Lesbók Morgunblaðsins - 06.12.1959, Side 8

Lesbók Morgunblaðsins - 06.12.1959, Side 8
578 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Þetta geröist \ nóvember SKÖMMU eftir þingkosningarnar hófust viðræður Sjálfstæðisflokks- ins og Alþýðuflokksins um myndun nýrrar stjórnar, er hefði meiri hluta á þingl. Ríkisstjórn Emils Jónssonar, sem tók við völdum 23. des. s.l., sagði svo af sér 19. nóvember. Forseti ís- lands ræddi þá við forystumenn stjórnmálaflokkanna, en að þeim viðræðum loknum fól hann Ólafi Thors, formanni Sjálfstæðisflokks- ins, að mynda nýtt ráðuneyti. Gekk það greiðlega og tók hin nýa stjórn formlega við daginn eftir. Hún er þannig skipuð: Ólafur Thors for- sætisráðherra, Bjarni Benediktsson dómsmála- og iðnaðarmálaráðherra, Gunnar Thoroddsen fjármálaráð- urnar fluttar í geymslurúm og varðveittar þar um hríð í röku lofti. Þá kemur að því að búa um vör- una, en það er gert í vélum. Þessar vélar raða saman 5 plötum, vefja utan um þær pappír og glæpappír og skila þeim tilbúnum frá sér. Önnur vél tekur svo við og setur 20 slíka pakka saman í kassa. Síðan fara þeir á færibandi til einnar vél- ar enn, sem slær glæpappír utan um kassana og raðar þeim niður í stærri kassa. Þá er varan tilbúin að sendast á markað. — 'k' — Hvergi í heimi er etið jafn mikið af jórturleðri sem 1 Bandaríkjun- um. Árið 1930 át hver maður til jafnaðar 100 plötur á ári, en í stríð- inu margfaldaðist þessi eyðsla. Hermennirnir, sem voru erlendis, átu t. d. 620 plötur til jafnaðar á ári. Og eftir stríðið er eyðslan 500 plötur á mann að meðaltali í öllum Bandaríkjunum. Og þaðan hefir þessi jórtursiður borizt út um allan heim, og orðið fjölda manns að ávaaa. herra, Ingólfur Jónsson landbúnað- ar- og samgöngumalaráðherra, Emil Jónsson félagsmalaráðherra, Guð- mundur 1. Guðmundsson utanrikis- ráðherra, Gylfi Þ. Gíslason mennta- mála- og viðskiftamáiaráðherra. — Stjórnin birti stefnuskrá sína á Al- þingi sama dag. Aiþing kom saman til funda 20. Höfðu þá miklar breytingar verið gerðar á fundarsölum þingsins, vegna þess að nú eru þingmenn 60, eða 8 fleiri en áður. Forsetar voru kjörnir: Friðjón Skarphéðinsson í Sþ., Jóhann Hafstein í Nd., Sigurð- ur Ó. Ólafsson í Ed. (24.) Vegna þess að sérfræðingar hafa ekki enn Iokið rannsókn sinnl á efnahagsmálum þjóðarinnar, var sýnt að ekki mundi unnt að af- greiða fjárlög fyrir nýár, lagði stjórnin því til að fundum Alþingis yrði frestað frá mánaðamótum til 28. janúar (27., 28.) Brezkt herskip hindraði að „Maria Júlía“ tæki landhelgisbrjót hjá Langanesi (7.) — Kristinn Guð- mundsson ambassadör gekk á fund Selwyn Lloyd utanríkisráðherra Breta og mótmælti þessu ofbeldi (24.) veðrAttan var umhleypingasöm og stórviðra- söm í þessum mánuði og oft rigning sunnan lands. í öndverðum mánuðin- um gerði foráttubrirn í Faxaflóa og brotnaði þá sjávarnargarður hjá Rafn- kelsstöðum á Miðnesi, en 8 hross flæddi á Mýrum og drukknuðu þau öll (3. og 6.) Annað fárviðri með þreif- andi stórhríð brast skyndilega á þann 8. og var þá fannkoma um allt land, en veðrið þá langverst á Norðurlandi og olli miklu tjóni. Jörð var alauð fyr- ir og var fé því út um alla haga og sumt á afréttum, en engum manni var út fært til að vitja um það vegna blind- byls, er stóð í tvo daga. Hrakti fé víða til dauðs í fen og ár, eða fyrir björg, en mesta fjölda fennti, og voru bænd- ur iengi á eftir að leita og draga fé úr fönn, ýmist dautt eða lifandi. Mestir fjárskaðar munu hafa orðið í Þingeyar- sýslum og er enn eigi vitað hve miklir Olafur Thors. þeir hafa orðið. 1 Reykjadal munu hafa farizt 100—150 kindur, þar fundust á einum stað 33 kindur dauðar í einum hnapp. A Hólsfjöllum, þar sem ekki eru nema 5 bæir, er talið að farizt hafi um 100 fjár. Miklir fjárskaðar urðu og í Kelduhverfi. 1 þessu ofviðri tepptust flestir fjall- vegir og sums staðar voru menn hætt komnir. Miklir samgönguerfiðleikar voru á eftir og bílar festust víða, en flug lá niðri í nokkra daga. Svo var fannkoman mikil, að mannhæðar háir skaflar voru á götum Akureyrar. Annað tjón varð einnig. Brotnaði stórt skarð í skjólvegg hafnarinnar í Ólafsfirði og einnig urðu þar fleiri skemmdir svo tjónið er talið um miljón kr. Bátur fórst á Hofsósi. Trilla sökk á Húsavik og aðra rak á land. Upp- skipunarbát rak á land á Kópaskeri og brotnaði hann í spón. Trillu rak á land í Þórshöfn og eyðilagðist hún. Tals- verðar skemmdir urðu á hafnarmann- virkjum á Sauðárkróki. Bátur sökk á Árskógssandi. Rafmagnsstrengur til Hríseyar bilaði. í þessum hamförum stíflaðist Laxá algjörlega þar sem hún kemur úr Mývatni og var rafmagns- laust á orkusvæði hennar í marga daga. Tilfinnanlega bitnaði þetta á Akureyri, þar urðu margir að flýa hús sín vegna myrkurs og kulda. Um miðjan mánuð- inn var komið nokkuð rennsli i Laxá, en rafmagnsskortur var enn á Akureyri fram um 20.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.