Lesbók Morgunblaðsins - 04.06.1961, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 04.06.1961, Blaðsíða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 313 ist í Reykjavík 85 ára gamall maður, Einar Sigvaldason. Hann var fæddur í Beggjakoti í Sel- vogshreppi 10. ágúst 1821, enflutt- ist til Reykjavíkur 1857 og dvald- ist þar síðan. Hann átti heima í Bergstaðastræti lla þegar hann dó, hafði verið ógiftur alla ævi. Þessi maður arfleiddi Fiski- mannasjóð að eignum sínum, en það var jörðin Melur í Hraun- hreppi í Mýrasýslu, metin á 1400 kr., jörðin Hindarstapi (sem nú er kölluð Hundastapi) í sömu sýslu, metin á 800 kr., og spari- sjóðsbók með 816.90 kr. — og auk þess var árs eftirgjald af Hindarstapa 48 kr., svo að alls var gjöfin talin 3064.90 kr. — Sjóðstjórnin var svo hrifin af hugulsemi og eðallyndi gjafarans, að hún samþykki einum rómi að reisa honum bautastein og verja 150 kr. af dánargjöfinni til þess. Og með þessu er sjóðurinn þá orðinn kr. 20.174.61. Síðan hefir ekkert verið gert til þess að auka hann. Vextir hafa jafnharðan lagzt við höfuðstól, en á hverju ári hefir verið úthlutað smástyrkj- um. Venjulega hafa það verið sömu ekkjurnar, sem hlotið hafa styrk ár eftir ár, og enn er verið að mylgra út þessum smáupphæð- um. Um seinustu áramót var sjóð- urinn orðinn kr. 60.757.29. Legsteinn Einars Eg fór að leita að legsteini Ein- ars Sigvaldasonar í gamla kirkju- garðinum á Melunum, og með að- stoð kirkjugarðsvarða tókst mér að hafa upp á honum. Steinninn er skammt fyrir sunnan klukkna- stöpulinn í kirkjugarðinum. Ekkert minnti á það, að hér væri legstaður þess manns, er hefði verið heiðraður sérstaklega fyrir það að gefa aleigu sína í guðsþakkaskyni. Leiðið hefir aldrei verið girt og er nú flatt og jafnt gangstígnum. Sjálfur bautasteinninn hefir verið hafður mjög einfaldur og hefir hann upp- haflega staðið á öðrum steini og líklega festur við hann með kalki. Stormarnir, sem þarna gnauða, hafa leikið sér að því að sverfa ^teininn, svo að letrið á honum er orðið mjög máð. En svo hefir ein- hver vindstrokan reynzt steinin- um ofviða, svo að hann hefir fall- ið. Og í fallinu hefir brotnað eina skrautið, sem á honum var, kringlótt marmaramynd af engli. Þarna hallast bautasteinninn nú upp að undirstöðusteininum, máður og skemmdur og í full- komnu umkomuleysi. Stundarhrifning er ekki nóg til þess að launa góðverk. Hugur og ræktarsemi verða að fylgja. En svo er að sjá, sem samborgarar Einars hafi þózt gera skyldu sína, er þeir settu stein á leiði hans, og síðan hafi ekki verið hugsað meira um það. „Gleyminn er þessi heimur“. Væri nú ekki rétt, að stjórn sjóðsins léti hressa við legstaðinn og gangi frá steininum eins og hann áður var? Eða skyldu þeir vera margir, sem hvíla í gamla kirkjugarðin- um undir gömlum bautasteinum, sem eiga það fremur skilið en Einar Sigvaldason, að nöfn þeirra og legstaður geymist? ----o----- Þannig er þá saga þessa sjóðs. Hann er einn af ótal mörgum sjóðum hér á landi, sem gleymd- ir eru öðrum en þeim, sem hafa reikninga þeirra undir höndum. En þetta er merkilegur sjóður, fyrst og fremst vegna þess hve gamall hann er, og eins vegna þess hvernig hann var stofnaður og hvert vera átti hlutverk hans. Hann hefir aldrei náð því að eflast svo, að hann hafi getað veitt styrki, sem um munaði. Og með árunum hefir gengisbreyting íslenzku krónunnar mulið hann niður, svo að hann er nú í raun- inni fátækari heldur en hann var um aldamót, enda þótt krónutal- an hafi margfaldazt. Á þessari öld hafa margsinnis farið fram samskot vegna sjóslysa og oft safnast stórfé. En Fiski- mannasjóður hefir ekki haft for- göngu um það, eins og Barden- fleth mun hafa ætlazt til upp- haflega. Þar hafa komið fram aðr- ir aðiljar og stjórn Fiskimanna- sjóðs hefir aldrei úthlutað því samskotafé. Þetta hefir allt farið fram hjá sjóðnum. Þess er áður getið, að stjórn sjóðsins var einu sinni í miklum vafa um hvort sjóðnum bæri að veita styrk ekkjum og börnum manna, sem fórust með skútum. Hún mun hafa litið svo á, að ekki ætti að veita styrk nema þegar menn færist af opnum bátum. Síðan hafa komið togarar og stór- ir vélbátar, og ætti þá styrkveit- ingar ekki að ná til þeirra, enda eru menn á þeim skipum líf- tryggðir. Hlutverki sjóðsins sýnist því að mestu lokið. En hvað á þá að verða um hann? Á. Ó. KJARNGEISLAR OG KRABBAMEIN Það var fyrst 1948 að læknar tóku eftir því að blóðkrabba gætti mikið meðal þeirra Japana, sem komust lif- andi undan kjarnasprengjunni í Hiro- shima. Nú hefir komið í Ijós að alls- konar tegundir krabbameins eru miklu algengari meðal þeirra en ann- ara, svo sem krabbamein í lungum, maga, brjósti og móðurlífi. Þetta hafa 12 ára rannsóknir sýnt. Þær hafa einnig sýnt að konur, sem urðu fyrir miklum geislunum, hafa alið börn með vanþroskaðan heila.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.