Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 17.05.1959, Qupperneq 11

Lesbók Morgunblaðsins - 17.05.1959, Qupperneq 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 259 er svo sannfærandi, aS þannig finnst manni, að þetta hljóti að hafa verið. Grundvallarhugsjón höfundar er ætíð sú, að reyna að finna góðan og eðlilegan tilgang fyrir ákvörðunum og verkum ailra manna, þótt afleiðingar þeirra og eftirköst, verði sízt alltaf til góðs. Einstöku tilbúnar persónur eru þó í sögunni, svo sem t. d. Ganja Grenjaðardóttir, sem var að eigin sögn „frjáls kona“ og „gifti sig sjálf“ þegar henni sýndist, og ekkj- an á Ströndum, er fól Styrbirni á hendur sjóðinn. Meginkjarni sögunnar er reistur á hellubjargi Landnámu, en það er þó stuðst við miklu fleiri fornsögu- legar heimildir. Vafalaust mætti telja, að Snæ- birni galta verði einhverntíma reistur veglegur minnisvarði. En mundi það verða hans eigin þjóð, sem gerir það, fyr en hin víða ver- öld verður búin að vega og meta afrek hans á vogarskál veraldar- sögunnar, og neyða skilningi sín- um á afreki hans upp á vora eigin sofandi þjóð, sem nú um næstum því full þúsund ár hefir algerlega vanmetið, og alls ekki kannast við afrek hans og gildi þess, og bók- staflega falið hann og dáðir þær, sem hann drýgði, fyrir sjálfri sér og umheiminum! Eftir slíka forherðingu getur það varla orðið nema með sektartil- finningu, að íslendingar heiðri Galta á nokkurn hátt. En þegar að því kemur, að þjóðin vill fara að stæra sig af honum, eða ef þjóðin hættir að hafa asklokið fyrir him- inn, og fer að sinna öðru en því, að „ýtast á um einskilding og dal- inn“, eða eins og það nú er kallað, að berjast um spón og bita, en fer að sinna sóma sínum og kemst í sálufélag við kynslóðir fornaldar- innar, og meðal annarra dáða máske reisir Snæbirni galta minn- isvarða, þá vildi eg vona, að skiln- ingurinn á „sálarþroska svanna“ verði kominn það langt, að við hlið hans standi mynd af Hallgerði Oddsdóttur, einhverri fegurstu konu, sem ísland hefir alið, og var höfuðpersónan í þeim ástarharm- leik, sem kostaði hana sjálfa lífið á ungum aldri, en varð upphaf þess, að hinn vestræni heimur opnaðist fyrir hinum hvíta kyn- stofni. o—/—o Um þúsundir ára fyrir komu Garðars Svavarssonar og Nadd- odds hingað, hafði ísland verið kunnugt nálægum þjóðum í Ev- rópu, og sannar sögur um það enda flutzt suður að Miðjarðarhafi öldum fyrir Krists burð, í augum þeirrar tíðar manna var ísland að vísu óbyggilegt. En hvað var það, sem varnaði mönnum að halda ferðum sínum áfram frá íslandi vestur í heim? Það var heimskauts- ísinn, spölkorn fyrir vestan og norðvestan ísland. Hann lokaði öllum- leiðum, og byrgði fyrir öll kynni og alla þekkingu á svæði hnattar vors til vesturs frá íslandi. Thule hlaut þá að vera takmörk jarðar. Svo var það í þann mund, er Reykholt, hið síðar svo sögufræga höfuðból Snorra Sturlusonar, var beitarhús frá Breiðabólsstað, að undarlegt sambland af ástarævin- týri og ástarharmleik gerðist þar í Reykholtsdal. Á Breiðabólsstað sat goðinn og stórhöfðinginn Tungu-Oddur, er reynt hafði sitt af hverju um dagana, og vissi m. a. hvers virði þingfylgi og vígsgengi var. Á Kjalvararstöðum, hinum megin við ána, bjó kristin móður- systir hans, Kjalvör Þormóðsdótt- ir hins írska á Akranesi, en ekkja Hólmsteins Snæbjarnarsonar land- námsmanns og bróður Helga magra. Það mætti segja með orðum Tegners, að þá „greru í lund tvö gullin blóm“ þarna í Reykholts- dalnum. Með Tungu-Oddi óx upp Hallgerður dóttir hans mikilúðug, björt og fögur og höfðingleg, og gædd flestum þeim kostum, er konu mega prýða. Það hét svo, að Snæbjörn galti Hólmsteinsson væri fóstraður með Þoroddi í Þingnesi, „en stundum var hann með Tungu- Oddi eða (Kjalvöru) móður sinni“. Hallgerður var um allt norræn. Snæbjörn galti, sem líklega var eitthvað eldri en Hallgerður, var hið mesta mannsefni, og líklega er það sannleikanum samkvæmt, að Sigurjón lætur hann hafa erft nokkur írsk ytri einkenni frá móð- ur sinni og langömmu, Raförtu Kjarvalsdóttur írakonungs. Það leynir sér ekki, að þau Snæ- björn og Hallgerður hafa verið leiksystkin, og að með þeim hefir verið ágæt frændsemi og vinátta frá bernsku, sem svo, er árin liðu, breyttist í sterka ást. Hallgerður var nú gjafvaxta, og Snæbjörn var búinn að vera í sigl- ingum og átti nú kaupskip, er stóð uppi í Grímsárósi. Hann var hinn garplegasti drengskaparmaður. Með Snæbirni og Hallgerði virð- ist hafa verið fullkomið jafnræði, hvað mannkosti og ættgöfgi snerti. Ekki virðist Snæbjörn hafa verið auðugur að fé. En varla mun hafa verið lagt svo mikið upp úr því þá, sem síðar varð. Manngildi og ætt- göfgi var þá fyrir öllu. Samt synj- aði Tungu-Oddur Snæbirni um ráðahaginn. Oddi mun hafa verið meira í mun, að gifta þessa dóttur sína þannig, að hann tengdist við höfðingja með miklum mannafor- ráðum. Slíkir menn voru Mosfell- ingar. Sigurjón lætur Kjalvöru, móður Snæbjarnar, einnig vera á móti ráðahagnum, vegna þess, að kristinn réttur banni að byggja svo náið að frændsemi. Og hversu mik- ið eöa lítið sem heiðinn goði lagði

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.