Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1962, Page 16
Þarna sleppir risaþotan X-15 og
eftir fáelnar sekúndur er rakettu-
vélin búin að ná margföldum
hrað'a hljóðsins.
Myndin að ofan er tekin aftan á stél X-15 andartaki eftir lendingu. Loft-
hemlarnir eru enn útþandir, eins og greinilegt er á myndinni, og í þetta sinn
hitnuðu þeir upp í 600 gráður á Celcius, þegar flugmaðurinn dró úr hraðanum
fyrir lendinguna.
»------------------>■
Þegar eldsneytið er þrotið svífur X-15 til jarðar og þessar myndir eru teknar
af henni i lendingu. Útlit rakettuflugvélarinnar er æði kynlegt og vart hægt
að segja, að hún likist flugvél — a.m.k. eins og við þekkjum þær. Hún hefur
venjulegt nefhjól, en að aftan eru tvö stáiskíði í stað hjóla og hiálpa þau til
að draga úr ferðinni í lenðingunni, því X-15 Icndir ævinlega á botni upp-
þornaðs saltvatns vestur í Kaliforníu — og skíðin grafast hálfpartinn niður í
jarðveginn. Lendingarhraðinn er þvílíkur, að engar flugbrautir mundu nægja.
raðfleygasta og háfleyg-
asta flugfarið, sem að
öllu leyti er undir stjórn flug-
mannsins, er bandaríska rakettu-
flugvélin X—15. Þetta er ekki
herflugvél, öllu heldur rannsókn-
arskip, sem unnið hefur að merkri
og mikilvægri könnun í yztu loft
hjúpum jarðar. X—15 hefur nú
þegar veitt mikilvægar upplýs-
ingar og reynslu í sambandi við
undirbúning að geimferðum —
og m. a. voru það tilraunirnar
með þessa flugvél, sem lögðu
grundvöllinn að geimflugi Glenns
ofursta.
X—15 flýgur hraðar
en nok'kur önnur flug-
vélt nær hvorki meira
né minna en 7680 km
hraða á klst. og hún
á að komast upp í 160
km hæð >að var í
þessari flugvél, sem
Bandaríkjamenn gerðu
fyrst athuganir á við-
brögðum mannsins við „þyngdarleys-
inu“. Athuganir á hitaþo'li nýrr-
ar málmtblöndu, sem notuð verður
í geimskipin, hafa lika verið gerðar
í ferðum X—15, sem húðuð er að
utan með sérstakrt blöndu úr nikk-
el og stáli. Sannreynt er, að þessi
blanda þolir allt að 725 gráðu hita
á Celsíus, mesti hiti, sem orðið hef-
ur á mönnuðu flugfari í Bandaríkj-
unum — allt þar til geimfararnir
komu til sögunnar.
Það er ótrúlegt en satt, að rakettu
hreyfillinn í þessari eins manns flug-
vél hefur 22,680 kg. þrýstiorku, eða
samsvarandi 400,000 hestöflum. Það
er ámóta mikil orka og nægir haf-
skipi á borð við Queen Mary.
Flugvélin getur ekki haft mikið
eldsneyti meðferðis vegr.a smæðar
sinnar og þar af leiðandi er hún
flutt upp í háloftin, spennt undir
kannar dkunna stigu
væng B-52 risaþotu, og sleppt, þegar
þotan kemst ekki hærra. Eldsneyt-
inu brennir X-15 á u.þ.b. mínútu
og er því ljóst, að hraðaaukningin er
geysiör og áreynslan á flugmanninn
mikil.
X—15 er hlaðin mælitækjum, sem
rita niður öll viðbrögð manns og
vélar. Það þarf 100 manna starfs-
lið á jörðu niðri til þess að annast
flugvélina og lokaundirbúningur und
ir hvert flug stendur í 20 klukku-
stundir án hvíldar.
Sagt er — og sjálfsagt eru það
engar ýkjur, að það sé aðeins á færi
ofurhuga að fljúga X-15. Á friðar-
tímum eru sennilega fáar atvinnu-
greinar hættulegri en tiiraunaflugið,
en kapparnir, sem hætta lífi og lim-
um í X-15, vinna vísindunum meira
gagn í einni flugferð en margur vís-
indamaðurinn á heilli starfsævi.