Lesbók Morgunblaðsins - 08.03.1959, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 08.03.1959, Page 8
120 LESBÓK MORG[TNBLAÐSINS ÖIMNUR GREIIM Svipurinn á Reykfavík fyrir fimmtíu árum Skútur í fjörunni hjá Kríusteini. Örfiriseyargrandi í baksýn. — UMHVERFI Reykjavíkur var þá að mestu leyti eins og það hafði verið öldum saman, melarnir að vestan og stórgrýtt holt að austan. Að sunnan var tjörnin og var alltaf flóð og fjara í henni. En að norð- an var fjaran og mátti ganga eftir henni þegar lágsjávað var, alla leið frá lækjarósnum og út í ÖrfMsey. Fjaran var merkilegur staður um margt og þar var löngum mest at- hafnalíf bæarins. Af sjávarkambin- um framan við Hafnarstræti lágu margar bryggjur fram á hana og var þeirra merkust og mest Bæar- bryggjan eða Steinbryggjan, sem bærinn hafði látið gera 1884. Hún var þá eitthvert mesta mannvirki bæarins. Við þessar bryggjur lentu allir bátar, sem fluttu varning milli skipa og lands. Bryggjurnar voru allar brattar og mjóar, svo að óvíða varð komið við hestvagni, nema á Steinbryggjunpi. Menn báru því mikið á bakinu. Öll kol voru t. d. borin á bakinu neðan af bryggjur sporði og upp í kolaport, og höfðu konur aðallega þá vinnu, þótt ill væri. En þetta var venja þá. Við bryggjurnar lentu fiskibát- arnir, en uppsátur þeirra voru þó í fjörunsandinum, eins og verið hafði um ómunatíð. í fjörunni lágu líka oft seglskip, Sem verið var að gera við, hreinsa og mála. Verkamenn „á eyrinni" sóttu að- alatvinnu sína á bryggjurnar í fjör- unni. En í fjöruna sótti líka æsku- lýður borgarinnar skemmtanir sín- »r. Þar var margt að finna, en kær- komnastir voru þarabyngirnir, sem oft hlóðust þar upp. Var þá enn farið í „þönglabardaga“ og skift liði. Man eg ekki betur en Vestur- bæingar væri þá á móti öllum öðr- um. Valdir voru stærstu og hörð- ustu þönglarnir og síðan gengið í höggorrustu, og þurfti þá ekki griða að biðja. Var barist þar til annar hvor hópurinn lagði á flótta. Fjaran var þó hreint ekki vist- leg. í hana var fleygt alls konar óþverra, sem fyrr er sagt, og sjó- menn höfðu enn þann sið að fleygja í hana slógi og litlum þorskhaus- um og var þetta að velkjast innan um þarann og grotnaði þar niður. Lagði því illan daun frá henni inn yfir bæinn. Víða voru iðandi maðka -veitur, en í þær sóttu Frakkar og tíndu sér maðk til átu, en strák- unum velgdi við er þeir sáu þær aðfarir. Stundum kom brim, sem ekki bar þara á land, en skolaði og hreins- aði fjöruna. Var þá gaman að ganga frá Steinbryggjunni vestur fjöruna fyrir framan Grófina, skríða undir bryggjur, fara vestur með Hlíðar- húsaklettum fram hjá Kríusteini, framan við Slippinn og síðan fram grandann út í Örfirisey. En þá varð að sæta fjöru og gæta þess að vera ekki of lengi úti í eynni, því að

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.