Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1962, Side 11
Vatikanib
Framhald af bls. 1. •
HvAÐ Rafael snerti var Leo X,
sem var af Medici-ættinni næsti og síð-
asti vemdari hans. Leö var sanniur
Medici og mikill vinur visinda, lista og
bókmennta En hann hirti oft lítt um skyld-
ur sínar og seldi kardinálahatta, setti á
stofn ný embætti til að selja þau hæstbjóð-
anda, fékk lánaðar miklar fúlgur frá bönk-
um og veðsetti jafnvel hallarhúsgögnin,
borðbúnað og dýrgripi til að fá þær geipi-
legu upphæðir, sem hann þurfti að nota
Við skreytingaráform sín og byggingar.
„Látum oss njóta páfadómsins úr því guð
hefur gefið oss hann“, er haft eftir Leo.
Sem betur fer var ein af aðalskemmtunum
hans að láta Rafael mála sem mest. Á þeim
sjö árum, sem Rafael þjónaði Leo X lauk
hann fleiri verkum en margur annar hef-
ur gert um langa ævi. Bramante hafði fyr-
ir dauða sinn 1514 beðið sérstaklega um, að
Rafael yrði eftirmaður hans sem yfirhúsa-
meistari við Péturskirkjuna, og þótt Rafael
hafi að sjálfsögðu verið fús til að úthella
sköpunargleði sinni yfir Péturskirkjuna,
ber hún lítil merki hans. Byggingin gekk þá
mjög hægt, og margir hefðu heldur vilj-
að, að gert væri við gömlu Basilikuna en
að horfa á þá ógrynni fjár sem eytt var
í þessa nýju áætlun. Margir álitu einnig,
að þarna hefðu páfarnir tekizt á.hendur
verk, sem væri of stórkostlegt fyrir mann-
legar verur til að ljúka við. Leo X og
Rafael höfðu báðir verið dánir í meira en
20 ár, þegar Páll III ákvað að hraða nú
byggingunni og fékk Micelangelo til að
taka að sér yfirstjórn hennar og gaf hon-
um frjálsar hendur um að stækka eða
breyta öllu, að eigin vild. Michelangelo
breytti teikningu Rafaels og sneri aftur
til áætlunar Bramantes um hof í mynd
gríska krossins, en hann breytti hvelfing-
unni gerði hana hærri en hún hafði verið
teiknuð áður. Michelangelo dó 1564 og
skildi við hvelfinguna áður en lokið var
við hana og henni var ekki lokið fyrr en
1590.
ó hún sé ekki mjög ólík áætlun-
um Michelangelos, mundi hvorki
hann né Bramante þekkja ytra útlit Péturs-
kirkjunnar eins og henni var loksins lok-
ið, undir stjórn Carlo Maderna í byrjun
17. aldar. Síðastur byggingapáfanna var
Urban VII. Hann var af Barberini-ættinni
og aðallistamaður hans var Bernini, sem
var mjög vel gefinn maður en mikill yfir-
borðsmaður. Urban reyndist Galileo hauk-
ur í horni og var einn af hinum síðustu af
páfunum til að skreyta Róm með stórfeng-
legum byggingum. Hann naut þess mikla
heiðurs 18. nóv. 1626, 112 árum eftir dauða
Bramantes, að vígja St. Péturskirkjuna,
sem þá var fullbúin.
í flestum atriðum var framhhð hennar
þá eins og hún er í dag, en inni í kirkj-
unni var ennþá geipilegt tómt rúm undir
hvelfingunni. Bernini, sem þá var enn ekki
þrítugur, en þegar orðinn frægur, var kall-
aður til verka. 1624—1633 reisti hann hinn
geysistóra baldacchino, sem rís yfir altar-
inu nú. Ekki var nóg brons í Róm fyrir
þennan stórkostlega himin, svo páfinn
skipaði mönnum sínum að rífa af þakinu
á Pantheon. Þetta varð til þess að einhver
Rómverji bjó til bitran málshátt: „Quod
non fecerunt barbari, fecerunt Barberini".
(Það sem barbararnir gerðu ekki, gerðu
Barberinarnir).
Bernini hafði lítið að gera hjá Innocen-
tiusi X, en kom þvi betur saman við næsta
páfa, Alexander VII, sem var lærdóms-
maður, er hafði gaman af að búa til máls-
hætti og kveðast á á latínu við vini sína,
en lét stjórnarmálefni riturum sínum eft-
ir Hann var maður með mikinn fegurðar-
smekk. Hann sá, að eitthvað þurfti að bæta
um framan við kirkjuna og hann vissi að
Bernini mundi finna lausn. Til að mynda
torgið og loka úti alla þá húsaflækju, sem
í nágrenninu var, bjó Bernini til hin miklu
sporöskjulöguðu súlnagöng, sem ná í kring-
um torgið.
V atikanið hefur breytzt mikið á
hinum síðustu þrem öldum. Varla
er til sá páfi, sem ekki hefur látið breyta
einhverju herbergi eða byggja nýja skrif-
stofubyggingu. Páfarnir hafa safnað lista-
verkum allt fram á þennan dag, þó mikill
munur sé á páfum nútímans og heiðingja
eins og Leo X. Flestir hinna nýrri páfa hafa
byggt yfir söfn„ sem þegar voru til.
Listasafn Vatikansins var verk Piusar XI.
