir verða
ódýrari. Það er Columbian Carbon Co.
í New York, sem framleiðir þessa hjól-
barða.
«