Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1959, Side 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
587
önnur, allur svipur fólksins,
ailir skyldu njóta einhvers
góðs, jafnt menn sem mál-
leysingjar, því að himinn
kærleikans var svo nærri.
Þannig hafa jólin komið
eins og Guðs engill í skamm-
deginu. Og þau fóru hvergi
framhjá, sízt þar, sem sorg
var fyrir.
Það var á prestsheimili fyr-
ir nokkrum árum á jólanótt.
Allir voru gengnir til náða
nema presturinn, hann var að
búa sig undir næsta dag. Þá
hringir síminn. Stamandi
rödd biður prestinn að koma
og skíra dauðvona barn. Þeg-
ar hann kemur á vettvang, er
ljóst, að þar er sá gestur fyr-
ir, sem stundum er nefndur
„engill dauðans“. Mamma
heldur á sjúklingnum sínum í
fanginu, hin börnin eru sam-
an í hnipri uppi í rúmshorni,
hljóð, undrandi, alvarleg.
Þau hafa engar jólagjafir
snert, litla jólatréð er ótendr-
að. Barnið er skírt, lagt á
arma frelsarans, bróðurins
bezta og barnavinarins
mesta. Síðan er sunginn jóla-
sálmur: „Hvert fátækt hreysi
höll nú er, því Guð er sjálfur
gestur hér. í myrkrum ljóm-
ar lífsins sól, þér, Guð, sé lof
fyrir gleðileg jól”. Litli,
blaktandi lífsloginn er
slokknaður, „engill dauðans“
hverfur á brott með sitt
ótímabæra herfang. En hann
var ekki einn á ferð. „Guð er
sjálfur gestur hér“. Það var
ekki unnt að lýsa yfir-
bragði pabba og mömmu og
barnanna með öðru betur en
þessu: „Engill Drottins stóð
hjá þeim og dýrð Drottins
ljómaði 1 kringum þá“.
Annað aðfangadagskvöld.
Kjarklítill gengur presturinn
upp stigann og að dyrunum,
þar sem hann veit, að sorgin
mikla hefur gengið inn fyrir
skemmstu og sezt að. Og
hann mætir þar augum, sem
hlutu að hafa séð inn í him-
ininn, þar sem englarnir búa,
þar sem Jesús er.
Þannig mætti halda áfram.
Jólahátíðin ber svip Guðs-
engla og færir birtu Guðs
himins yfir lífið, yfir þá gleði
þess, sem sönnust er, og einn-
ig yfir harma þess og þraut-
ir.
Og hvað sérð þú á næstu
jólanótt í auga barnsins þíns,
þegar þú syngur jólasálmana
með því og lest jólaguðspjall-
ið? Hvað sérðu, þegar það
sofnar út af með jólagjöfina
sína í fanginu, kreppir þrýst-
na arma utan um dýrgrip-
inn sinn og brosir í draumi?,
Gefðu því heilög jól, kyrrlát,
friðsæl og hlý. Talaðu við það
um bamið í Betlehem, ófeim-
inn. Gefðu því jól, sem verði
því ylgjafi þegar það hefur
ekki lengur skjól af þér. Og
brosið þitt um leið og þú
breiðir ofan á það á jólanótt
og signir yfir rúmið, mun
spegla þína tærustu gleði. Því
að engill Drottins er hjá þér
og dýrð Drottins ljómar í
kringum þig.
Ljóssins hátíð er aðeins
endurskin. Uppspretta þeirr-
ar birtu, sem frá jólunum
stafar, er hinn mikli fögn-
uður: Yður er frelsari fædd-
ur, Drottinn Kristur. Jólin
bera þér boð frá honum og
benda til hans. Þau minna á
hið dýrmætasta og undur-
samlegasta, sem unnt er að
öðlast: Ljósið, sem getur gjört
hug þinn bjartan, hjarta þitt
upplýst af geisla Guðs dýrð-
ar, líf þitt endurfætt af and-
vara himinsins.
í frelsarans nafni: Gleðileg
jól.