Lesbók Morgunblaðsins - 04.06.1961, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 04.06.1961, Blaðsíða 4
312 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Einar Sifvaldason gaf sjóðnum aleigu sína. í þakkarskyni var B honum reistur bautasteinn. Hann er nú þannig útlítandi. (Ljósm. vig.) þetta til langframa, og mun þar sennilega hafa valdið að sekta- fyrirkomulagið hafi reynzt óvin- sælt meðal sjómanna og því fallið niður af sjálfu sér. Geta verður hér um einn tekju- lið, nokkrar krónur í -ársreikningi 1895, sem sagt er að sé: „andvirði fyrir safn úr slorkössum í Reykja- víkurfjörum“. Þessi stutta frásögn minnir á brot úr menningarsögu Reykja- víkur. Jarðræktarfélag Reykja- víkur var stofnað 1890, að til- hlutan Schierbecks landlæknis og annara góðra manna. Það rak sig fljótt á, að áburðarskortur haml- aði mjög jarðrækt í Reykjavík, og var þá farið að ræða um hvern- ig ætti að afla hér aukins áburð- ar. Beindist þá athyglin að því slógi og fiskúrgangi, sem jafnan var ijleygt hér í fjöruna og úldn- aði þar niður, eiigum til gagns, en til óþæginda fyrir bæarmenn vegna þess ódauns sem af þessu lagði. Hér mátti vinna tvennt í einu, afla áburðar og auka þrifn- að og snyrtimennsku. Félagið hófst því handa um að safna slógi 1 fjörunni. í aðalfundargerð þess 1895 er þess getið „að af slor- áburði hafi aðeins fallið til 100 hestar; lagði félagið andvirði þeirra, 15 kr., í Fiskimannasjóð, og verður svo gert framvegis“. — Því miður lagðist þetta þarfaverk brátt niður, slógið lá óhreyft í fjörunni og ódauninn af því lagði yfir allan bæinn, áburðarvanda- málið var jafn óleyst sem áður, og Fiskimannasjóður fekk ekki framtíðartekjur af nýbreytninni. Dánargjafir Eins og fyr getur námu gjafir og samskot til sjóðsins fyrstu 33 árin kr. 2792. Við það bættust svo næstu árin um 2000 kr. En svo komu tveir hvalrekar á fjörur sjóðsins, sem juku hann meira en allar aðrar gjafir og samskot sam- tals um 40 ára skeið. Árið 1895 andaðist í Kaup- mannahöfn maður að nafni C. V. R. Lotz. Hann er kallaður skrifari og nafnið bendir til þess að hann hafi verið þýzkur. Þessi maður lét eftir sig erfðaskrá, og 7. gr. hennar var á þessa leið: — Til þess að styrkja ekkjur og börn drukknaðra fiskimanna á ís- landi, skal verja 20.000 kr. upp- hæð, sem greiða skal eftirnefnd- um fjórum styrktarsjóðum, sem til eru á íslandi, hverjum 5000 krónur. Þessir sjóðir eru: 1. Fiskimannasjóður Kjalarnes- þings, form. Halldór Daníels- son. 2. Styrktarsjóður handa ekkjum og bömum ísfirðinga þeirra er í sjó drukkna, form. Skúli Thoroddsen. 3. Styrktarsjóður handa ekkjum sjódrukknaðra og börnum þeirra í Fljótum og Siglufirði, form. Einar Ásmundsson. 4. Styrktarsjóður handa ekkjum sjódrukknaðra í Grýtubakka- hreppi, form. Einar Ásmunds- son. í nóvembermánuði 1906 andað-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.