Lesbók Morgunblaðsins - 25.03.1959, Page 19

Lesbók Morgunblaðsins - 25.03.1959, Page 19
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 163 Vísan um ÚT AF smágrein í Lesbók 31. des. sl., hafa henni borizt athugasemd- ir frá tveimur mönnum, Halldóri G. Sigurjónssyni á Húsavík og Ragnari Ásgeirssyni ráðunaut, og telur sjálfsagt að birta báðar. Halldór segir m. a. svo: — Eg verð fyrst að geta þess, að eins og vísan er skráð í Les- bók, er henni snúið við, og að öðru leyti er galli á þriðju hendingu. í Almanaki Ólafs S. Thorgeirsson- ar í Winnipeg (37. árg. 1931) er vísan þannig: Ber af öllum snótum snót, snótin blessúð veri. Aldrei verður Ljótunn ljót Ijótt þó nafnið beri. Höfundur vísunnar lýsir Ljót- unni í fyrstu hendingunni, en dáir hana síðar í vísunni, og það er ein- mitt list beztu hagyrðinganna. auðnaðist ekki að átta sig á hinu raunverulega framhaldi hennar í nútíð. í stað þess að láta undan síga í 600 sumur, eins og Jónas kvað, og rétta svo við að nokkru fyrir fulltingi fornsagnanna eða anda þeirra, mundi nú verða hrap- að, svo að ekki yrði endurrisið. Takist íslendingum ekki og svo öðrum þjóðum að átta sig á þeim sannindum, sem dr. Helgi Pjeturss hefir borið fram í ritum sínum, munu hinar miklu framfarir nú- tímans lenda í strandi áður en langt líður. En ein afleiðing þess mundi verða sú, sem þegar er 'afnvel far- in að koma í ljós að grimmd og miskunnarleysi mundi komast á hærra stig en dæmi eru til um í sögunni áður. Þorsteinn Jónsson á Úlfsstöðum. Ljotunni Vísan er í grein um Baldvin Helgason Þingeying, föður Úndínu skáldkonu. Kona Baldvins var Soffía Jósafatsdóttir frá Stóru Ás- geirsá í Víðidal, Tómassonar „lærða“, sem kallaður var. En kona Tómasar var Ljótunn Jóns- dóttir, systir Jóns sýslumanns á Melum í Hrútafirði. Síðan segir orðrétt í greininni: „Tómas orkti mest á latínu, eins og þá var títt meðal lærðra manna, og er því fátt af kvæðum hans almenningi kunn. Samt eru nokkrar vísur eftir hann enn þá uppi, eins og t. d. þessi, er hann orkti til konu sinnar“. Aftur á móti skrifar Ragnar svo: Vísa feðruð. Svo nefnist stutt grein eftir hr. Gest Jóhannsson, í Lesbók Morg- unblaðsins 31. des. 1958 — og vildi ég leyfa mér að bæta svolitlu spurningarmerki aftanvið fyrir- sögnina. Tilefni greinarinnar er það að í fyrsta bindi af „Skruddu“ minni hafði ég tekið upp þessa gömlu húsgangsvísu: Aldrei verður Ljótunn Ijót ljótt þó nafnið beri. Ber af öllum snótum snót, snótin blessuð veri. Taldi ég hana vera eftir ókunn- an höfund. Herra Gestur Jóhannsson hefur lært þessa vísu í æsku, og þá heyrt að hún hafi verið kveðin af Tómasi stúdent á Stóru-Ásgeirsá í Húna- vatnssýslu um Ljótunni konu hans. Segir hr. G. Jóh.: „Annars minn- ist ég ekki að hafa heyrt sérstak- lega að Tómas hafi verið hag- mæltur.“ Það er oft miklum erfiðleikum bundið að feðra mannanna börn rétt, en þó keyrir fyrst um þver- bak þegar til þess kemur að feðra vísur rétt, sem geymzt hafa á vör- um alþýðunnar í öllum landshlut- um í langa tíð. Leiði ég minn hest hjá þeim vanda. En í sambandi við þessa vísu um Ljótunni, vil ég þó segja frá því sem hér fer á eftir: Skömmu eftir að Skrudda þessi kom út, hitti ég Kristján skáld Einarsson frá Djúpalæk og vísan um Ljót- unni barst í tal okkar og kvað Kristján hana vera orta um Ljót- unni ömmu sína. Hún hét, fullu nafni, Ljótunn Sigríður Einarsdóttir og var frá Geirbjarnarstöðum í Köldukinn. Hún var að mestu leyti alin upp hjá þeim séra Birni Halldórssyni í Laufási við Eyafjörð og konu hans og náið skyldmenni þeirra hjóna. Ljótunn Sigríður giftist austur á land, Eiríki Þorsteinssyni, og þau bjuggu á Gunnarsstöðum og Djúpalæk á Norðurströnd — nú nefnd Langanesströnd. Kristján Einarsson man þessa föðurömmu sína vel og lærði vísu þessa í barnæsku og hefur aldrei heyrt annað en að hún væri kveð- in um Ljótunni Sigríði í æsku hennar, af séra Birni í Laufási. En vísan var jafnan höfð svona: Ber af öllum snótum snót, snótin blessuð veri. Aldrei verður Ljótunn ljót, ljótt þó nafnið beri. Blær vísunnar finnst mér bera með sér ajð hún sé frekar ort um unga stúlku eða barn heldur en um ei°inkoni’. O'’ eitt, er víst: Að sá sem h‘ isu hefur getað ort meira. í mínum augum er það jafnan aðalatriði að vísa sem birt er sé góð, faðernið, sem sumir hnakk- rífast út af skiptir minna máli, þó /

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.