Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1959, Qupperneq 26
810
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Rústir Qumrans standa hátt og er djúpt gil öðrum megin.
guð gaf að skilja alla leyndardóma
í orðum þjóna sinna, spámann-
anna“. Þessi prestur kenndi, að
dagur dómsins væri í nánd, þeg-
ar guð kæmi að refsa hinum rang-
látu og umbuna hinum réttlátu.
Ýmsar upplýsingar í hinum
fundnu handritum benda til þess,
að trúflokkur þessi hafi verið stofn-
aður seint á annaxri öld fyrir Krists
burð. Þá voru miklar viðsjár í land-
inu, komin til valda ætt sem ekki
var konungborin, og æðstiprestur,
sem ekki hafði réttindi til þess.
Vegna þessara væringa varð trú-
flokki Essena ekki vært í Jerusal-
em. Þeir fluttust því út í eyðimörk
Judeu og reistu sér byggð þar
skammt frá Dauðahafinu. Sam-
kvæmt Siðfræðinni rættist þannig
það er segir hjá Jesaja (40, 3):
,,Greiðið götu Drottins, ryðjið guði
vorum veg í óbyggðinni". Staður-
inn, sem þeir völdu sér var langt
frá aðalleiðinni um Jórdanardal,
og þótt þarna væri eyðimörk, þá
var vatnsból hjá Ayn Faskhah, sem
er rúmum 5 km sunnar. Þaðan
leiddu þeir vatn heim til sín.
Liggja vatnsleiðslurnar um klaust-
ursrústirnar þverar og endilangar.
Voru þar stórir vatnsgeymar og
laugar, enda þurftu þeir á miklu
vatni að halda. Aðalboðorð þeirra
var hreinlæti. Menn voru skírðir
í vatni, og daglega áttu þeir að fara
í bað, til þess að hreinsa sig af öll-
um syndum. Þeir notuðu líka vatn
til þess að hreinsa híbýli sín. Á
einum stað er langur og mjór sal-
ur, en fyrir enda hans hefir verið
búr, sem sjá mátti af því, að þar
fannst mikið af diskum. í salnum
hafa matast alhr í senn, en á eftir
hafa þeir skolað salinn með vatni,
Essenar fylgdu dyggilega því,
sem stendur í Josúabók (1, 8): „Ver
þú aðeins hughraustur og harla ör-
uggur að gæta þess að breyta eftir
öllu lögmálinu, því er Móse þjónn
minn fyrir þig lagði; vík eigi frá
því, hvorki til hægri né vinstri,
til þess að þér lánist allt vel, sem
þú tekur þér fyrir hendur. Eigi skal
lögmálsbók þessi víkja úr munni
þínum, heldur skaltu hugleiða hana
um daga og nætur til þess að þú
gætir þess að gera allt það, sem í
henni er skrifað“. í lögum þeirra
stendur: „Aldrei skal verða neitt
hlé á því, hvorki nótt né dag, að
einhver lesi upphátt lögmálið fyrir
öðrum“.
Þeir komu sér vel fyrir á þessum
nýa stað og bera rústirnar vitni
um það. Þarna hefir verið leirkera-
gerð, þar sem leirinn var hnoðaður,
hreinsaður og blandaður, og
þar hafa þeir haft stiginn
rennibekk, til að renna leirkerin,
alveg eins og gert er enn þar í