Lesbók Morgunblaðsins - 26.02.1961, Side 9

Lesbók Morgunblaðsins - 26.02.1961, Side 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 109 fyrst tólfunum. Skyndilega, og að því er virðist ástæðulaust, hætta þeir að eta og veslast upp, enda þótt eigandinn beri í þá slíkt sæl- gæti sem orma, flugnalirfur og vatnakrabba. Eg stóð uppi ráðalaus. Fiskarn- ir höfðu nóg svigrúm í kerinu, vatnið var hæfilega hlýtt og blandað málmsöltum, en þrátt fyrir það vesluðust fiskarnir upp og dóu úr hungri fyrir augunum á mér. Aðrir veiktust og dóu af því. Einn hafði stokkið upp úr búrinu um nótt. Áður en þrír mánuðir voru liðnir, voru þeir allir dauðir. Aðrir fiskalendur höfðu sömu sögu að segja. Þeir sem voru svo heppnir að fiskarnir hrygndu hjá þeim, einangruðu hrognin svo að fiskarnir skyldi ekki eta þau. En þegar seiðin komu úr hrognunum og byrjuðu að synda, vildu þau ekki sjá neina fæðu og dóu svo. Eg útvegaði mér nú aftur átta unga kringlufiska og var einráð- inn í að komast eftir því hvernig stæði á þessum miklu vanhöldum. Að þessu sinni komust þeir flest- ir upp, og svo kom að því að tveir þeirra sýndu á sér merki þess að hrygning væri í nánd. Þegar kvenfiskurinn var orðinn bólginn af hrognum, leituðu ýms- ir karlfiskar lags við hann. Þeir reyndu að vekja athygli á sér og dufluðu með því að hrista sig og breiða úr uggunum. Stundum fór kvenfiskurinn í munnkrækju við þá hvern af öðrum. En að lokum fann hún þann útvalda og þá hættu þau öllu dufli en fóru að velja stað handa hrognunum. Þessir fiskar eru vanir að klína hrognum sínum á jurtaleggi, greinar eða eitthvað þessháttar, þar sem þeir eru frjálsir. í stað þess lét eg þá fá litla steinstöng. Þeir byrjuðu þegar á því að Gotfiskurinn raðar hrognum sínum á viðbúinn að frjóvga þau. hreinsa hana og fága með munn- unum og af slíkri kostgæfni og vandvirkni, að slíkt hefði verið hinni þrifnustu húsmóður til fyrirmyndar. Að því búnu tók hrygnan að losa sig við hrognin. Hún synti upp og niður með steininum og spýtti á hann hrognunum, en þau klesstust þegar föst við hann. Á eftir henni fór svilfiskurinn og frjóvgaði hrognin. Ef hrogn losn- uðu, gripu þau um þau með munninum og klíndu þeim þegar föstum aftur. En þau hrogn sem ekki vildu tolla, átu þau. Kringlufiskurinn lætur sér um- hugað um afkvæmi sín. Hann vakir bæði yfir hrognum og ung- viði. En þegar hann er ófrjáls er ekki að reiða sig á hann — þá er hann vís til að háma í sig bæði hrogn og ungviði. Eg ákvað þó að treysta á hinar betri tilfinningar þeirra og láta þá sjá um hrognin, og þeir brugðust mér ekki. Hjónin skiftust á um að blaka uggum yfir hrognunum til þess að steinbjálkann, en svilfiskurinn bíður þeim bærist nóg af súrefni. Þau athuguðu hrognin hvað eftir ann- að og tóku þau milli vara sér, en þau átu þau ekki. Aðallega var það frúin sem annaðist þetta, hús- bóndinn var alltaf á verði til að bægja frá hverri aðsteðjandi hættu. Svo komu seiðin Á fjórða degi fóru seiðin að skríða úr hrognunum. Um leið og þau losnuðu tóku foreldrarnir þau í munn sér og fluttu þau á annan stað, sem þeir höfðu útbúið handa þeim. Næstu þrjá daga gátu seið- in ekki sleppt sér, því að þau kunnu ekki að synda. Þau hengu föst þar sem foreldrarnir höfðu sett þau. En foreldrarnir voru þó alltaf að færa þau stað úr stað, eins og þeir vildu þar með leika á einhvern óvin. Þegar seiðin byrjuðu að sleppa sér, komu foreldrarnir þegar að, sugu þau upp í sig og spýttu þeim aftur á þann stað, þar sem þau áttu að vera. Þetta varð dá- Jítið broslegt þegar fram í sótti

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.