Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 10.08.1958, Qupperneq 11

Lesbók Morgunblaðsins - 10.08.1958, Qupperneq 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 403 Eyjólfur Jonsson fær sér hressingu á sundinu til Akraness. Var í kössunum gler og ónýttust þar 15—20 stórar rúður (19.) Brann bærinn Brand:staðir í Blöndu -dal (30.) ÍÞRÓTTIR Danskt unglingalið frá Sjálandi kom hingað í boði K.R. og keppti nokkrum sinnum (1.) Eyolfur Jónsson sundkappi synti frá Reykjavík til Akraness. Hann var rúm- lega 13 klst. á leiðinni (8.) Úfvalslið knattspyrnumanna frá Sjá- landi kom í boði Pram og keppti 4 sinnum (9.) Heimsmeistarinn í þrístökki, Brasilíu -maðurinn da Silva, kom hingáð, dvald- ist hér um skeið og keppti (10.) Landsmót hestamanna var haldið i Þingvallasveit. Þangað riðu menn í stórhópum norðan og sunnan. Sýning- arhross voru á 3. hundrað (15.) Ágústa Þorsteinsdóttir og Guðmund- ur Gíslason kepptu á meistaramóti Norðurlanda í sundi og stóðu sig með prýði (16.) Ársþing Sundsambands íslands var haldið á Akureyri (20.) Á alþjóðaskákmóti stúdenta, sem háð var í Varna í Búlgariu, lentu íslend- ingar í 2. riðli og urðu næsthæstir (22.) Golfþing íslands háð á Akureyri. Magnús Guðmundsson, Akureyri, varð íslandsmeistari (22.) Nýr iþróttavöllur var vigður i Gaul- verjabsearhreppi (27.) Meistaramót i frjálsum íþróttum var háð í Reykjavík. Þar setti Kristleifur Guðbjörnsson nýtt Íslandsmet í 3000 m hindrunarhlaupi (29.) Svifflugmót var haldið að Hellu á Rangárvöllum og stóð nokkra daga. Þórhallur Filippusson varð íslands- meistari í svifflugi. Sundmót Ungmennasambands Skaga -fjarðar var háð á Sauðárkróki (31.) FELAGSLIF Haldin var í Reykjavík ráðstefna norrænna útvarpsmanna, sem annast um barnatíma (5.) Aöalfundur Skógræktarfélags ís- lands var haldinn í ísafirði (8.) 11. þing S. í. B. S. var háð að Reykja- lundi. Voru þar 70—80 fulltrúar og margir erlendir og innlendir gestir að auki. Voru nú liðin 10 ár síðan stofnað var Berklavarnasamband Norðurlanda og þing þess einnig háð að Reykja- lundi (9.) 20. Iðnþing íslendinga haldið í ísa- firði (10.) Héraðsfundur Norður-Þingeyarpró- fastsdæmis var haldinn á Kópaskeri (20.) Aðalfundur Vestur-skaftfellskra kvenna var haldinn í Vík í Mýrdal (20.) Aðalfundur Flugfélags tslands. Rekstrarhalli á árinu sem leið um 8,5 millj. kr., að meðtöldum afskriftum. Fluttir voru 81.413 farþegar á árinu. Stjórnin endurkosin (30) ÓKYRÐ I ATVINNULlFI Verkföllum rafvirkja, járniðnaðar- manna, blikksmiða, bifvélavirkja og SKipasmiða lauk, og varð launahækk- un 7,17% umfram hin lögboðnu 5% (ð.) Farmannaverkfailinu lauk 13. og hafði þá staðið í 20 daga. Vegna kaup- hækkana munu öll farmgjöld enn hækka (15.)

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.