Lesbók Morgunblaðsins - 26.02.1961, Blaðsíða 2
102
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Af honum höfum vér ekki aðrar
sagnir, en Gnúpur bróðir hans
varð að flýa land fyrir vígasakir
þeirra bræðra. Hann var þá
kenndur við staðinn þannig, að
hann var kallaður Molda-Gnúpur.
Hann fór til íslands og gerðist þar
landnámsmaður, og er merkileg
saga af honum og niðjum hans.
Ekki er þess getið hvar Molda-
Gnúpur tók land. Ef til vill hefir
hann komið skipi sínu í fjörð
þann, er Kerlingarfjörður nefnd-
ist og þá var rétt vestan við Hjör-
leifshöfða, eða þá í Kúðafljótsós,
því að hann „nam land milli
Kúðafljóts og Eyarár og Álftaver
allt. Þar var þá vatn mikið og
álftaveiðar á“, segir Landnáma.
Ólíkt hefir þetta land verið
ættaróðali hans Moldatúni norðan
Raumsdalsfjarðar, nema hvað hér
sá til snævi þakinna fjalla, Mýr-
dalsjökuls í norðri og Öræfajök-
uls í. austri. Þarna voru engir
skógar, en graslendur víðar, því að
þá var öðru vísi um að litast á
þessum slóðum en nú er. Þá mun
hafa verið skógarkjarr og graslendi
milli fjalls og fjöru þar sem nú er
Mýrdalssandur. Sagan segir að
skjótt hafi orðið fjölbyggt í land-
námi Molda-Gnúps, og náði
byggðin langleiðis upp að Leirá,
sem fellur í Hólmsá. Eru enn
kunn nöfn á ýmsum bæum þarna,
þar sem nú er svartur eyðisandur,
svo sem Dynskógar, Hraunstaðir,
Keldur, Loðinsvíkur, Atlaey og
Laufskálar, þar sem nú heitir
Laufskálavarða. Á ofanverðri 17.
öld létu þeir sýslumennirnir Ein-
ar og Hákon ÞorsteinsSynir leita
þar sem örnefni bentu til að bæir
þessir hefði staðið, og fundust þar
leifar húsatótta og önnur manna-
verk, en ekkert af gripum, nema
í Dynskógum. Þar fannst eirketill
mikill, sem tók rúmlega 2 tunnur.
Mátti á þessu sjá, að sannar voru
sögurnar um byggð þarna á
landnámsöld.
Ekki hafði byggðin staðið lengi,
er eldsumbrot urðu í jöklinum, og
telja menn að þá hafi komið fyrsta
Kötlugosið. Jökulhlaupið mun
hafa farið austur af jöklinum, og
tók það af byggð og allt graslendi
fyrir ofan Álftaver, allt að Skálm,
en sennilega hefir vatnsflaumur-
inn einnig farið yfir Álftaver.
Slíkum náttúruhamförum höfðu
landnámsmenn ekki átt að venj-
ast, og flýði nú hver sem flúið
gat. Sumir fóru ekki lengra en í
svonefnt Lágeyarhverfi og settust
þar að. Sú byggð var vestan Eyar-
ár, og náði utan frá sjó og langt
upp með ánni. Hafa verið þar
margir bæir og vita menn um
nöfn á þessum: Lágey, Lambey
(þar sem nú heitir Lambeyarjök-
ull), Rauðilækur og Holt. En í
Kötluhlaupi, sem kom upp úr jól-
um 1311, hvarf þessi byggð svo
algjörlega, að hennar hefir ekki
séð stað síðan. Hús, engjar og hag-
ar hurfu undir sand, allur fénað-
ur fórst og allir menn, nema einn
bóndi, er Sturla hét, komst undan
á ísjaka með ungbarn. Er hlaup
þetta síðan nefnt Sturluhlaup. —
Molda-Gnúpur og fólk hans
flýði lengra vestur á bóginn. Jök-
ulhlaupið hefir sennilega komið
um haust, því að þeir treystust
ekki að halda lengra en til Höfða-
brekku og gerðu sér tjaldbúðir
þar sem síðan heita Tjaldavellir.
Eru þeir norður og vestur af Háa-
felli, sem er austur af Kerlingar-
dal. Segir í Eldriti Markúsar
Loftssonar, að þar sjást enn
búðastæðin.
Bóndanum í Kerlingardal líkaði
ekki þessi heimsókn og bannaði
hann þeim að vera þarna. Flutt-
ust þeir þá „í Hrossagarð og gerðu
þar skála og sátu þar um vetur-
inn, og gerðist þar ófriður með
þeim og vígafar". Þarna kallast
nú Kaplagarðar austan í fellinu.
Ekki fara neinar sögur af þess-
um ófriði, en sjálfsagt hafa sættir
komizt á, og hefir það dæmzt á
Molda-Gnúp og menn hans að
greiða Kerlingardalsbónda skaða-
bætur, þar sem þeir settust í ó-
leyfi í land hans. Nú segir sagan,
að þeir hafi haft kvikfé fátt, og
er það ekki ólíklegt, því að þeir
hafa orðið að lifa á kvikfénu um
veturinn, því er bjargaðist úr
hlaupinu. Hafa þeir því ekki get-
að greitt sektarféð í fríðu. En
sagt er að þeir hafi látið Kerling-
ardalsbónda fá svonefnda Dyn-
skógafjöru, en það er rekastúfur
á milli Hjörleifshöfðafjöru og
Herjólfsstaðafjöru. Handsöl munu
hafa verið gerð að þessu, en samn-
ingurinn verið munnlegur. Þó hef-
ir hann dugað í þúsund ár. Hann
er enn í gildi og elztur allra samn-
inga á íslandi svo vitað sé. Gildi
hans kom í ljós fyrir nokkrum ár-
um, þegar deilt var um járnið úr
„Persier“ á Dynskógafjöru. Þá
var það ekki neitt vafamál, að
Kerlingardalur átti þennan fjöru-
stúf.
Molda-Gnúpur helt för sinni
áfram vestur á bóginn í landaleit,
og létti ekki fyr en hann kom í
Grindavík. Þar var þá ónumið og
settist hann þar að. Fjórir eru
nefndir synir Molda-Gnúps: Björn,
Þorsteinn, Þórður og Gnúpur.
Komu þeir sér fljótt í vinfengi
við landvættir, því „það sáu
ófreskir menn, að landvættir allar
fylgdu Birni til þings, en Þor-
steini og Þórði til veiða og fiskj-
ar“. Síðan dreymdi Björn, að
bergrisi kom að honum og bauð
að gera félag við hann, en hann
játti því. „Eftir það kom hafur
til geita hans og tímgaðist þá svo
I
*