Safnið átti engan samastað fyrr en hann
opnaði Pinacoteca Vaticana 1932, en byrj-
að var að safna í það í tíð Páls II. Eftirtekt-
arverðasta inyndin í safninu er hin stór-
kostlega Ummyndun, ein af síðustu mynd-
um Rafaels. Myndinni var ólokið við dauða
hans, og neðri hluti hennar var málaður
af nemendum hans. Heilagur Jeremías eft-
ir Leonardo da Vmci var uppgötvaður af
hinum velþekkta safnara, Fesch kardinála,
sem fann myndina í byrjun síðustu aldar
sem kistulok. Höfuðið vantaði en kardi-
nálinn fann það seinna á skósmíðaverk-
stæði og myndin var að lokum keypt af
Píusi IX. Flestar myndirnar eru ítalskar og
trúarlegs eðlis. Sjaldnast var keypt eftir
neinu kerfi og sumar myndirnar eru lítils
virði. En Rafaels-myndin og myndin eftir
da Vinci og meistaraverk eins og Madonna
di San Niccoló dei Frari eftir Tizian og
Greftrun Jesús eftir Caravaggio og góðar
myndir eftir Giotto, Vivarini, Pinturicchio,
Perugino og aðra renaissance-málara
mynda þarna safn, sem yrði prýði hvers
staðar, þar sem minna væri af listaverkum
en í Vatikaninu.
En á þeim stað skina ekki aðeins
fresclistaverkin skærar, heldur er
þar og stærsta safn heimsins af grísk-róm
verskum styttum. Frægasta höggmyndin í
Vatikaninu er sennilega Laocoön. Næstfræg
ast mundi vera Apollo Belvedere. Áður fyrr
var talið að sú mynd væri grísk frummynd
frá 4. öld fyrir Krist en nú hafa menn
komizt að, að hún er einungis rómversk
eftirmynd af slíku verki, þó góð sé. Bezta
höggmyndin er þó kannski ekki meðal þús-
undanna í Vatikansafninu, heldur í kap-
ellunni til hægri skammt frá inngangin-
um í St Péturskirkjuna. Það er Pieta eftir
Michelangelo. Allar hinar miklu veggmynd-
ir, málverk og dýrmætu. fornstyttur fölna
við hlið þessa verks. Sagt er að Michelan-
gelo hafi grafið nafn sitt á höggmyndina,
sem er eina verkið sem hann nokkru sinni
ritaði nafn sitt á, eftir að hafa heyrt gesti
að norðan eigna einum landsmanni sínum
það. En það er líklegra að áletrunin sé
merki um réttlátt stolt hins unga manns
yfir verki sínu, því hann var aðeins 24
ára, er hann gerði myndina.
Jíinn óbrotni fiskimaður frá Gali-
leu, sem sagt er að sé grafinn
undir kirkjunni, sem nefnd er eftir hon-
um, mundi ekki kunna við sig í þeirri borg
20 þúsund sala, sem kallast Vatikan, svo
ekki sé minnzt á Péturskirkjuna sjálfa, með
sínum 777 súlum, 44 ölturum og nærri 400
styttum. Augu hans mundu blindast af
glampanum af fægðum marmara framhlið-
arinnar og gullinu inni. Tilfinningar hans
yrðu ef til vUl svipaðar og þjónustustúlk-
unnar, sem Franz Werfel leggur þessi orð
í munn: „Þetta var síður kirkja hins kross-
festa en glæst konungshöll hins almáttuga
guðs, staður, sem hann gæti haldið hirð
sína á jörðu. Það virtist, sem allt mann-
kynið gæti fundið stað til að nálgast kon-
ung himnanna og umboðsmann hans á
jörðu í þessum stórfenglega hásætissal.
Þúsundir sáust hvergi í þessum geim og
jafnvel tugir þúsunda voru ekki nóg til
að fylla út í hvert horn“.
En postulinn yrði einnig hrærður yfir
því, hve margir snjallir menn hafa öldum
saman neytt gáfna sinna, tilhneiginga og
jafnvel ástríðna til að smíða þessa stórfeng-
legu kirkju og gera Vatikanið að mesta
listafjársjóði í kristnum löndum.
Hvar eru þeir nú
Framhald af bls. 8.
Að horfa í eldinn
n hvað sem öðru líður, þú kann
frúin vel við sig við Selvogs-
grunn, enda er hús þeirra hjóna ein-
staklega hlýiegt og skemmtilegt. Yngri
dóttir hennar, Bergljót, 19 ára, er í
sjötta bekk Menntaskólans og það
verður því væntanlega stúdentsveizla
við Selvogsgrunn í vor. Eldri dóttirin,
Sólveig, 23 ára, er við nám í Svíþjóð.
— Á sumrin erum við lengst af í
kotinu okkar í Grímsnesinu, og þar er
dásamlegt að vera, segir frúin. Ann-
ars kann ég einnig vel við mig hér
fyrir framan arininn ávetrarkvöldum,
er ég horfi inn í eldinn og hlusta m. a.
á útvarpið.
h. j. h.
Slankbelti eða brjóstahaldari er undir-
fatnaður, sem þér kaupið ekki nema að
vel athuguðu máli. Lífstykkjavörur eru
það þýðingarmikill þáttur í klæðaburði
yðar, að nauðsynlegt er að velja þær með
fyllstu nákvæmni. Spyrjið um hinar vel
þekktu KANTER’S lífstykkjavörur, sem
eingöngu eru framleiddar úr beztu efnum,
í nýjustu sniðum. Þér getið ávallt verið
öruggar um að fá einmitt það sem yður
hentar bezt frá
L,
L,\ ,v,1 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS H